Vikan - 07.06.1999, Page 58
Hverju svarar læknirinn ?
Þorstcinn Njálsson hciinilislæknir
Kœri lœknir,
Upp á síðkastið hef ég
öðru hverju fengið óstjórn-
legan kláða í fót- og hand-
leggi. Þetta lýsir sér þannig
að þegar kláðinn byrjar er
húðin heil á yfirborðinu, en
undir henni hafa myndast
litlir nabbar eins og stíflaðir
fitukirtlar í hnapp. Eg klóra
náttúrulega rosalega (stund-
um óafvitandi) og svæðið
breytist á u.þ.b. 2 dögum,
kláðinn hættir en eftir sitja
lítil ör eða rauð göt í húð-
inni. Þetta endurtekur sig
síðan annars staðar á út-
limunum. Mér datt fyrst í
hug starrafló, en þetta er á
mjög afmörkuðum stöðum
og í „klösum". Er ástæða til
að gera eitthvað í málinu
(annað en að klóra sér?
Jóa.
Sœl Jóa mín,
Kláði og kláðablettir,
eins og þú lýsir, eru dul-
arfullt fyrirbæri sem
ekki finnst alltaf ein-
hver skýring á. Stund-
um eru þeir merki um
ofnæmi, m.a. fyrir lyfj-
um, en líka getur verið
um að ræða sjaldgæf
efnaskiptavandamál
(s.s. lifrarvandamál) í
mörgum tilvikum virð-
ast ekki vera neinar lík-
amlegar ástæður til
staðar, en mjög oft hafa
einstaklingar tengt
þetta álagi og virðist
þetta hverfa við að tek-
ið sé á því. Algengt er
að læknar ávísi ofnæm-
islyfjum (andhistamín-
um) til inntöku við
kláða, en þessi lyf geta
verið varasöm. Einnig
er oft ávísað steraá-
burði sem einungis á að
nota í hófi. Hægt er að fá í
apótekum og heilsubúðum
áburði við kláða. Það hefur
reynst vel að nota feit
smyrsli eins vaselín, en
einnig er hægt að fá kælandi
smyrsli, oft blönduð
mentóli, en vandamálið er
að þau þurrka oft húðina og
til lengri tíma geta því
vandamálin orðið meiri.
Gott er líka að kæla niður
húðina, fara í bað, ylvolga
sturtu eða leggja á kláða-
blettina kalt handklæði eða
kaldan klút. Ég hef séð góð-
an árangur nást með smá-
skammtalyfjum, en vísa á
heilsubúðir með þær leið-
beiningar og annað sem þær
kunna að hafa upp á að
bjóða.
Gangi þér vel
Þorsteinn
Kœri Vikuiœknir
Ég er 18 ára og er alltaf
með útferð sem ég skil ekki
af hverju stafar. Ég hef mjög
reglulegar blæðingar þótt
þær séu frekar miklar, en út-
ferðin er eiginlega allan
mánuðinn. Stundum fylgir
henni sviði, stundum ekki.
Það er aldrei nein vond lykt,
en stundum er útferðin svo-
lítið gulleit. Ég finn ekkert
til fyrir utan sviðann stund-
um, en ég bara veit ekki
hvort þetta á að vera svona
og hef ekki þorað að tala
um þetta við neinn.
P.S. Ég fæ þó alltaf mikla
verki með blæðingum.
Ein 18 ára.
Sœl kœra 18 ára
Útferð eða slímfram-
leiðsla í leggöngum er út af
fyrir sig eðlilegur hluti af lífi
konu sem er frjósöm. Eðli-
leg útferð er glær, með ein-
staka hvítum rákum eða al-
veg hvítleit og henni fylgir
hvorki kláði eða vond lykt.
Sumum konum finnst út-
ferðin óþægilega nrikil með-
an öðrum finnst þær ekki
hafa nægilega mikla slím-
framleiðslu til að geta stund-
að kynlíf án þess að þurfa að
nota mýkjandi smyrsli, hvort
sem það er vaselín eða hið
vinsæla KY-gel. Þegar þú
finnur vonda lykt, færð
kláða eða litur kemur á út-
ferðina er hins vegar rétt að
láta skoða málið nánar.
Hvað við læknar finnum fer
náttúrlega eftir mörgu, en
flest svör ráðast af kynlífi
þínu, þ.e. hvort þú sért í
föstu sambandi eða hversu
varlega þú ferð ef þú ert það
ekki. Eftir því fer það
hversu nrikil hætta er á sýk-
ingum. Vissulega er hægt að
fá sérstök lyf í apótekum við
útferð af völdum sveppa, en
það er oft fleira á ferðinni
en sveppir og því rétt að láta
taka sýni úr útferðinni
a.m.k. á meðan þú ert að
finna út hvað einkenni þín
tákni og hvort þú teljir þig í
hættu að fá kynsjúkdóma,
aðallega klamýdíu, eða ekki.
Það eru hins vegar margar
konur eins og þú sem eru
feimnar að tala um þessa
hluti. En mundu bara að
þetta er eðlilegur hluti af líf-
inu og það má alltaf finna
einhvern lækni sem þú
treystir til að ræða við um
þessa hluti. Bæði kvensjúk-
dóma- og heimilislæknar
fást við svona vandamál í
miklum mæli. Mörgum kon-
um finnst betra að ræða við
konur um þessa hluti og þá
er bara að panta tíma hjá
konu sem er læknir, öðrum
er alveg sama bara ef þær
treysta sínum lækni og þá
fara þær til hans. Mundu
ávallt að kynlíf og kynfæri
eru eðlilegur hluti af lífi
þínu og líkama sem þú átt
að kynnast og leyfa að vera
hluti af sjálfri þér. Þú nefnir
líka miklar blæðingar og
verki samfara þeim, en því
ætla ég að svara í næsta
blaði.
Þorsteinn
Spurningar má
senda til „Hverju
svarar læknirinn?“
Vikan, Seljavegi 2,
101 Reykjavík.
Farið er með öll
bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
58 Vikan
Netfang: vikan@frodi.is