Vikan


Vikan - 15.08.2000, Qupperneq 11

Vikan - 15.08.2000, Qupperneq 11
Nýtt líf f nýju landi Biðin eftir Antoni var Irenu erfið en þau byrjuðu að búa saman hér á landi. „I Júgóslavíu tíðkast ekki að fólk fari að búa strax saman.“ Irena fór að vinna á leikskólanum á Höfn eftir aðlögunartímann sem flóttamenn fá og Anton fékk vinnu í frystihúsinu. Lífið virt- ist því brosa bjartar við þeim en áður. En snögglega dró ský fyrir sólu þegar Anton fékk hjartaáfall aðeins 10 dögum eft- ir að hann kom hingað til lands og var fluttur suður á spítala í sjúkraflugvél. „Það var hræði- legt áfall,“ segir Irena og and- varpar, „mér fannst sem öllum ósköpunum í lífi mínu myndi aldrei linna. Fyrst þurfti ég að flýja föðurland mitt vegna styrj- aldarástands og nú þegar ég loksins hafði fundið mann sem ég elskaði og elskaði mig, veikt- ist hann mjög alvarlega og var í lífshættu.“ En betur fór en á horfðist. Settur var hjartagangráður í Anton og hann sneri aftur heim til Irenu og fór að vinna hálfan daginn aðeins tæpum mánuði eftir áfallið. Þau eru bæði sam- mála um að Islendingar hafi tekið vel á móti þeim. „Okkur A . öCgii 11 Clla Ug brosir. Hún málar aðallega landslagsmyndir og í dag mál- ar hún jafnt myndir af heim- kynnum sínum í Júgóslavíu sem og íslenskt landslag. „Landslag- ið hér er stórkostlegt, allt öðru vísi en í Júgóslavíu. Ég hef aldrei séð svona fallegt lands- lag. Það veitir mér mikinn inn- blástur, himininn, landið og sjórinn. Veðráttan hér er einnig frábrugðin því sem er í Júgóslavíu. Þar voru sumrin mjög heit, en veturnir kaldir. Mér finnst samt miklu kaldara hér, sérstaklega á sumrin,“ seg- ir hún og brosir enda var hún vön að fara í sumarfrí til ná- grannalandanna eða við Adría- hafið. Veit ekki af hverju varð strfð Irenu líka ekki stjórnmál. Hún segir að það séu stjórn- málamennirnir sem hafi kom- ið stríðinu í Júgóslavíu af stað. „Ég veit satt að segja ekki af hverju það varð stríð,“ segir Irena, „ég held að fæstir viti það. Ég trúði því aldrei að það yrði stríð. Ég, fjölskylda mín og vinir óttuðumst það en trúðum því ekki. Það var svo ótrúlegt og óraunverulegt. Allt í einu var bara komið stríð og það voru sprengingar út um allt,“ segir hún og á erfitt um mál.“ Ég var 27 ára og stelpurnar 7 og 10 ára. Allt daglegt líf fór úr skorðum. Árið 1995 var ástandið orðið mjög slæmt og við þurftum að flýja,“ segir hún og andvarpar. Nú kemur Anton Lajhtner, eiginmaður Irenu, inn í stofuna með litla sólargeislann þeirra Viktor, sem er fimmtán mán- aða. Anton er ekki flóttamaður líkt og Irena og því var erfiðara fyrir hann að fá að setjast að hér á landi, þar sem hann þurfti að hafa bæði dvalar- og atvinnuleyfi. Hann kom hing- að til lands um 8 mánuðum á eftir Irenu og henni fannst biðin löng. „Við Anton kynnumst í byrjun ársins 1997. Ég var frá- skilin og hafði verið ein í fjórt- án ár og bjóst ekki við að kynn- ast ástinni á ný eða giftast aft- ur. Við kynntumst í gegnum málaralistina en Anton átti rammabúð í Júgóslavíu. Ég fór með mynd í búðina sem ég þurfti að láta ramma inn sem allra fyrst og spurði hann hversu fljótt hann gæti gert það,“ segir Irena og lítur á Ant- on og brosir. Anton brosir líka og segir að hann hafi samstundis sett öll sín verkefni til hliðar og lofað að innramma myndina bæði fljótt og vel. „Ég hafði séð Irenu þann 15. janúar í listmálara- klúbbi." Hann virðist vera með Frá vinstri: Marina, yngri hennar, Irena, Sanja, eldri móðir hennar. allar tímasetningar í sambandi þeirra á hreinu. „Ég var að kynna fyrirtækið mitt og þegar ég sá hana gerðist strax eitthvað innra með mér. Ég varð mjög glaður þegar Irena kom í búð- ina mína og brást skjótt við beiðni hennar. Ég fór síðan á málverkasýningu sem hún hélt og spjallaði við hana. Eftir það varð ekki aftur snúið og við fór- um á nokkur stefnumót og fundum að við vildum kynnast betur.“ Irenu, sem var heimil- islaus og hafði sótt um að kom- ast sem flóttamaður til annars lands, bauðst að fljótlega eftir að þau kynntust að fara til ís- lands. „Við vorum orðin mjög ástfangin og ákváðum að ég kæmi á eftir henni til Islands,“ segir Anton. Vikan 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.