Vikan


Vikan - 23.11.1999, Side 63

Vikan - 23.11.1999, Side 63
 rtU Li fðil r J iLS/m Vestfjarðaleið. Borgin er hlý og yndisleg og þar er hagstætt verðlag, svo hægt er að gera góð kaup fyrir jólin. Núfíar (þeir kalla sig Newfies) eru vingjarnlegt og glettið fólk sem tekur vel á móti ókunnugum. Hót- elin eru fyrsta flokks og maturinn er afar góður. Jafn- vel fiskurinn er eins ferskur og góður og við íslendingar viljum hafa hann. (slendingar eru Núfíum að góðu kunnir því íslenskir sjómenn hafa stundað rækjuveiðar á Flæmska hattinum og landað aflanum í ýmsum höfnum á Avalonskaganum. . birtu í garðinn þegar dimmt er orðið á kvöldin. Það er minna mál en margur heldur að láta leggja rafmagn fyrir útilampa í garðinn hjá sér og það gefur garðin- um rómantískan og fallegan þlæ. Þeir sem ekki vilja hafa rafmagns- Ijós geta keypt sér útikerti og sett á skjólsælan stað eða sett lítil spritt- kerti í glerkrukkur og lýst upp gang- stíginn eða fallega staði í garðinum við hátíðleg tækifæri. Spá Vikunnar Hruturinn 21. mars - 20. apríl Venus er á ferðinni í Vog og það hefur áhrif á hegðunarmunstur þitt, að- dráttaraflið eykst og þú munt hafa úr mörgu að velja á gnægtaborði ástarinnar. Akkilesarhæll þinn er hversu erfitt getur reynst að taka stefnumótandi ákvörðun og að vanda sig í orðavali. Nautið 21. apríl - 21. maí Venus hefur einnig verið að nudda sér utan í nautið og með góðum ár- angri en þann 25., blæs IVIars í herlúðra sína þegar hann þeysir inn í Vatnsberann og boðar partý og stanslaust fjör. Þau naut sem geta, ættu þá að taka sér frí frá amstri hversdagsins og „kýla á það" út mánuðinn að njóta lífsins og vera til. Tuíburinn 22. maí-21.júní Tunglið kíkir inn þann 23., og lýsir upp tilveru þína svo vel að þér er lífs- ins ómögulegt að mistakast nokkuð það sem þú tekur þér fyrir hendur. Svo rammt kveður að þessu að það er sem stýrandi hönd beini þér leið og það eina sem þú þurfir að gera sé að hafa hugmyndir á reyöum höndum til að velja úr. Krabbinn 22. júní - 23. júlí Nauts tunglið kastar kveðju á þig og bíður þér upp í vinalegan dans. Þar skapast ný tengsl við umheiminn og nýir vinir birt- ast á dansgólfinu en nokkrir af þeim eldri hverfa. Undir lok mánaðarins ertu næmur á góða samn- inga og þú hittir jafnvel á rétta augnablikið í fjár- festingum sem vert verður að umbuna með veislu. Ljóniö 24. júlí - 23. ágúst Seiður tækifæra er þér soðinn nú í nóvember. Vertu vakandi fyrir Merkúr sem reynir að rugla þig í ríminu en að öðru leyti ætti allt að vera í „full swing" eins og sagt er. Hroki og stærilæti henta þér ekki, heldur einlægni og vin- semd sem munu skila sér margfalt hafir þú gildin þau að leiðarljósi. Um næstu helgi býðst þér sér- stakt tækifæri sem getur haft veruleg áhrif á veg- ferð þína. Meyjan 24. ágúst - 23. september Þessi vika krefur þig um meiri heimaveru en venjulega og aö þú sinnir þér og þínum af örlæti. Tunglið fyllir þig rósemd og eykur þér orku til vökunátta sem kemur sér vel því þú vilt líka geta hangið í tölvunni fram á rauða nótt án þess að drattast um daginn eftir með rauð augu, þrútin af svefnleysi. 4> m i mn Vogin 24. september - 23. október Það er fullt tungl og andleg orka þín er venju fremur bústin þessa dagana. Orð þín hafa meiri áhrif en venjulega og því er mik- ilvægt að vanda val þeirra vel. Ef þú átt í samn- ingaviðræðum eða stendur í fjármálavafstri geta orð þín gert gæfumuninn og fært í hús, gullvagn hlaðinn gersemum. Sporðdrekinn 24. október - 22. nóvember Nú er kominn tími til að slagpa af og leyfa tunglinu aö rugga sér svolítið heima við. Fjölskyldan þarf á visku þinni að halda og grá glettnum húmornum þegar spilin eru dregin fram og tekið í slag. Gátur, leikir, glens og grín taka tíma þinn og sjónvarpið fær aldrei þessu vant að rykfalla í friði. Bogamaðurinn 23. nóvember - 21. desember Skyttur hafa mikið umleikis um þess- ar mundir enda ekki nema von, þetta er þinn tími. Afmæli, boð og veislur fylla dagbókina og í nógu er að snúast. Samt er eitthvað að angra þig og ef þú lítur upp sérðu að það er máninn bjarti sem pirrar þig og gerir þig önugan. Þetta líður hjá en á meðan er mikilvægt aö vera sveigjanlegur og jarðtengdur. 4k Steingeitin 22. desember - 20. janúar Merkúr vakir yfir þér þar sem hann situr klofvega á Sporðdrekanum og brokkar um merkið þitt. Þessi áhrif gera þig frið- lausan af ást og þú ýlfrar eins og úlfur á fjör og spennu. Ef þú ert einstæð geit en færð samt hvöt- um þínum fullnægt er aldrei að vita nema það endi í föstu og farsælu sambandi. Vatnsberinn 21. janúar -19. febrúar Sendiboðar guðanna færa þér boð um skemmtanahald þessa viku. Leggðu því allt til hliðar sem ekki er bráðnauðsynlegt og demdu þér í djúpu laugina, þar opinberast þér nýr siður sem veitir þér óvænta og ómælda gleði út mánuðinn. Þá tekur alvaran við á ný en siðurinn er þinn til eignar. Fiskarnir 20. febrúar - 20. mars Vikan opnast þér eins og leiðarvísir á nýtt tækifæri sem þróast getur út vik- una í eitthvað mjög merkilegt. Leyfðu eðlisávísun þinni að njóta sín með þessu tækifæri og láttu inn- sæið um ákvarðanir, þá getur þú rólegur leyft þér ýmsan munað um helgina og veitt þeim vel sem trúa á þig. Amtsbókasafnið á Akureyri 03 59 176

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.