Vikan


Vikan - 15.08.2000, Qupperneq 30

Vikan - 15.08.2000, Qupperneq 30
Texti: Steingerður Steinarsdóttir ydpottningin jómfr ú ? Sennilega hafa ekki margir feður orðið iafn vonsuiknir og Hinrik VIII varð hegar El- ísabet dóttir hans fæddist 7. september árið 1533. Hirð- stjörnufræðingurinn hafði spáð að barnið sem Anna Boleyn gekk með væri drengur og Hinrik var bess fullviss að skílnaður hans og Katrínar af Aragóníu, sem leiddi til sambandsslita ensku kirkjunnar og róm- versk-kapólsku kirkjunnar, hefðí verið hess virði. Anna ræfillinn hefur líklega ekkí glaðst heldur hví hún vissi svo sem að hún gætí ekki búist við góðu eftir að hafa mistekíst að fæða karlkyns- erfíngja að krúnunni, enda kom hað á daginn hví hrem- ur árum síðar bar Hinrik á hana framhjáhald og lét hálshöggva hana. Phærða stúlka, sem vakti svo litla gleði með for- eldrum sínum þegar hún fæddist, átti þó eftir að vaxa upp og verða einn stórbrotnasti þjóðhöfðingi sögunnar. Meydrottningin, eins og hún var síðar kölluð, komst til valda og héit völdum þrátt fyrir pólitísk launráð og samsæri um að halda henni frá hásætinu og hún hélt völdum í fjörutíu og fimm ár. Það var ekki nóg með að hún tylldi í hásætinu heldur tókst henni að halda friðinn þótt Filipus Spán- arkonunungur hefði heitið því að endurreisa kaþólsku kirkjuna í Englandi og sent af stað flotann ósigrandi til að tryggja að svo færi. Páfinn og embættismenn hans voru Elísabetu mjög and- stæðir og þegar hún lýsti yfir trú- frelsi í ríki sínu kraumaði óánægj- an undir niðri en minnkaði þeg- ar frá leið. Persónuleiki Elísabet- ar hefur sennilega ráðið mestu þar um. Kannski lýsa hennar eig- in orð henni best en sagt er að einhverju sinni hafi hún sagt að hún þakkaði guði fyrir að hann hefði gefið henni þá kosti að þótt henni væri vísað í útlegð úr ríki sínu, á undirpilsinu einu fata, gæti hún tekið sér bólfestu hvar sem kristin trú væri við lýði. Hún sagði einnig: „Eg veit að ég hef líkama veikburða og þróttlítillar konu en ég hef hjarta og maga konungs og það Englandskonungs.“ Stórbrotinn per- sónuleiki drottningar- innar hefur gert það að verkum að hún hefur orðið leikskáld- um og kvikmynda- gerðarmönnum yrkis- efni og þær eru orðn- ar ófáar leikkonurnar sem hafa spreytt sig á hlutverki hennar. Frá fyrstu tíð hefur það þótt mikill heiður að leika Elísabetu, og takist leikkonunni vel sönnun á hæfileikum hennar til skapgerðarleiks. Þær Judi Dench og Cate Blanchett fengu nýlega tækifæri til að leika meydrottninguna og Dame Judi vann Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki í Shakespe- are ástfanginn en Cate hlaut út- nefningu til sömu verðlauna fyr- ir Elísabetu en varð að fara styttulaus heim. Fyrsti elshhuginn eigin- maður stjúpu hennar Cate túlkar vel sakleysi Elísa- betar fyrst eftir að hún kemur til valda og þegar myndin byrjar býr hún hjá stjúpmóður sinni. Cat- hrine Parr, sjötta og síðasta kona Hinriks, varð forráðamaður El- ísabetar þegar Hinrik dó og Cat- hrine sá og skildi hversu greind stúlkan var og réði bestu kennara sem völ var á í landinu til að kenna henni. Thomas Seymour giftist Cathrine en hún kvaðst elska hann ofar skyldu sinni því Parr taldi sig svo ættgöfuga að sér bæri skylda til að giftast konung- bornum mönnum. Thomas var bróðir Jane Seymour, þriðju konu Hinriks og móður Játvarð- ar einkasonar hans. Játvarður var tíu ára þegar faðir hans dó og Thomas sá að sennilega myndi pilturinn ekki halda völdum lengi. Metnaðargirni Thomasar var slík að hann tók þegar að stíga í vænginn við hinn unga skjólstæðing konu sinnar, meðal annars með því að líta til stúlkunnar á hverjum morgni þar sem hún lá í rúmi sínu nakin eins og venja var að sofa við ensku hirðina á sextándu öld. Elísabet var ekki vön mikilli athygli frá karlmönnum og svo virðist sem hún hafi fallið fyrir tálbrögðum Thomasar. Fiestir við hirðina vissu um sambandið og menn veltu því gjarnan fyrir sér hversu langt elskendurnir hefðu gengið. Það var þó ekki fyrr en Cathrine, sem þá var há- ólétt, kom að manni sínum og El- ísabetu í faðmlögum að hún gerði eitthvað í málunum. Thomas hafði sést fyrir utan herbergi syst- ursonar síns, Játvarðar VI, vopn- aður byssu og nú var hann hand- tekinn og síðar dæmdur til að hálshöggvast fyrir landráð. Hvort þessi reynsla varð þess valdandi að Elfsabet giftist aldrei er erfitt að segja en hún var fráleitt alveg fráhverf karlmönnum. Til eru heimildir um að hún hafi strax í æsku sagt vini sínum Robert Dudley að hún hyggðist aldrei giftast. Ef tekið er tillit til þeirra aðstæðna sem ríktu við ensku hirðina þegar hún var að alast upp er varla hægt að undrast að hana hafi ekki langað í hjóna- band. Faðir hennar giftist og skildi hvenær sem honum bauð svo við að horfa og tækist hon- um ekki að finna aðra gilda skiln- aðarorsök enduðu konur hans líf sitt á höggstokknum vegna hjú- skaparbrota. (Þær voru tvær sem fóru þá leiðina, Anna Boleyn og Cathrine Howard.) Robert þessi var jarl af Leicester og eftir að Elísabet komst til valda varð öllum ljóst að þau voru ákaflega náin. Ro- bert var raunverulega mjög ást- fanginn af Elísabetu og þau áttu vel saman. Sá meinbugur var hins vegar á sambandi þeirra að hann var giftur og svo hafði hann held- ur ekkert á móti því að deila völdum með konu sirini, drottn- ingunni, ef því væri að skipta. El- ísabet var ekki jafnhrifin af metn- aði og valdagræðgi elskhuga síns. Þegar kona Dudleys fannst svo hálsbrotin neðan við steinstiga í höllinni grunaði menn strax að maður hennar ætti einhvern hlut 30 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.