Vikan


Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 23

Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 23
Það voru stoltir foreldrar sem birtust anddvri sjúkrahússins til að sýna uni- heiniinum fallegan son. Aiexandra er mikil harnagæla og nú hefur langþráður drauinur um að eignast harn ræst. Eftir að hún varð prinsessa fckk hún litla frænku í hciinsókn frá hcimalandi sínu og gat varla haft augun af henni. j i i * 1 ,fy | k ___ •'* : ,S' • ■ Ssií au Jóakim og Al- exendra gengu í hjónaband fyrir fjórum árum. Fjöimiðlar fóru fljótlega að þrýsta á þau að eignast erfingja. Sögusagnir um erfiðleika varðandi barn- eignir komust jafnframt á kreik. Það var svo í mars á þessu ári sem Jóakim og Alexandra til- kynntu að barn væri væntan- legt í september. Alexandra, sem er 35 ára gömul, heillaði dönsku þjóðina á nokkrum vik- um. Hún er ákaflega vinsæl og Danir eiga í henni hvert bein þótt hún sé ættuð frá og upp- alin í annarri heimsálfu. Aiexandra sinnti opinberum skyldustörfum á meðgöngunni og þótti sérlega falleg verðandi móðir, hún hreinlega blómstr- aði. Það var svo þann 29. ágúst sem barnið var tilbúið að koma í heiminn og Alexandra fékk sínar fyrstu hríðir. Tíu klukkutímum síðar var fæddur lítill og fíngerður drengur, 2655 grömm og 48 sentímetrar. Fæðingin gekk mjög vel fyrir sig. Það var stoltur faðir sem boðaði til fréttamannafundar fyrirframan Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn og tilkynnti dönsku þjóðinni og heiminum öllum að lítill drengur væri fæddur. Hann brosti út að eyr- um og sýndi með miklum tilþrif- um hversu stór sonurinn væri. Mæðginin dvöldu á sjúkra- húsinu í fimm daga. Rrinsinn fékk margar góðar gjafir og fjöldi tignra gesta leit inn á sjúkrahúsið til að kíkja á krílið. Á meðan á sjúkrahúsdvölinni stóð jók Alexandra enn vin- sældir sínar þegar hún fór með litla drenginn inn á barnadeild og leyfði mikið veikum börnum að berja hann augum á undan almenningi. Börnin voru alsæl með heimsóknina og teiknuðu myndir og bjuggu til gjafir handa prinsinum. Foreldrar þeirra áttu vart til orð yfir hugul- semi Alexöndru og sögðu hrærðir að heimsóknin hefði létt börnum þeirra lífið. Danska þjóðin beið með eft- irvæntingu eftir fæðingu kon- ungsborins barns og því ríkti mikill fögnuður í landinu. Reyndar er kominn töluverð pressa á Friðrik krónprins að fara að festa ráð sitt en hann lætur það ekki á sig fá. Daginn sem litli prinsinn fór heim var mikill mannfjöldi sam- ankominn fyrir framan sjúkra- húsið og veifaði danska fánan- um. Foreldrarnir birtust í and- dyrinu ásamt Ijósmóður og fæðingarlæknum og gáfu Ijós- myndurum og blaðamönnum tækifæri á að sjá prinsinn. Þau voru kát og svöruðu spurning- um ákafra blaðamanna. Alexandra var eins og fyrir- sæta, hún var glæsileg og leit ákaflega vel út. Hún gat varla litið af litla gullmolanum sínum og er greinilega mjög stolt móðir. Hún upplýsti að drengurinn væri algjört draumabarn sem hún hefði beðið eftir að eign- ast. Litli gullmolinn, eins og hún kallar drenginn, væri þæg- ur og rólegur. „Það var ólýsanlegt augna- blik þegar hann kom í heiminn. Þetta litla kríli sem ég var búin að tengjast í níu mánuði var allt í einu komið í fangið á mér. Þetta var stórkostlegasta stund lífs míns. Jóakim var við hlið mér allan tímann, nuddaði á mér axlirnar og hélt í höndina á mér. Mér finnst erfitt að hafa augun af syni mínum, sérstak- lega þegar hann sefur!" Að sögn Alexöndru er Jóakim mjög efnilegur faðir. Hann er duglegur í bleiuskipt- unum og tekur virkan þátt í um- mönnun sonarins. Alexandra ætlar að reyna að hugsa sem mest um drenginn sjálf en fær þó aðstoð frá ungri konu, Dorte Ahrends þegar hún þarf sjálf að sinna skyldustörfum. „Amma hans er svolítið upptek- in," bætti Alexandra við og hló þegar hún var spurð um barn- fóstrumálin. Foreldrarnir eru ekki ennþá búnir að gefa prinsinum nafn. Alexandra sagði að þau köll- uðu hann bara „þann litla" enn- þá en ætluðu að velja nafn þegar þau væru búin að kynn- ast honum aðeins betur. Hvað uppeldismál varðar sagði Alexandra: „Við ætlum að aia hann upp við mikla ást- úð og hlýju. Maður á ekki að vera strangur við lítil börn. Hann er ennþá svo rólegur og góður að það er yndislegt. Við verðum svo bara að sjá hvað tekur við seinna meir." Danskir fjölmiðlar hafa velt því mikið fyrir sér hverjum prinsinn líkist helst en móðir hans var ekki lengi að svara því: „Hann líkist sjálfum sér. Mér finnst hann miklu fallegri en foreldrarnir" sagði hún og brosti blíðlega til sonar síns. Ljósmóftirin. Edit Clement, revndist bæði Alexöndru og litla prinsinuin sérlega vel. Hún tók hann í fangiö og kvaddi áöur en niæðginin yfirgáfu sjúkrahúsið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.