Vikan


Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 45

Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 45
EftirDiane Guest. Þórunn Stefánsdóttir þýddi. Kaiser var ánægður með af- köstin. Bókinni miðaði vel áfram og hann var að setja lokapunktinn við einn kafl- ann þegar frú Minstrell kom inn til hans. Það er kominn ungur, æstur gestur til þín. Christian æddi inn áður en hún gat sagt meira. Kaiser, sagði hann móður og másandi. Þú verður að koma strax! Þú verður að hjálpa okkur Hildy. Hann var svo óðamála að Kaiser skildi varla hvað hann sagði. Taktu því rólega, félagi, sagði hann. Hvað gerðist? Það er máfur í fjörunni, sagði Christian og sagði honum allt af létta. Eg vil gjarnan hjálpa ykkur, sagði Kaiser, en það er bara einn hængur á. Er það rétt skilið að enginn megi vita af þessu? Christian kinkaði ákafur kolli. En hvernig kemst ég niður á stöndina óséður? Vissulega þykir mér vænt um máfa en ekki nóg til þess að ég vilji eiga það á hættu að hætta lífinu við að klifra yfir gaddavírsgirðinguna. Það er gamall árabátur hérna fyrir neðan, sagði frú Minstrell. Þú getur farið á honum og róið fyrir girðing- una. Hversu gamall er hann? Mjög gamall. Hann lekur svolítið en er samt í nothæfu ástandi. Kaiser leit á Christian. Lof- ar þú því að hringja í strand- gæsluna ef báturinn sekkur! Eg lofa því, svaraði Christi- an að bragði. Allt í lagi, sagði Kaiser. Flýttu þér til baka og segðu Hildy að ég komi rétt bráð- um. Eg tek með mér skæri og eitthvað til þess að sótt- hreinsa sárið með. Christian hvarf áður en Kaiser gat sagt meira. Af hverju bað hann ekki pabba sinn um hjálp? spurði frú Mistrell. Kaiser hristi höfuðið en hann vissi svarið. Hann hafði séð það kvöldið áður í ísköldum augum Julians Ferrare. Frú Minstrell hafði greini- lega ekki ýkt þegar hún sagði bátinn leka „svolítið". Kaiser hafði ekki róið langt þegar vatnið náði upp að ökklum. Sem betur fer var sjórinn lygn. Hann gat sleppt árunum og ausið bát- inn og það varð hann að gera nokkrum sinnum. Loks komst hann fyrir girðinguna og til barnanna. Það tók Kaiser aðeins örfáar sekúndur að losa máfinn. Svo hellti hann úr hálfri flösku af sáravatni yfir vænginn og kannaði varlega hvort hann væri brotinn. Allt leit út fyrir að vera í stakasta lagi. Eruð þið með eitthvað handa honum að borða? spurði hann. Hildy kinkaði kolli. Hún dáðist að því hvað Kaiser hafði farið mjúkum höndum um fuglinn. Christian kom með kexið. Leggðu það fyrir framan hann og við skulum sjá hvað gerist, sagði Kaiser og sleppti fuglinum. Christian braut kexið í litla bita og lagði þá á sandinn. Máfurinn hoppaði áfram og hámaði í sig kexið. Máfar eru sjaldan of veikir til þess að geta borðað, sagði Kaiser. Þetta tókst vel, sagði Christ- ian. Hann reyndi ekki einu sinni að bíta þig! Eg held að hann hafi verið of þreyttur til þess, sagði Kaiser. Hann skildi að þú varst að hjálpa honum, sagði Hildy. Eg vildi óska þess að hann flygi í burtu til þess að við gætum séð hvort það er allt í lagi með hann. Það var eins og máfurinn skildi hana, því hann hopp- aði varlega áfram, stansaði og leit í kringum sig eins og hann væri steinhissa á því að komast áfrarn. Svo breiddi hann úr vængjunum og flaug út yfir hafið. Fínt, sagði Christian, það er ekkert að honum! Hildy horfði aðdáunaraug- um á Kaiser. Hann var svo ólíkur pabba hennar. Julian var sterkur og áhrifamikill maður en hann sýndi þeim aldrei blíðu. Stundum varð hún hrædd þegar hún horfði í kuldaleg augu hans. En það var ekki nokkur leið að vera hræddur við Kaiser. Hún stífnaði upp þegar hún heyrði hrópað uppi á bakk- anum. Það var rödd Julians og hún var viss um að það hafði komist upp um þau. Hún slakaði á þegar hún heyrði að hann var að kalla á mömmu hennar. Það er líklega best að við komum okkur héðan, sagði Kaiser. Þið getið hjálpað mér að koma bátnum út og klifrað upp á bakkann þegar pabbi ykkar er farinn inn. Það tók þau ekki nema augnablik að koma bátnum út. Kaiser hoppaði um borð en stóð í vatni upp í mitti áður en hann gat svo mikið sem lagt af stað. Báturinn sökk rólega til botns. Ó Kaiser, sagði Hildy. Hvað getum við gert? Kaister stundi og óð í land. Hann hafði ekki áhyggjur af sjálfum sér en hann vildi ekki að börnin lentu í vand- ræðum. Ég klifra upp á bakkann með ykkur, sagði hann. Ég lauma mér í gegn- um hliðið á veggnum þegar þið eruð komin klakklaust inn. Þau skriðu hljóðlega upp bakkann. Þegar þau voru komin næstum því alla leið gaf Kaiser börnunum merki um að doka við. Hann kíkti upp á bakkann og snarstans- aði. Julian Ferrare stóð beint fyrir framan hann. Hann var svo nálægt að Kaiser sá í tærnar á skónum hans. Francesca, hrópaði Julian til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.