Vikan - 28.09.1999, Page 10
Einelti er algengt vandamál í íslenskum skólum. Það er sennilega einnig það
vandamál sem einna erfiðast er að leysa. Mikil umræða hefur verið um einelti i
samfélaginu undanfarið og nokkrir fullorðnir einstaklingar sem þurftu að þola
einelti í æsku hafa stigið fram á ritvöllinn og sagt frá því hversu hræðilegt það
var að þurfa að þola ofbeldi. í Ijósi þessa er undarlegt hversu mikill vandræða-
gangur virðist oft einkenna viðbrögð fullorðinna við eineltisvandamálum.
Rauði Krossinn hélt á dögunum ráðstefnu um börn og áföll og þar flutti banda-
rískur sálfræðingur, Teri Elliot, erindi um hvernig foreldrar og skólakerfið geti
unnið saman að því að hjálpa börnum sem þurfa að þola ofbeldi.
ESv’
Eitt af umkvört-
unarefnum
þeirra sem
verða fyrir ein-
elti er að yfir-
gangsseggurinn (bully) fái
alla athyglina og allt sé gert
til að leysa hans vanda með-
an þolandinn verður út und-
an. Er eðlilegt að svo sé?
„Þetta er að hluta rétt,"
segir Teri. „Einhverjir yfir-
gangsseggir búa við erfiðar
aðstæður en síðan eru aðrir
sem hafa lært að ofbeldi
hjálpi þeim til að ná sínu
fram og þeir einfaldlega
nota það sem skilar árangri.
Þeim þarf að kenna að beita
öðrum aðferðum í samskipt-
um sínum við annað fólk. Þú
talar um að þegar börn eru
annars vegar sé eins og
vandræðagangurinn verði
meiri en þegar fullorðnir
eiga í hlut. Ég tel að það sé
alveg rétt. í Bandaríkjunum
notum við gjarnan orðatil-
tækið að strákar séu og
verði strákar. Við yppum því
öxlum þegar þeir fljúgast á
og hugsurn með sjálfum
okkur, jú vissulega slást þeir
en þeir vaxa upp úr því. Ég
tel það ekki heilbrigt við-
horf því drengir þurfa ekki
að vera ofbeldishneigðir.
Við höfum tilhneigingu til
að halda að svo lengi sem
við leiðum óþægindin hjá
okkur hverfi þau af sjálfu
sér."
Mikilvægt að bregðast
snemma við
Einelti getur farið leynt til
að byrja með. Oftast byrjar
þetta með stríðni og þá er
ákaflega algengt að þoland-
anum og hegðun hans sé
kennt um ástandið. Ofbeldið
fer stigvaxandi og þegar það
orðið svo augljóst að erfitt er
að loka augunum fyrir því
hvað gengur á er eins og illa