Vikan - 23.11.1999, Page 18
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Myndir: Hreinn Hreinsson og Lárus Karl Ingvason
Lárus Einarsson
eyðir ófáum vinnu-
stundum í bílskúrnum
sínum, rétt eins og marg-
ir aðrir karlmenn. Við-
fangsefni Lárusar hlýtur
þó að teljast frábrugðið
hefðbundnum bílavið-
gerðum; hann býr til gull-
fallegar englastyttur sem
nota má sem kertastjaka.
Verndari jurdarinnar.
Lárus eða Lalli engill
eins og vinir hans
kalla hann, hefur
dundað sér við
englagerðina í nokkur ár.
Hann hefur komið sér fyrir í
fallegu húsi sem stendur við
Hafnarfjarðarhraunið. Bíl-
skúrinn er himnaríki líkastur,
fullur af englum.
Lárus var kominn í gott
starf sem bátsmaður á togara
þegar hann lenti í alvarlegu
slysi og varð að gefa sjó-
mennskuna upp á bátinn.
A meðan hann sat heima og
lét sér leiðast fann hann sköp-
unarkraftinn brjótast um
innra með sér. Hann ræddi um
þetta við vin sinn sem er
menntaður myndlistamaður.
Vinur hans ráðlagði honum að
kaupa gifs og prófa að móta
muni úr því. Byrjunin var ekki
glæsileg. Lárus hrærði gifsið í
fötu og tók sér síðan gott
kaffihlé. Pegar hann kom aft-
ur að fötunni fann hann gler-
harða gifskúlu. Til að gera
eitthvað ákvað hann að brjóta
gifsið í sundur og móta eitt-
hvað úr kúlunni. Fljótlega fór
falleg stytta að myndast í
höndunum á honum.
„Mér líður svo vel þegar ég
er að vinna að englunum, ég
kemst í sérstakt ástand. Þetta
er mjög sterk tilfinning. Ég
byrja alltaf á að hugleiða í smá
stund, bið oft bæn og byrja
svo að skapa úr gifsinu. Smám
saman myndast stytta í hönd-
unurn á mér. Fyrst þegar ég
byrjaði var ég ekki með bíl-
skúr og var því að vinna með
gipsið inni í eldhúsi. Þegar við
fórum að leita að nýju hús-
næði var það frumskilyrði að
þar væri bílskúr. Fyrsta daginn
voru hillur settar á einn vegg-
inn í stað bílskúrshurðar."
Englar með góða
strauma
Lárus hefur stundað engla-
smíðina í nokkur ár en haft
18