Vikan - 09.05.2000, Page 63
Mamman
Spá Vikunnar
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl
Það er engu líkara en að þú sért að finna
eitthvað nýtt í sjáifri (sjálfum) þér. Þú ert
að uppgötva nýja hæfileika sem þú ættir
að þroska með þér.
Nautið
21. apríl - 21. maí
Þú ert upptekin(n) af einhverju nýju í lífi
þínu, hugsanlega einstaklingi af hinu kyn-
inu. Láttu þetta ekki verða að þráhyggju,
gakktu hreint til verks og fáðu botn í það hvort viðkom-
andi er þess virði að eyða kröftum í hann.
Tvíburinn
22. maí - 21. júní
Hugarflug þitt og sköpunargáfa eru upp á
sitt besta núna og þú ættir endilega að
nýta það til þess að hressa upp á útlitið.
Þú hefur vanrækt sjálfa(n) þig undanfarið andlega eða
líkamlega.
Vogín
24. september - 23. október
Það er erfitt að segja hvort þessi vika verð-
ur góð eða erfið fyrir Vogina. Hún gæti orð-
ið hvort tveggja. Þú ert nefnilega að plægja
akur sem á eftir að skila mikilli uppskeru.
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Það er komin þreyta í þig eftir langt tilfinn
ingalegt streitutímabil. Hafðu engar áhyggj
ur af því. Fleygðu þér bara á koddann og
sofðu eins og þú þarft.
Bogmaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Orka þín smitar út frá sér og þér finnst þú
vera í góðum félagsskap núna. Það fer að
koma að því að þú þarfnist hvíldar, farðu
að huga að fríinu.
t mC.
áb
Krabbmn
22. júní - 23. júlí
Það er eins og skapið sé ekki í stíl við
kringumstæðurnar hjá þér. Vertu ekki að
erfa óheppileg orð frá vinum og kunningj-
um. Reyndu að sjá björtu hliðarnar á samskiptum þín-
um við aðra.
Steingeítin
22. desember - 20. janúar
Lífið leikur við þig og þú átt enn eftir að
detta í lukkupottinn í þessari viku. Fjöl-
skyldumál þín eru í góðum farvegi, haltu
áfram á sömu braut.
24. júlí - 23. ágúst
Þú færð frábæra hugdettu sem á eftir að
veita þér margar góðar stundir í framtíð-
inni. Láttu hana gerjast svolítið áður en þú
kemur henni fframkvæmd.
Vatnsberinn
21. janúar - 19. febrúar
Reyndu að vera fljót(ur) að hugsa þessa
vikuna og passaðu þig að týna ekki neinu.
Þú ert svolítið utangátta núna, en það rjátl-
ast af þér fljótlega.
20. febrúar - 20. mars
Það er kominn ferðahugur í þig og það er
sniðugt að skjótast út úr bænum eða bara
út að ganga ef ekki vill betur. Þú þarfnast
tilbreytingar og ættir að sækja þér hana með því að
skipta um umhverfi.
Þetta er tilgangslaust.
Heimurinn ferst hvort
sem er bráðum.
03 591 273