Vikan - 15.08.2000, Page 39
á lyfjagjöf og skurðaðgerðum, óx fiskur
um hrygg lögðust grasalækningar af að
mestu.
Uarist eftirlíkíngar
Lyfjaframleiðendur hafa reynt að telja
fólki trú um að lyf þeirra, sem eru eftir-
líkingar af virkum efnum grasaseyða,
séu á einhvern hátt áhrifaríkari en grös-
in sjálf. Meðan fulltrúar lyfjaiðnaðarins
hafa kannað af áfergju takmarkalausa
lækningamöguleika jurta og grasa, hafa
talsmenn sama iðnaðar barist gegn
grasalækningum og lagt á sig ómælt erf-
iði til að finna eiturefni í ýmsum grös-
um þótt slík efni séu alveg meinlaus þeg-
ar grasalyfin eru gefin í venjulegum
skömmtum.
Vaxandi áhyggjur af aukaverkunum
lyfja hafa knúið fólk til þess að leita til
grasalækna til að fá náttúruleg lyf.
Óléttar konur, börn og fólk með þrá-
láta sjúkdóma sem hefðbundin lækna-
vísindi ráða ekki við, svo og fólk sem
haldið er ónæmisbælandi kvillum, hef-
ur sér í lagi notið góðs af grasalyfjum.
Jafnframt því sem rannsóknir á virk-
um efnum í lækningagrösum eru í örri
sókn eru menn farnir að notfæra sér
forna heilsudrykki og önnur gömul
lækningaráð í vaxandi mæli.
Að verka og nota grös
Hver sem er getur búið til áhrifarík
grasalyf í eldhúsi sínu en áhættan sam-
fara því að reyna að sjúkdómsgreina
sjálfan sig er meiri en svo að nóglega
verði varað við henni. Allan heilsufars-
vanda á að bera undir lærðan grasalækni
eða lærðan lækni.
Grös eru að vísu náttúruleg en þau eru
einnig kröftug lyf og í of stórum skömmt-
um geta þau verið eitruð. Eigi þau að
koma að fullu gagni verður að vinna þau
rétt. Hér á eftir er nokkrum aðferðum
lýst.
Te
Best er að gera te úr heilum jurtum
með stilkum, laufum og blómum því að
virku efnin leysast auðveldlega úr þeim.
Látið tilgreint magn grasa í volgan
tepott. Hellið sjóðandi vatni yfir þau og
látið standa í 10 til 15 mínútur áður en
síað er. Slíkt te endist ekki nema í nokkra
klukkutíma.
Sevði
Trékenndir stilkar, rætur, fræ og börk-
ur eru best í seyði. Saxið eða merjið gras-
ið til að brjóta niður virku efnin. Setjið
tilgreint magn í
pott og
hellið
vatni
svo
tvisvar á dag. Síið í gegnum baðmullar-
grisju og vindið vel. Geymist í flöskum
úr dökku gleri með þéttum tappa.
Bakstrar
Húð yfir bólgu eða sári dregur í sig virk
efni úr bakstri úr grasaseyðum og -soð-
um. Bleytið hreinan efnisbút í heitu
grasaseyði og leggið við svæðið.
Grautarbakstrar
Um er að ræða
bakstur sem inni-
heldur þykk-
an grasa-
graut.
fljóti
yfir.
Hleypið
upp suðu,
lokið og látið
malla í 10 til 15
mínútur. Síið og drekkið
heitt. Slíku seyði ætti að fleygja
eftir nokkra klukkutíma.
Tinktúra
Tinktúrur eru mjög sterkar blöndur
áfengis og grasa. Setjið saxað eða þurrk-
að og malað grasið í ílát með loki og
hellið vodka yfir. Hlutfall grasa og vökva
er 1 á móti 5 að rúmmáli. Látið standa
á hlýjum stað í tvær vikur og hristið
Vefjið
grisju um
grös sem búið
er að nota í seyði
eða te og leggið við
húðina þar sem eru bólgur
eða meiðsli. Leggið hitapoka ofan
á baksturinn til að halda honum heit-
um.
Nánari upplýsingar er að finna í fjölda
bóka og blaða um grasalækningar sem til
eru á íslensku. I grein Vikunnar var
stuðst við Heilsubók heimilanna (Vaka-
Helgafell).
Vikan
39