Vikan - 23.11.1999, Síða 63
rtU Li fðil
r J iLS/m
Vestfjarðaleið. Borgin er hlý og yndisleg og þar er
hagstætt verðlag, svo hægt er að gera góð kaup fyrir
jólin. Núfíar (þeir kalla sig Newfies) eru vingjarnlegt
og glettið fólk sem tekur vel á móti ókunnugum. Hót-
elin eru fyrsta flokks og maturinn er afar góður. Jafn-
vel fiskurinn er eins ferskur og góður og
við íslendingar viljum hafa hann.
(slendingar eru Núfíum að góðu
kunnir því íslenskir sjómenn hafa
stundað rækjuveiðar á Flæmska
hattinum og landað aflanum
í ýmsum höfnum á
Avalonskaganum.
. birtu í garðinn
þegar dimmt er orðið á kvöldin. Það
er minna mál en margur heldur að
láta leggja rafmagn fyrir útilampa í
garðinn hjá sér og það gefur garðin-
um rómantískan og fallegan þlæ.
Þeir sem ekki vilja hafa rafmagns-
Ijós geta keypt sér útikerti og sett á
skjólsælan stað eða sett lítil spritt-
kerti í glerkrukkur og lýst upp gang-
stíginn eða fallega staði í garðinum
við hátíðleg tækifæri.
Spá Vikunnar
Hruturinn
21. mars - 20. apríl
Venus er á ferðinni í Vog og það hefur
áhrif á hegðunarmunstur þitt, að-
dráttaraflið eykst og þú munt hafa úr mörgu að
velja á gnægtaborði ástarinnar. Akkilesarhæll þinn
er hversu erfitt getur reynst að taka stefnumótandi
ákvörðun og að vanda sig í orðavali.
Nautið
21. apríl - 21. maí
Venus hefur einnig verið að nudda
sér utan í nautið og með góðum ár-
angri en þann 25., blæs IVIars í herlúðra sína þegar
hann þeysir inn í Vatnsberann og boðar partý og
stanslaust fjör. Þau naut sem geta, ættu þá að taka
sér frí frá amstri hversdagsins og „kýla á það" út
mánuðinn að njóta lífsins og vera til.
Tuíburinn
22. maí-21.júní
Tunglið kíkir inn þann 23., og lýsir
upp tilveru þína svo vel að þér er lífs-
ins ómögulegt að mistakast nokkuð það sem þú
tekur þér fyrir hendur. Svo rammt kveður að þessu
að það er sem stýrandi hönd beini þér leið og það
eina sem þú þurfir að gera sé að hafa hugmyndir á
reyöum höndum til að velja úr.
Krabbinn
22. júní - 23. júlí
Nauts tunglið kastar kveðju á þig og
bíður þér upp í vinalegan dans. Þar
skapast ný tengsl við umheiminn og nýir vinir birt-
ast á dansgólfinu en nokkrir af þeim eldri hverfa.
Undir lok mánaðarins ertu næmur á góða samn-
inga og þú hittir jafnvel á rétta augnablikið í fjár-
festingum sem vert verður að umbuna með veislu.
Ljóniö
24. júlí - 23. ágúst
Seiður tækifæra er þér soðinn nú í
nóvember. Vertu vakandi fyrir Merkúr
sem reynir að rugla þig í ríminu en að öðru leyti
ætti allt að vera í „full swing" eins og sagt er. Hroki
og stærilæti henta þér ekki, heldur einlægni og vin-
semd sem munu skila sér margfalt hafir þú gildin
þau að leiðarljósi. Um næstu helgi býðst þér sér-
stakt tækifæri sem getur haft veruleg áhrif á veg-
ferð þína.
Meyjan
24. ágúst - 23. september
Þessi vika krefur þig um meiri
heimaveru en venjulega og aö þú
sinnir þér og þínum af örlæti. Tunglið fyllir þig
rósemd og eykur þér orku til vökunátta sem kemur
sér vel því þú vilt líka geta hangið í tölvunni fram á
rauða nótt án þess að drattast um daginn eftir með
rauð augu, þrútin af svefnleysi.
4>
m
i mn
Vogin
24. september - 23. október
Það er fullt tungl og andleg orka þín
er venju fremur bústin þessa dagana.
Orð þín hafa meiri áhrif en venjulega og því er mik-
ilvægt að vanda val þeirra vel. Ef þú átt í samn-
ingaviðræðum eða stendur í fjármálavafstri geta
orð þín gert gæfumuninn og fært í hús, gullvagn
hlaðinn gersemum.
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Nú er kominn tími til að slagpa af og
leyfa tunglinu aö rugga sér svolítið
heima við. Fjölskyldan þarf á visku þinni að halda
og grá glettnum húmornum þegar spilin eru dregin
fram og tekið í slag. Gátur, leikir, glens og grín taka
tíma þinn og sjónvarpið fær aldrei þessu vant að
rykfalla í friði.
Bogamaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Skyttur hafa mikið umleikis um þess-
ar mundir enda ekki nema von, þetta
er þinn tími. Afmæli, boð og veislur fylla dagbókina
og í nógu er að snúast. Samt er eitthvað að angra
þig og ef þú lítur upp sérðu að það er máninn bjarti
sem pirrar þig og gerir þig önugan. Þetta líður hjá
en á meðan er mikilvægt aö vera sveigjanlegur og
jarðtengdur.
4k
Steingeitin
22. desember - 20. janúar
Merkúr vakir yfir þér þar sem hann
situr klofvega á Sporðdrekanum og
brokkar um merkið þitt. Þessi áhrif gera þig frið-
lausan af ást og þú ýlfrar eins og úlfur á fjör og
spennu. Ef þú ert einstæð geit en færð samt hvöt-
um þínum fullnægt er aldrei að vita nema það endi
í föstu og farsælu sambandi.
Vatnsberinn
21. janúar -19. febrúar
Sendiboðar guðanna færa þér boð um
skemmtanahald þessa viku. Leggðu
því allt til hliðar sem ekki er bráðnauðsynlegt og
demdu þér í djúpu laugina, þar opinberast þér nýr
siður sem veitir þér óvænta og ómælda gleði út
mánuðinn. Þá tekur alvaran við á ný en siðurinn er
þinn til eignar.
Fiskarnir
20. febrúar - 20. mars
Vikan opnast þér eins og leiðarvísir á
nýtt tækifæri sem þróast getur út vik-
una í eitthvað mjög merkilegt. Leyfðu eðlisávísun
þinni að njóta sín með þessu tækifæri og láttu inn-
sæið um ákvarðanir, þá getur þú rólegur leyft þér
ýmsan munað um helgina og veitt þeim vel sem
trúa á þig.
Amtsbókasafnið á Akureyri
03 59
176