Vikan - 23.11.1999, Page 15
„Fyrsta nóttin okkar var
dásamleg, eftir að hafa
upplifað iafn unaðslegar
stundir var ég ákveðin í að
láta ekkert koma í veg fyr-
ir samband okkar."
Anna Heche er ófeimin við
að ræða um líf sitt í hnotskurn.
Hún átti erfiða æsku og ólst
upp við mikla fátækt. Faðir
hennar var sölumaður og org-
anisti í kirkjunni. Þegar Heche
var fjórtán ára lést hann úr al-
næmi. Hann var samkynhneigð-
ur en hafði lifað tvöföldu lífi.
„Við sögðum aldrei sannleik-
ann í minni fjölskyldu. Við vor-
um mjög fátæk en sögðum öðr-
um að við hefðum það fínt.
Fjölskyldan var brotin og
sundruð en við litum út fyrir að
vera samheldin, traust fjöl-
skylda. Faðir okkar lifði tvö-
földu lífi en við létum sem ekk-
ert væri. Allt sem við sögðum
var helber lygi."
Heche er einungis þrjátíu ára
gömul og hóf leiklistarferilinn
með leik í sápuóperum. Hún
lék í þeim í fjögur ár en það var
svo árið 1993 að hún lét draum-
inn rætast og fór að leika í kvik-
myndum. Hún var heppin og
fékk mörg góð hlutverk. Hún
elskar að fást við kvikmyndir
og vonar innilega að hún geti
stundað leik sinn áfram þrátt
fyrir samkynhneigð sína. f dag
eru liðin tvö ár síðan þær stöllur
birtust saman fyrir framan
myndavélarnar. Heche er enn-
þá að leika í kvikmyndum en
óskar þess að fá bitastæðari
hlutverk.
Hvað framtíðina varðar þá
segir Heche: „Ég vona að fólk
verði upplýstara í framtíðinni.
Mín ósk er sú að engin leikkona
þurfi að ganga í gegnum það
sem ég gekk í gegnum. Ég vona
að ástandið verði þannig að all-
ar samkynhneigðar konur geti
sagt: Ég er samkynhneigð og
það skipti nákvæmlega engu
máli! Við Ellen viljum gifta
okkur um leið og lög gera ráð
fyrir því að samkynhneigðir
megi giftast. Ég bíð mjög
spennt eftir þeim úrskurði. Við
höfðum gengið í gegnum meira
í okkar stutta sambandi en
mörg pör gera á þrjátíu árum.
Ég óska engum svo ills að hann
þurfi að ganga í gegnum slfkt
hið sama."
„Það er með ólíkínd-
um hve heimskt fólk
getur verið. Ef ég
væri að leika hriggja
barna móður, há væri
ég að leika hví ekki
er ég móðir í raun-
veruleikanum. Á
sama hátt var ég að
leíka ástkonu Fords í
kvíkmyndinni, ég er
Jiað ekki í alvörunni.
I hessum heimi snýst
allt um að leika og
hví skíl ég ekki af
hverju kynhneigð
mín skiptir svona
miklu máli.“