Vikan - 28.09.1999, Qupperneq 29
nokkra skýringu á framferði
mínu. Mér var sagt að bfll
mannsins hefði verið skoð-
aður þarna um nóttina og
ekki fundist rispa á honum.
Mér létti talsvert við að
heyra það. Þó var ég afar
ósátt við að maðurinn kæm-
ist upp með að eyðileggja
fötin mín og lemja mig svo
að sá á mér. Það er eiginlega
ólýsanleg tilfinning þegar
ráðist er svona á mann og
eins og öll takmörk hafi ver-
ið vanvirt. Mér fannst líkami
minn hafa verið svívirtur og
ég niðurlægð.
Það leið dágóður tími og
ég var u.þ.b. að gleyma
þessu þegar síminn hringdi
heima hjá mér einn daginn
þegar ég var á kafi í
próflestri í Háskólanum og
það var þessi hræðilegi mað-
ur. Hann var kumpánlegur í
símanum og sagðist að vísu
hafa verið aðeins of harð-
hentur við mig en nú væri
komið að skuldadögum. Það
væri rispa á nýja bílnum
rétti og þetta var orðið
nokkuð dýrt kvöld; 70,000
króna viðgerð á bíl og fata-
tjón upp á alla vega 50,000
krónur. Svo ekki sé minnst á
hið tilfinningalega og líkam-
lega tjón sem ég varð fyrir.
Rannsóknarlögreglumaður-
inn ráðlagði mér að svara
ekki manninum heldur
skildi ég bíða og sjá hvort
hann leggði fram kæru. Ég
hefði líka átt að fá áverka-
vottorð hjá lækni til þess að
geta kært manninn fyrir lík-
amsárás. Það nægði sem
sagt ekki að tvær lögreglu-
konur hefðu horft á mann-
inn ráðast á mig.
Málalok fóru á þann veg
að mér var gert að greiða
40,000 krónur fyrir þessa
rispu sem sást ekki við skoð-
un á bílnum hina örlagaríku
nótt. Maðurinn hafði mætt
nokkrum dögum eftir atvik-
ið með bílinn í skoðun hjá
lögreglunni og gat þá bent á
rispu. Var ekki mögulegt að
rispan hefði komið í millitíð-
Sönnunargagnið i málinu, sem var spariskórinn minn,
fannst hins vegar aldrei og eftir á að hyggja sé ég að ég
hefði ekki átt að henda fötunum mínum, heldur geyma þau
sem sönnunargagn um árásina (a la Monica Lewinsky!)
hans eftir skóinn minn og ég
ætti að greiða honum 70,000
krónur fyrir sprautun. Ég
var mjög reið yfir því að
maðurinn skyldi voga sér að
hringja inn á heimili mitt og
spurði hvernig hann hefði
fengið númerið mitt. Hann
sagðist eiga vin hjá lögregl-
unni sem hefði reddað því.
Svona nokkuð er hins vegar
bannað með lögum.
Vinkonan forðaðist mig
Ég fór strax á fund rann-
sóknarlögreglu til þess að
ræða stöðuna. Mér fannst ég
hafa verið beitt miklu mis-
inni?
Sönnunargagnið í málinu,
sem var spariskórinn minn,
fannst hins vegar aldrei og
eftir á að hyggja sé ég að ég
hefði ekki átt að henda föt-
unum mínum, heldur geyma
þau sem sönnunargagn um
árásina (a la Monica Lewin-
sky!).
Ég hringdi annað slagið í
vinkonu mína sem hafði far-
ið út með okkur þetta kvöld
en hún var alltaf dauf í dálk-
inn og ólík sjálfri sér. Ég tók
líka eftir því að hún hringdi
ekki lengur í mig að fyrra
bragði og það fór að setja að
mér ónotakennd. Að lokum
gekk ég á hana og spurði
hvort ég hefði á einhvern
hátt sært hana eða móðgað.
„Nei, elskan mín. Það hefur
þú aldrei gert,"
var svar hennar.
Ég saknaði fé-
lagsskaparins og
var alltaf að
reyna að finna
skýringu á hegðun hennar.
Mig dreymdi hana oft á
nóttum. Þegar þrír mánuðir
voru liðnir frá hinu hræði-
lega kvöldi, þjarmaði ég að
henni og sagðist eiga heimt-
ingu á að vita hvers vegna
hún forðaðist mig. Að end-
ingu lét hún undan og sagði
mér sannleikann í málinu.
Maðurinn minn hafði káfað
viðstöðulaust á henni þetta
kvöld sem við vorum saman
að skemmta okkur og haft í
frammi, nær stöðugt, kyn-
ferðislega tilburði. Hún
sagðist hafa orðið fyrir
miklu áfalli og hreinlega
ekki treyst sér til þess að
koma inn á heimili okkar og
láta sem ekkert væri.
Nú voru loks öll kurl
komin til grafar og ég gat nú
skilið að hafa í bræði minni
sparkað af mér öðrum skón-
um, sem þurfti endilega að
lenda á bfl.
í dag erum við hjónin
skilin og við vinkonurnar
höfum tekið upp þráðinn
þar sem frá var horfið. En
mér verður oft hugsað til
þess að þegar ég keypti
þessa fallegu spariskó, óraði
mig ekki fyrir hvað það átti
eftir að leysa úr læðingi.
Lesandi segir
Hrund
Hauksdóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni
meö okkur? Er eitthvað
sem hefur haft mikil áhrif
á þig, jafnvel breytt lífi
þínu? Þér er velkomið að
skrifa eða hringja til okk-
ar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
1 k imili'.l;m”iO er: Vikan
- .,l.ílsrc\ nslusu^u". Seljavcgur 2,
101 Keykjavík,
Netlau(;: vikan@frixli.is