Vikan


Vikan - 23.11.1999, Page 29

Vikan - 23.11.1999, Page 29
reka alla áfram sem eru í kringum þig Lágt sjálfsmat er oft undirrót frekjunnar. Þú felur eigin vanmátt með því að reyna að stjórna öðrum. Vissu- lega get- ur stjórn- semi skilað góð- um árangri en að lokum fá þeir sem standa þér næst leið á því að fá aldrei að ráða ferð- inni. Hvað er til ráða? Reyndu að standast freistinguna að vera sífellt 1 að athuga hvernig gangi I þegar þú felur einhverjum verkefni. Gefðu maka þínum laus- ari taum, þið eruð jafningjar, hættu að koma fram við hann eins og foreldri. Vertu þátttakandi. Leit- aðu eftir verkefnum þar sem þú vinnur sem ein úr hópn- um í stað þess að stjórna. Milli 30 og 60 stig Þú veist vissulega hvernig þú átt að láta til þín taka en gerir þér einnig grein fyrir því að þú verður líka stund- um að leyfa öðrum að halda um taumana. Þú ert ekki óþolandi stjórnsöm á vinnu- stað en hefur meiri völd í samskiptum þínum við eig- inmanninn en þú gerir þér grein fyrir. ímyndaðu þér að þú gætir skipt um hlutverk við mann- inn þinn í eina viku. Myndi tilhugsunin um að hann tæki yfir viss verkefni koma út á 1 þér köldum svit- anum? Ef þú gríp- w ur sjálfa þig í því að segja hvað eftir annað: „Ef ég gerði ekki hlutina væru þeir aldrei gerðir", þá ættir þú að reyna að slaka svolítið á taumunum.Um leið og þú sættir þig við það að hver hefur sinn háttinn á munu samskipti þín við aðra batna. Hvað er til ráða: Næst þegar þú átt afmæli skaltu biðja manninn þinn að koma þér á óvart og þú munt komast að því hvað það getur verið miklu skemmtilegra Hafðu öll stóru markmið- in á hreinu. Skrifaðu niður fimm markmið sem þú vilt ná innan fimm ára. Lang- tímamarkmið hjálpa þér að ná betri yfirsýn yfir sigra og ósigra hversdagsins. Reyndu að gera þér grein fyrir ástæðu þess að þér finnst þú þurfa að stjórna öllum í kringum þig. Minna en 30 stig Þitt mottó er lík- lega: „Þetta er bara svona". Svör- in þín gefa til kynna að þú látir stjórnast af öðrum. Það er í lagi, svo framarlega sem þú gerir þig ánægða með það. Ef ekki, reyndu þá að standa fyrir máli þínu. Ef þú vilt taka stjórnina í þínar hendur þýðir það jafnframt að þú verður að axla meiri ábyrgð, en það mun líka gera þig sjáfsöruggari og ánægðari með lífið. Hvað er til ráða? Kyngdu ekki orðalaust því sem þú sættir þig ekki við Lestu sjálfsævisögur fólks sem þú berð virðingu fyrir. Þú hefur gott að því að sjá hversu margir hafa komist langt þrátt fyrir erfiðar að- stæður Lærðu af mistökunum og reyndu að koma í veg fyrir að þau endurtaki sig. 6 LEIÐIR TIL |>ESS AÐ SLAKA A 0G GERA LIFIÐ LETTARA 1. Forðastu streituvalda Ef þú ert kvíðin og langþreytt skaltu taka að þér færri verkefni og jafnvel að velta því fyrir þér hvort þú ættir að gera stórtækar breytingar í lífi þínu, eins og t.d. að skipta um starf eða vinna styttri vinnutíma. 2. Vertu góð við þig Gættu þess að fá nógan svefn, borðaðu hollan mat og reyndu að verja sem mestum tíma ( að gera það sem þú hefur gaman af. Ef þér líður vel hefur þú ekki eins mikla þörf fyrir að stjórna öllu og öllum. 3. Lærðu að stjórna tímanum Lærðu að segja nei þegar þú ert önnum kafin. Fáðu konu til þess að þrífa heimilið ef þú hefur efni á því og gerðu þér grein fyrir því að þinn tími er ekki síður dýr- mætur en tími annarra. 4. ímyndaðu þér lifið án þín Færi fyrirtækið sem þú vinnur hjá á hausinn? Myndi maðurinn þinn svelta ef þú værir ekki á staðnum til þess að elda ofan í hann? Nei, auðvitað ekki. Þú ættir að æfa þig í því að slaka á. Farðu í frí án þess að gefa starfsfé- lögum þínum upp símanúmer þar sem hægt er að ná til þín. Þú getur líka boðið fólki í mat og beðið alla að koma með einn rétt án þess að gefa þeim skýr fyrirmæli um hvað það á að vera. 5. Sættu þig við það að sumum hlutum getur þú ekki stjórnað Það er ekkert að því að stefna hátt en það getur reynst þér hættulegt að setja markið svo hátt að þú brotnir niður ef þér mistekst. 6. Trúðu vinum þinum fyrir liðan þinni Það er svo miklu auðveldara að ráða við vonbrigðin og efasemdirnar ef þú trúir vinum þínum fyrir þeim og þigg- ur frá þeim góð ráð og uppörvun.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.