Vikan - 23.11.1999, Qupperneq 52
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Að lifa daginn af
Situr þú við skrifborðið þitt gjörsam-
lega úrvinda af þreytu og þráir ekkert
heitar en að geta skriðið upp í hlýja
rúmið þitt. Ekki örvænta, við höfum
öll upplifað slíka daga. Til þess að lifa
daginn af er ágætt að fylgja þessum
heilræðum.
Sidu að komast í smá
un
10 mínútna slökun getur gert
kraftaverk á degi sem þessum. Ef
þú nærð að loka augunum og
slaka algjörlega á í ró og næði
færðu heilmikla orku. Ef þú hefur
ekki möguleika á slíkri dekurstund
er ágætt að fara út í göngutúr, fá
sér frískt loft eða jafnvel stinga
upp í sig einni lítilli piparmyntu.
Erfiðustu verkefnin fyrir hádegi
Það er auðveldast fyrir líkamann að fást við erfiðustu verkefnin rétt
fyrir hádegi. Hvers vegna? Jú, Cortisol, efnið í líkamanum sem
hjálpar okkur við einbeitinguna ,er víst í hámarksframleiðslu um há- §
degisbilið.
Ekki þamba kaffí! á
Einn kaffibolli getur gefið þér smáspark til að byrja með en þú
getur verið þess fullviss að fljótlega ert þú orðin þreyttari en
nokkru sinni fyrr.
Ekki borða mikil sætindi
Um leið og þú innbyrðir sætindin hækkar blóðsykurinn og þú finnur
að úthaldið eykst. En það er eins og með kaffið, þlóðsykurinn hríðfell- j
ur stuttu seinna og orkuleysið leggst yfir þig af meiri þunga en áður. 'í
LíHamsræktin jer sérstaklega
goð fyrir kynlifið
Allir vita að líkamsrækt er góð fyrir hjarta .
og lungu en nýjustu rannsóknir
sýna fram á að hún er líka
góð fyrir kynlífið. Hvernig
þá?
Kynhormónarnir, þá sér-
staklega testósteran
örvast við líkamsrækt og
þá helst innan klukku-
stundar eftir líkamsræktina. Það er ekki nauðsynlegt
að fara inn í sal og hamast eins og óður til að koma
þeim af stað. Línuskautar, hjólreiðatúr eða stuttur
hlaupatúr kemur hormónaframleiðslunni af stað.
Auktu brennsluna á
auðveldan hátt
Slepptu því að nota tölvupóstinn í vinnunni ef þú
þarft að eiga samskiþti við samstarfsmenn.
Stattu upp, gakktu til þeirra og notaðu hvert
tækifæri til að hreyfa þig.
• Gakktu stigana í stað þess að fara
alltaf í lyftunni. Það kemur þér
skemmtilega á óvart hve fljótt þú
nærð að vinna uþp þrek.
• Ekki standa kyrr á meðan þú bíð-
ur eftir næsta tæki í líkamsrækt-
inni. Reyndu að ganga um
eða fara á hlauga-
bretti ef þú sérð
að einhver bið
er í tækið.
• Reyndu að
fá sem mest
út úröllum
hreyfingum,
sama hvort þú
ert að teygja þig
eftir nauðsynjavör-
um í matvöruversl-
uninni eða kattardall-
inum. Hver hreyfing
skiptir máli.
Hvenæp ,
brennir bu
flestum nita-
einingum
i ræRt-
inni?
Það eru uppi
skiptar skoðanir á
því hvort við brennum
meira á morgnana eða á
kvöldin. Sumirgeta ekki
hugsað sér að mæta í salinn á
morgnana en eru svo á útopnu á
kvöldin. Aö mati heilsuræktarfrömuða er
það algjörlega undir hverjum og einum komið
hvenær það hentar honum að stunda líkamsrækt.
I Morguntýpurnar fá mest út úr því að æfa á morgnana sem er
v hið besta mál. Þær þurfa bara að gæta þess að borða holl-
an og góðan morgunmat áður en þær byrja að hamast.
Fyrir þá sem vilja frekar stunda líkamsrækt á kvöldin gildir
sama regla; að borða nokkru áður en þeir byrja að taka á.
Sérfræðingarnir eru sammála um að þegar fólk er sátt við
þann tíma sem það stundar sína líkamsrækt er það líklegast til að
ná árangri, það skiptir jú mestu máli, ekki satt!
52 Vikan