Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 40
• Bæsið stóra hjartað með brúnu bæsi.
• Málið egg (andlitið) og fætur í andlitslit.
• Málið kúlurnar tvær (skóna) svartar.
• Málið minna hjartað með einhverjum lit úr kjóln-
um.
• Pússið yfir hjörtun og kúlurnar með meðalgrófum
sandpappír.
• Klippið u.þ.b. 10-12 sm. langan bút af 4 sm. breiðu
prjónaefni (sokkur) og saumið saman þannig að
hann myndi strokk. Útbúið tvö slík stykki.
• Færið sokkana upp á prikin sem eiga m.a. að
mynda fætur dúkkunnar og skrúfið þau föst á
stóra hjartað.
• Límið kúlurnar tvær framan á prikin (skór.)
• Búið til stjörnur úr jútagarni og festið ofaná skóna
• Borið fyrir skrúfu ofarlega á prikin og festið þau
saman.
• Sníðið hendur, saumið saman á röngunni og snúið
þeim við. Fyllið hendurnar til hálfs með troði.
• Límberið prikin að ofan rækilega með límbyssu og
festið hendurnar við prikin.
• Sníðið kjólinn (sjá efni í kjól), 1 heilt berustykki
(ath. ekkert hálsmál), 2 stk. pils, 2 stk. ermar, 2
stk. líningar.
• Rykkið pilsin að ofan. Rykkið ermar að ofan.
Saumið pilsin neðan á berustykkið. Saumið erm-
ar á hlið berustykkis, en skiljið eftir 2-3 sm. báð-
um megin. Saumið líningu neðan á ermarnar.
Að endingu eru hliðarnar saumaðar saman, frá
armlíningu og niður úr.
• Berið vel af lími á hendurnar og límið kjólinn
fastan ofan á prikin. Klæðið hendur í ermar og
brettið inná þær.
• Faldið kjólinn eða festið blúndu neðan á.
• Berið vel af lími ofan á kjólinn og festið höf-
uðið á.
• Borið göt í litla tréhjartað og þræðið jútagarn
í gegnum þau. Bindið við hendurnar.
• Þræðið blúndu um hálsinn.
• Búið til slaufu úr basti og festið aftan á dúkkuna
með lími úr límbyssu.
Gangi ykkur vel