Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 12
en hann er einstaklingur
sem hefur verið særður. Ég
held að þegar grannt er
skoðað eru einnig til yfir-
gangsseggir sem líða fyrir
það sem þeir gerðu í æsku.
Oft sáust þeir ekki fyrir
vegna þess að hópur barna
getur misst stjórn á sér og
eggjað hvert annað áfram.
Þið vitið þegar einhverjir
tveir slást á skólalóðinni og
börnin hópast að og hrópa:
„Áfram! Áfram!" Þetta
kennir til að mynda drengj-
um að þeir verði að tileinka
sér hörku. Eina leiðin til að
sporna við þessu er að skapa
sterkt samfélag innan skól-
ans sem byggir á samhjálp.
Það má gera t.d. með hóp-
vinnu þar sem yfirgangs-
seggur er settur í lið með
veikari einstaklingi og þeir
látnir vinna saman, mark-
rniðið kann að vera að vinna
einhverja keppni og þá
verður að reyna á hæfileika
beggja. Auðveldlega ætti að
vera hægt að koma hlutum
þannig fyrir að börnin lærðu
að þekkja hvert annað ekki
aðeins sem yfirgangsseggur
og þolandi heldur sem
bekkjarfélagar. Það er svo
miklu erfiðara að ráðast á
þann sem þú þekkir heldur
en hinn sem er ókunnugur.11
Teri bendir okkur á að
efla samfélagsvitund innan
skólans, það sé besta vörn
einstaklingsins gegn einelti.
Það er réttur hvers barns að
því líði vel í skólanum og
það þurfi ekki að kvíða
skóladeginum. Barnasátt-
máli sameinuðu þjóðanna
og íslensk lög tryggja þeim
þann rétt og það er stjórn-
enda skólanna að móta um-
gengnisreglur í samræmi við
þessar almennu leikreglur
íslensks samfélags.
arar geti leikið stærra hlut-
verk í að koma í veg fyrir
einelti. Oft eiga þeir erfitt
um vik vegna þess hve leynt
þetta getur farið og vegna
þess að stuðningur skóla-
stjórnenda er ekki nægur en
stundum hafa kennarar til-
hneigingu til að líta fram hjá
smáatriðunum. Ef þeir láta
hjá líða að bregðast við litlu
atvikunum hafa þau til-
hneigingu til að vaxa og
verða að stóru og erfiðu
vandamáli sem er ákaflega
erfitt að eiga við, jafnvel er
hugsanlegt að svo illa geti
farið að einhver verði fyrir
alvarlegu líkamlegu ofbeldi
eða stórum fjárhagsskaða.
Það má einnig benda á að
samkvæmt rannsóknum
hafa yfirgangsseggir meiri
tilhneigingu en aðrir til að
leiðast út á glæpabraut og
enda oftar í fangelsi svo það
er heldur ekki verið að gera
þeim neinn greiða með því
að gera ekki neitt. Þetta er
verðugt umræðuefni innan
bekkjar, að segja börnunum
frá að þeir sem beiti ofbeldi
hafi ekki lært hvernig góð
samskipti eiga að vera og
biðja þau að leita leiða til að
hjálpa slíkum einstaklingi,
benda þeim á að það sé á
þeirra ábyrgð að hjálpa
þeim á rétta braut."
Skapa þarf sterkt sam-
félag innan hvers skóla
Er þetta ekki enn einn
anginn afþví að yfirgangs-
seggurinn þurfi hjálp og
minna þurfi að hlúa að þol-
andanum því rannsóknir
sýni að hann standi sig yfir-
leitt betur í lífinu síðar?
„Að skýla sér bak við það
að þolandanum gangi yfir-
leitt betur í lífinu er bara að-
ferð til að koma sér hjá því
að gera nokkuð. Þolandinn
kann að standa sig ágætlega