Vikan - 09.05.2000, Side 20
Uinningshafar Vikunnar og Gesthúsa í sælu á Suðurlandi
Það uar í raun vinkona Elínar Grímsdónur, Helga Björk, sem
hreppti verðlaunaferðina í Sælu á Suðurlandi í mars, en bar sem
Elín og eiginmaður hennar, Jón Bjarni Gunnarsson, áttu 12 ára
brúðkaupsafmæli um lietta leyti gaf Helga Björk Elínu ferðina.
Þetta reyndist hin mesta
ævintýraferð og við
gefum Elínu orðið:
„Þetta var alveg stór-
skemmtilegt og ólíkt öllu því
sem við höfðum fram að
þessu upplifað. Við fórum af
stað á föstudegi og vorum
komin um klukkan átta á Sel-
foss þar sem var tekið með
eindæmum vel á móti okkur.
Við treystum okkur ekki í
pottinn þetta kvöld þar sem
það var svakalega kalt, en
okkur var þess í stað boðið
inn í húsið þar sem beið eftir
okkur ostabakki og rauðvín
ásamt glæsilegri gjöf frá
Kaupfélagi Árnesinga en það
var myndarleg ofnskál með
stálbakka undir til að bera
fram í.
Skemmtileg, lítil hús og
morgunmaturinn í ís-
skápnum.
Okkur leið vel í húsinu.
Þetta eru lítil en mjög
skemmtileg hús og aðbúnað-
urinn einstaklega
góður. Morgunmat-
urinn var skilinn eft-
ir handa okkur í ís-
skápnum svo við
gátum sofið eins og
við vildum og feng-
ið okkur morgun-
verð þegar okkur
hentaði.
Við vöknuðum
samt fremur
snemma á laugar-
dagsmorguninn og
fórum í gönguferð, en áttum
svo stefnumót um eittleytið
við Jóhönnu Róbertsdóttur,
framkvæmdastjóra Gesthúsa,
sem er sérlega indæl kona.
Ævintýri, meðal annars á
hundasleða.
Svo hófust ævintýri dagsins.
Við fórum fyrst í snjósleða-
ferð, við keyrðum sj álf og það
var svakalega gaman því
hvorugt okkar hafði nokkurn
tíma gert það áður. Það var
farið upp á Hellisheiði, á
gamla veginn sem er
skemmtilega varðaður. Veð-
urguðirnir léku við okkur og
þetta var mjög gaman. Síðan
vorum við látin fara yfir göt-
una en þar biðu okkar hunda-
sleðar sem grænlenskir hund-
ar voru spenntir fyrir. Þetta
var alveg frábært, það eru
ekki margir íslendingar sem
hafa prófað að ferðast með
hundasleðum. Það var mjög
sérstök upplifun.
Svo var farið í ferðamanna-
fjósið á Laugabökkum. Þar er
afar hresst fólk sem lét okk-
ur dansa kántrýdans með
hatta og allt saman. Það er
bar hjá þeim og þar eru stund-
um haldnir dansleikir og við
fengum að smakka mjög ný-
stárlegan drykk, viskíbland-
aða mjólk, undarlegt en ekki
vont. Það var mjög gaman að
koma þarna. Þvílíkt kúasafn
sem þau eiga! Styttur, mynd-
ir og fleira, alveg stórgaman
að skoða þetta!
Eftir þetta var farið heim á
Gesthús og í pottinn og það
var ósköp notalegt og alveg
nýtt fyrir okkur. Að því loknu
var farið í Betri stofuna á
Hótel Selfossi um klukkan
hálfníu. Þar var mjög góður
matur og góð þjónusta. Þetta
er huggulegur staður þar sem
manni líður vel. Eftir þetta
vel heppnaða kvöld gengum
við heim á Gesthús og þegar
við vöknuðum kvöddum við
Selfoss með því að fá okkur
góðan göngutúr og skoða bæ-
inn.
Við nutum þess alveg í botn
að vera þarna þessa helgi og
þökkum öllum þeim sem
stóðu að þessu innilega fyrir
okkur!“
20
Vikan