Vikan


Vikan - 15.08.2000, Blaðsíða 20

Vikan - 15.08.2000, Blaðsíða 20
Texti: Unnur J ó h a n n s d ó 11 i r áhyggjur. En hegar orðinn hað alvarlegur Hvað er svona hræðilegt við að mistakast? Auðvitað geta mistök og rangar ákvarðan- ir verið sársaukafullar og haft einhvern eftirmála, hvort sem það er í ástum, fjármálum eða vinnu. En að gera mistök er ekki hræðilegt, það er eðlilegt. Við erum ekki fullkomnar og þurfum ekki að vera það. í rauninni eru mistökin sem við teljum okkur hafa gert, ekki síður mikilvæg fyrir okkur en það sem okkur tekst að gera. Mistökin kenna okkur hvernig á ekki að gera hlutina og hvað við eigum að gera næst og hvernig til þess að ná markmiðum okkar. Ekki leggja því árar í bát næst þegar þú gerir mistök. Hertu upp hugann, kona, og reyndu aftur! Þú getur lært at místökum Mistök eru EKKI tímasóun. Þau eru mikilvægur lærdómur ef við viljum læra af þeim. Ef mistök eru tímasóun, hvílík tíma- eyðsla voru þá hin átján þúsund skipti sem Edison reyndi að búa til ljósaperu og mistókst! En Edison leil ekki á til- raunir sínar sem mistök því eins og hann sagði sjálfur þá kunni hann að leiðar- lokum átján þúsund aðferðir um hvern- ig ekki væri hægt að búa til ljósaperu og það er nú ekki svo lítill lærdómur. Enginn verður óbarinn biskup, segir máltækið. Ef þú átt þér drauma, láttu þá rætast. Þú ein getur það. Ekki láta ótt- ann við hugsanleg mistök hefta þig. Þú þarft ekki að sigra allan heiminn, þú þarft aðeins að sigrast á ótta þínum. Ef þú lifir í sífelldum ótta um að gera mis- tök þá er nokkuð ljóst að þú framkvæm- ir aldrei neitt sem þig langar til en ert ekki fullkomlega örugg um að takist. Hættu að velta því fyrir þér hvað aðrir munu hugsa um þig ef þér mistekst. Það sem öðrum finnst um hugsanleg mistök þín skiptir engu máli heldur einungis hvaða augum þú lítur þau. Taktu gagn- rýni ekki persónulega. Greindu á rnilli þess hver þú ert og þess sem þú gerir. Lífið er ögrun, ekki ógn Mundu að góðir hlutir gerast hægt. Þú sigrast ekki á óttanum á einum degi. Það getur tekið þig langan tíma að trúa og treysta á sjálfan þig. Þú verður að læra að standa og falla með því sem þú gerir og sem þér tekst eða mistekst. Ef þú fell- ur, stattu þá upp og reyndu aftur. Þú ert ekki vonlaus eða ómöguleg þó að þér verði á. Þú ert bara mannleg og lífið heldur áfram. Taktu lítil skref í einu til þess að sigrast á ótta þínum. Því oftar sem þú gerir hlutina því auðveldari við- fangs verða þeir. Smám saman verður þú færari um að takast á við meira ögrandi verkefni án þess að óttast hræðileg mis- tök. Sættu þig við að það eru alltaf líkur á að þú gerir mistök þegar þú tekst á við eitthvað sem þú hefur aldrei reynt áður en mundu að þau þroska þig og gera þig að hæfari manneskju. Lífið á að vera ögrun en ekki ógn. 20 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.