Vikan - 09.05.2000, Page 53
íslenskt vatn er kalksnautt
eru slík efni óþörf hér. Það
ætti að vera nóg að þrífa
baðherbergið með upp-
þvottalegi og góðum bursta
Hins vegar má sótthreinsa
salernisskálar með ediki
(10%). Það drepur flestar
bakteríur hratt niður í um-
hverfinu.
Eidhús 09 upphvottur
I eldhúsinu nægir upp-
þvottalögurinn einnij> á
flesta óhreina fleti. Astæðu-
laust er að kaupa sterk
ætandi efni til þess að þrífa
bakaraofninn. Grænsápa
getur gert sama gagn og
sterku efnin.
Þeir sem eiga uppþvotta-
vél ættu að nota sem minnst
af þvottadufti og sleppa gljá-
efninu.
Reynsla um-
hverfisvænna
neytanda sýn-
ir að í flestum
tilfellum þarf
ekki meira en
eina teskeið
af þvottadufti
í hvern þvott.
Þeir sem þvo
upp á gamla
mátann ættu
einungis að
nota nokkra
dropa af upp-
þvottalegi í uppþvottavatnið
og að sjálfsögðu ættu þeir að
láta heita vatnið renna sem
minnst á meðan á uppþvotti
stendur.
Bflpril
Margir kaupa sérstakt
bílasjampó til þess að þrífa
bílinn með. Gamli góði upp-
þvottalögurinn dugar hins
vegar ágætlega á bílinn líka
því bílasjampó er að grunn-
inum til sambærilegt við
uppþvottalöginn. Þeir sem
nota sér þjónustu þvotta-
stöðvanna ættu að grennsl-
ast fyrir um hvað verður um
frárennslið.
(Heimildir: Grœna bókin og Rðd
og ran).
pyngjuna sem léttist þá ekki
um of og umhverfið sem
nýtur góðs af.
Að halda hreinu
Gott er að hafa það í huga
að hægara er að halda
hreinu en að gera hreint.
Þeir sem halda heimilum
sínum hreinum þurfa í raun
ekki að kaupa annað en
mjög mild hreingerningar-
efni, t.d. mildan uppþvotta-
lög. Þeir sem hins vegar taka
skorpur í hreingerningun-
um, t.d. á vorin, gætu þurft
Skínandi baðherbergi
Á mörgum heimilum er til
mikið úrval af hreinsiefnum
til að þrífa salerni, hand-
laugar, baðkör og sturtu-
botna. Þau innihalda gjarn-
an sterk efni, t.d. fosfórsýru
enda eru mörg þeirra varúð-
armerkt. Sumum þessarra
efna er meðal annars ætlað
að fjarlægja kalk en þar sem
að hamast
meira en
venjulega ef
þeir halda sig
við uppþvotta-
löginn en á
móti kemur að þrifin verða
ódýrari en áður og hættu-
minni fyrir þá sem eru með
viðkvæma húð.
Húsráð
Að losa ueggfóður
Notið helmingsblöndu af ediki og vatni.
Dýfiö málningarrúllu eöa svampi í blönduna
og bleytið veggfóðriö í gegn. Eftir tvær yf-
irferðir ætti veggfóðrið að losna af í heilum
hlutum. Notið frekar málningarrúllu en
pensil til verksins.
Bað og eldhús
Eftir að hafa veggfóðrað baðherbergið
eða eldhúsið er gott að mála öll samskeyti
með glæru lakki til að varna því að sam-
skeytin losni upp.
Bungu á veggfóðri
Skerðu í bunguna með rakvélarblaði.
Settu síðan lím undir hana með hnif og
sléttu úr með rökum svampi.
Fitublettir
Búiö til deig úr kornsterkju og vatni. Lát-
ið bíða á blettinum þar til það er orðið þurrt.
Burstið þá af. Ef bletturinn er enn á reynið
þá aftur.
Einnig má leggja þerripappír á fitublett-
inn og fara yfir með heitu straujárni.
Endurtakið nokkrum sinnum með nýj-
um pappír. Fjarlægið síðan leifarnar, ef ein-
hverjar eru, með klút vættum í bórvaxi.
Uaxlitir
Nota má sömu aðferðir til að ná vaxlit-
um af veggfóðri og fitublettum. Einnig má
nudda létt með sápufylltri stálull sem ekki
hefur verið bleytt. Annað ráð er aö strá mat-
arsóda á raka tusku og strjúka yfir blett-
ina.
Vaxliti á vinylveggfóðri máfjarlægja með
silfurfægilegi.
Strokið út óhreiníndin
Nuddið létta bletti, eins og t.d. fingraför,
mold eða blýantsstrik með strokleðri.
Sparsl
Ef múrhúðin losnar úr loftinu er ráð að
reyna eftirfarandi: Gerið deig úr trélími og
matarsóda og fyllið í sprunguna með fingr-
unum. Ef loftið er málað er gott að setja
matarlit samlitan loftinu í blönduna. Þessi
viðgerð getur frestað fullnaðarviðgerð um
einhvern tíma.
Sprungufylling
Fyllið í sprungur með stálull eða dagblöð-
um áður en sparslið er sett á.
Rakir skápar
Til að losna við sagga úr skápum er gott
að setja viðarkol í skókassa, gera göt á lok-
ið og setja í skápinn. Eins er ráð að hengja
krítar í skápinn.