Vikan


Vikan - 15.08.2000, Page 10

Vikan - 15.08.2000, Page 10
Texti: Unnur J ó h a n n s d ó 11 i r Myndir: Hreinn Hreinsson og úr einkasafni að vera flóttamaður Irena Zvlrblis er fædð og uppalin í fyrrum Júgóslavíu. Hún kom hing- að til lands sumarið 1997 í boði íslensku rikísstjórn- arinnar ásamt öðrum fióttamönnum frá Serbíu og settíst að á Höfn í Hornafirði. Irena býr nú í Reykiavík ásamt eigin- manni sínum og premur börnum og starfar sem dagmóðir ásamt bví að sinna áhugamáli sínu, málaralistinni. Irena kom til íslands ásamt tveimur dætrum sínum Sanja og Marina, móður sinni og bróður. En hvern- ig fannst henni að koma hing- að til lands? „Ég hefði farið hvert sem er, þess vegna til Sa- hara eyðimerkurinnar. Ég bjó í litlum bæ í Bosníu sem heitir Novi Grad en ég og fjölskylda mín þurftum að flýja þaðan vegna stríðsins. Við vorum tvö ár á flækingi og það var stopula vinnu að fá og lífið var hræði- legt. Ég vildi bara fara þangað sem var friður og ró og börnin mín gætu verið örugg. Ástand- ið í Júgóslavíu var hræðilegt," segir Irena og henni vöknar um augu. Pað tekur mjög á hana að ræða um lífið í stríðinu. Hún reynir en brestur í grát. Minn- ingarnar eru of sárar. „Ég upplifði mikinn létti fyrst þegar ég kom til Hafnar en svo fóru að leita á mig spurningar eins og hvar er ég? Af hverju er ég hér? Hvar er heimilið mitt? Allt var svo óraunveru- legt, stríðið í Júgóslavíu og að veraalltíeinuflóttamaður. Allt var svo framandi. Ég var mál- laus og allslaus í nýju landi, ég get ekki útskýrt hvernig mér leið, ég var glöð og hrygg í senn. Glöð yfir því að vera komin langt frá stríðinu en hrygg vegna þessara örlaga. Ég vissi að líf mitt yrði aldrei samt aft- ur.“ Saknar gömlu heimkynn- anna Irena segist sakna þess sem var. „Það var gott að búa í Júgóslavíu fyrir stríðið. Margir halda að í Júgóslavíu hafi ríkt harðstjórn og kommúnismi eins og í Rúmeníu en það er ekki rétt. Við bjuggum við töluvert frelsi og gátum t.d. ferðast til annarra landa. Vestræn áhrif vorumikil í Júgóslavíu. Ég vann sem ritari og við stelpurnar höfðum það ágætt þó að ég væri ein með þær. I frístundum mál- aði ég og var í félagi áhugalist- málara í Júgóslavíu." Þar tók Irena þátt í fimmtán samsýning- um og hélt sex einkasýningar og hlaut m.a. viðurkenningu fyrir list sína frá náttúruverndarráði í Serbíu. Hér á landi hefur Irena haldið fjórar einkasýningar á Höfn og í Reykjavík. Myndlist er og héfur ávallt verið stór þáttur í lífi hennar og hún byrjaði ung að mála. „Það er mikið af listmálurum í minni ætt en bæði pabbi minn og afi voru listmálarar og báðar stelp- urnar mínar hafa hæfileika á 10 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.