Vikan - 07.06.1999, Blaðsíða 7
Islenskar konur
halda kvennahlaup-
inu í heiöri í Nainib
■u og taka vinnukon
urnar með.
1 nagrenn-
inu og
jafnvel á fjöllin í kring: „Elsta
konan í þeim hópi er 91 árs og
í fyrra létum við ágóðann af
kvennahlaupinu renna til
gönguhópsins. Pær notuðu
aurana til að gera sér glaðan
dag og gerðu sér ferð yfir á
Djúpavog, drukku þar kaffi og
létu sér líða vel. Þetta árið
rennur hins vegar ágóðinn til
byggingar íþróttahússins sem
beðið er eftir með tilhlökk-
un."
Bakkafjörður er eini stað-
urinn á landinu sem hefur ver-
ið með 100% þátttöku í
kvennahlaupinu. Freydís
Magnúsdóttir hefur umsjón
með hlaupinu þar á bæ. Þegar
við spyrjum hana hvers vegna
þátttakan hjá þeim sé svona
mikil segist hún halda að það
sé vegna mikillar samheldni
sem skapist frekar á minni
stöðum: „Já, við höfum meiri-
háttar mætingu hér
og erum stoltar af því.
Meira að segja fólk sem
fer að öllu jöfnu ekki í göngu-
ferðir mætir í kvennahlaupið.
Við bjóðum upp á þrjár vega-
lengdir sem miðast við getu
hvers og eins. Það er boðið
upp á kaffi og safa og stund-
um bakkelsi með. Þetta er
mjög skemmtilegur dagur hjá
okkur og skapast góð
stemmning í hópnum."
Kvennahlaupið í Hvera-
gerði er með mjög sérstökum
brag og á þeim bæ verður
Ragnheiður Jónsdóttir fyrir
svörum: „Karlarnir okkar
voru nú ekki alveg sáttir við
það að við konurnar værum
einar að hlaupa og tóku ekki
annað í mál en að fá að vera
með. Þeir taka því virkan
þátt, en hlaupa öfugan hring!
Þegar þeir mæta okkur að
loknu hlaupinu færa þeir okk-
ur rósir og jafnvel kossa,
þannig að við erum alveg sátt-
ar við þátttöku þeirra. Þeir
kalla þetta góðlátlega „karl-
rembuhlaupið" og eru með
sérstaka boli merkta sér."
Ragnheiður segir að hlaupið
hefjist við grunnskólann og
séu leiðirnar tvær; annars veg-
ar 2,5 km og hins vegar 5 km.
Kjörís hefur haft veg og vanda
af því að bjóða upp á ís að
hlaupinu loknu og hlýtur það
að vera hressandi eftir hlaup-
ið.
:>lla á Stöðvarfirði lætur sig ekki
vanta í kvcnnahlaupiö.
Vikan 7
njóta samverunnar sem skap-
ast í kringum þessa íþrótt.
Fjóla Þorsteinsdóttir hefur
veg og vanda af kvennahlaup-
inu á Stöðvarfirði. "Viðætl-
um að hittast við félagsheimil-
ið klukkan 11 þar sem við
verðum með upphitun fyrir
hlaupið. Við bjóðum upp á 2-
3 mismunandi vegalengdir til
þess að allir geti verið með.
Það er mjög mikill áhugi á
kvennahlaupinu hér og árlega
taka 65-70 konur þátt í því.
Það er mikið um að konur
taki börnin með sér. Mér
finnst frábært hversu mikil
vakning hefur verið undanfar-
in ár varðandi hreyfingu og
íþróttir. Eg er með 35 manna
hóp í þolfimi og höfum við
gagn og gaman af því og kílóin
fjúka!11 Fjóla segir að einnig
sé starfandi gönguhópur sem
fer tvisvar í viku í gönguferðir