Vikan


Vikan - 23.11.1999, Side 48

Vikan - 23.11.1999, Side 48
Samantekt: Hrund Hauksdóttir Það er mikið um dronningar og prinsessur í henni Hollywood enda er borgin sú fræg fyrir stórstjörnur og glæsikvendi. Hin hliðin á borg draumanna er su sem lýtur að klám- iðnaðinum og bar eru bað klamdrottníngar- nar sem fara með ueldissprotann. „Stariið hefur sínar skugga- hliðar því það getur reynst okkur mjög erfitt að öðlast virðingu fólks og að eignast maka," segir Juli Ashton. Stórstjarna á bláa tjaldinu Jenna Jameson er ekki nafn sem er á hvers manns vörum en hún er stórstjarna á bláa tjald- inu. Hún er jafnfræg og eftirsótt og Demi Moore er í hinni hefð- bundnu Hollywood. Jenna býr í lúxusvillu á Miami með risa- stórri sundlaug, safnar rándýr- um sportbílum og drekkur kampavín hvar sem hún fer. Hún fær á annað þúsund bréf í hverri viku frá aðdáendum sín- um um allan heim. Frægð henn- ar hefur þó sérstöðu því hún er bundin við klámiðnaðinn í Los Angeles sem gárungar kalla „hina Hollywood.” Þrátt fyrir litað hvítt hár og kjánalegt fliss, þá er Jenna langt frá því að vera heimsk ljóska. Líkt og margar aðrar klámdrottningar þá hefur hún notað framann til þess að fjárfesta auð sinn á skynsamlegan máta og er for- rík. Hún rekur fyrirtæki sem hannar föt, á póstverslun, er með eigin sjónvarpsþátt og á nektardansklúbb. Og Jenna er aðeins 25 ára gömul. Blómstrandi bransi Bandaríkjamenn eyða árlega rúmlega átta milljörðum doll- ara í klámástríðu sína en úrvalið í þeim efnum er nokkuð margbreytilegt. Um er að ræða vídeó, tímarit, símaþjónustu, kapalsjónvarpsstöðvar og nekt- ardansstaði. Þeir eyða næstum helmingi meira af peningum í þetta áhugamál sitt en í heim- sóknir í venjuleg kvikmynda- hús. Sá hópur neytenda sem neytir klámefnis fer sífellt stækkandi og sem dæmi má nefna að þess háttar mynd- bandaleiga hefur aukist úr 75 milljónum á ári frá árinu 1985, upp í 665 milljónir árið 1996. Klámefni er líka í auknum mæli í boði á kapalsjónvarpsstöðvum sem þýðir enn fleiri áhorfendur en áður. Meirihluti framleiðsl- unnar kemur frá San Fernando Valley sem er aðeins spölkorn frá Universal Studios. Þar er búið að koma á fót sannkallaðri draumamaskínu með eigin stúdíóum, umboðskrifstofum, aðdáendum stjarnanna, gagn- rýnendum og stórstjörnum. Stærstu og ríkustu stjörnur klámmyndanna er konur. Jenna Jameson er rakið dæmi um klámdrottningu á toppnum: „Þegar ég byrjaði í bransanum voru allir að spyrja mig hvort ég væri í kláminu í þeirri von að geta síðan komist að sem „venjuleg" leikkona. Það var hins vegar aldrei tilgangurinn. Ég hellti mér út í þetta af full- um krafti með það eitt að leið- arljósi að leggja klámheiminn að fótum mér. Ég vildi verða frægasta, vinsælasta og ríkasta klámdrottning í heiminum. Ég hef hugsað mér að setjast í helgan stein um þrítugt og lifa góðu lífi á vöxtum fjárfestinga minna." Það eru örugglega eng- ir draumórar hjá stúlkunni því sögusagnir herma að Jenna sé hæstlaunaðasta klámleikkonan frá upphafi en hún neitar að gefa upp nánari upplýsingar um laun. Það eru þó ekki aðallega kvikmyndirnar sjálfar sem færa þessum konum hæstu tekjurnar. Með því að koma fram á nekt- ardansstað með eitt dansatriðið fá þær u.þ.b. sjöhundruð þús- und krónur. Og þá erum við að tala um klámdrottningar sem eru rétt að byrja að verða fræg- ar. Smokkar settir á oddínn Jenna segir að enginn nái langt í klámheiminum ef hann telji vinnuna snúast eingöngu um það að stunda kynlíf: „Mað- ur þarf að vera ákveðinn og skýr í kollinum til þess að fá sem mest út úr þessu. Ég læt ekki bjóða mér hvað sem er og læt ekki peninga stjórna mér; ég stjórna þeim. Ég er ekki fórnar- lamb einhverra sóðakarla í bransanum því ég vel og hafna hlutverkum og handritum. Ég vinn líka ekki með hvaða leik- stjóra sem er, heldur vel þá sjálf. Með því að hafa tileinkað mér svona vinnubrögð hef ég áunnið mér ákveðna virðingu samstarfsmanna minna og það er ein helsta ástæða þess að ég hef náð svo langt sem raun ber vitni. En að sjálfsögðu tók þetta allt saman tíma. Ég byrjaði sem dansari í sýningunum í Las Veg- as en þar er ég fædd og uppalin. Mér lærðist hins vegar fljótlega að það er illa borgað og þá fór ég að strippa. Næsta skref voru svo klámblöðin og ég fór líka að prófa mig áfram í klám- myndum. Fyrsta myndin sem ég lék í var hræðileg upplifun þvf það er langt frá því að vera auðvelt að stunda kynlíf fyrir framan 30 manns! Ég man að ég skalf eins og hrísla og var skraufþurr í munninum. Ég lék ekki í annarri mynd í heilt ár á eftir." I dag leikur Jenna í 6 mynd- um á ári sem telst ekki mikið en hún hefur efni á því að velja að- eins það sem henni líst best á. Hún segist aldrei leika með nýj- um karlmönnum heldur ein- ungis vönum leikurum og fer ávallt fram á að smokkar séu notaðir: „Allir leikarar í klám- heiminum verða að sanna mánaðarlega að þeir séu ekki með eyðni, annars fá þeir ekki að vinna. Sumar stelpur, sem vilja ekki nota smokka, eru teknar fram yfir okkur sem vilj- um hafa smokka og það finnst mér ömurlegt. Því með því að nota smokka erum við að senda mikilvæg skilaboð út í þjóðfé- lagið." Erfltt að eignast maka Að mörgu leyti getur það verið langt frá því eftirsóknar- vert hlutskipti í lífinu að vera klámdrottning. Starfið hefur sínar skuggahliðar og það getur reynst klámdrottningum mjög 48 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.