Vikan - 24.10.2000, Page 7
„Starf leiklistarráðunautar er af-
skaplega fjölbreytt og viðamik-
ið og kemur inn á marga þætti
í starfsemi leikhússins. í starf-
inu felst að vera listrænn ráðu-
nautur Þjóðleikhússtjóra og
jafnframt að vera til ráðgjafar
fyrir leikstjóra og höfunda sem
starfa við húsið. Ég vinn ýmsa
fræðilega vinnu og sé meðal
annars um leikskrárnar, ýmis-
konar fræðslustarf á vegum
leikhússinsogýmiserlend sam-
skipti."
Melkorka segir Þjóðleikhús-
iðstarfa með langtímamarkmið
að leiðarljósi. „Þjóðleikhúsið
hefur skyldur að rækja að því
leyti að f verkefnavali þess þarf
að ríkja ákveðin fjölbreytni. Auk
þess að bjóða áhorfendum upp
á vandaðar og metnaðarfullar
leiksýningar vinnur Þjóðleik-
húsið mikið ræktunarstarf fyrir
allt leikhúslistafólk, leikara,
leikstjóra og höfunda. Stefán
Baldursson þjóðleikhússtjóri
hefur til að mynda gefið fjöl-
mörgu ungu fólki tækifæri, eins
og ég og aðrir geta borið vitni
Leíkstjórnin er skapandi
Aðspurð hvort leikstjórinn
þurfi ekki að vera hálfgerðursál-
fræðingur kinkar Melkorka
Tekla kolli og segir hann þurfa
að hafa mannlegt innsæi, bæði
til þess að skilja verkið sem
hann eraðfástviðoggeta miðl-
að því til áhorfenda. „Leik-
stjórnarstarfið er mjög skap-
andi, bæði það að túlka leik-
verkið og vinna með leikurum,
leikmyndahöfundi og öðrum
sem að sýningunni koma. Það
er mikið unnið með hugmyndir
og tilfinningar, og svo reynslu
listamannanna. Mér finnst
skemmtilegast að glíma við
leikrit sem geta vakið fólk til
umhugsunar. Þaðgeta höfund-
ar gert bæði með dramatík og
kómík. Mér finnst mjög gaman
þegar höfundar geta beitt kó-
míkinni til þess að hreyfa við
okkur en við megum heldur ekki
vera hrædd við dramatíkina.
Manneskjan er alltaf að glíma
við tilfinningar, bæði ánægju-
legar og erfiðar. Tilfinningar eru
oft órökréttar og við komum
kannski ekki alltaf orðum yfir
þær en listin gefur okkur tæki-
færi til þess að öðlast nýja sýn
á þær," segir hún og fær sér
sopa af vatni.
Já, hamingjan
Á næstunni mun Melkorka
Tekla leikstýra frumuppfærslu á
nýju íslensku leikriti sem nefn-
ist Já, hamingjan og er eftir
Kristján Þórð Hrafnsson. Krist-
ján Þórður hefur sent frá sér
þrjár Ijóðabækur og er þetta
hans annað leikrit, en hann
vann fyrstu verðlaun í hádegis-
leikritasamkeppni Leikfélags
íslands í árslok 1998, með ein-
þáttungnum Leitum að ungri
stúlku sem var settur á svið í
Iðnó á síðasta ári og hlaut mikl-
ar vinsældir.
Melkorka Tekla segir nýja
leikritið, Já, hamingjan, vera
bæði dramatískt og fyndið.
„Það fjallar um tvo bræður sem
höfundur lýsir sem skapheitum,
viðkvæmum, bókelskum,
greindum og mælskum," segir
hún og hlær og bætir við að
samt sé það ekki fjölskyldu-
drama. „( leikritinu blandast
saman gaman og alvara, húmor-
inn er aldrei langt undan þótt
verið sé að fást við stórar og
mikilvægar spurningar. f verk-
inu kemur höfundur inn á ólík-
ar hugmyndir fólks um sam-
skipti og ástarsambönd. Á viss-
an hátt má segja að leikritið
snúist um baráttu manneskj-
unnar við að hafa stjórn á Iffi
sínu og tilfinningum." Aðspurð
kveðst hún hlakka mikið til að
leikstýra þessu verki. „Ég held
að þetta verði mjög áhugaverð
glíma því í verkinu er svo margt
sem mér finnst spennandi að
takast á við í leiklist. Leikritið
býður upp á skemmtilegan
skapgerðarleik og það verður
gaman að vinna með kómíkina
í því. Auk þess býður leikritið
upp á margvíslegar vangavelt-
ur og heilabrot sem mér finnst
eiga erindi við samtímann,"
segir Melkorka Tekla.
f hlutverkum bræðranna
verða þeir Pálmi Gestsson og
Baldur Trausti Hreinsson. „Ég
hef aldrei unnið með þeim áður
en þetta eru leikarar sem hafa
mikið til brunns að bera og ég
hlakka til að vinna með þeirn."
Melkorka segir leyndardómsfull
á svip að fléttan í leikritinu sé
„Um tíma fannst
mörgu leikhús-
fólki nauósynlegt
að leikhúsið væri
pólitískt, að það
væri gagnrýnið á
stjórnvöld og það
sem væri að ger-
ast útij samfé-
laginu. Ég held að
leikhúsið geti
haft mjög mikil
áhrif þótt það sé
ekki endilega að
takast á við póli-
tísk dægurmál.
Það getur haft
áhrif á samfélag-
ið með því að
hafa áhrif á hugs-
unarhátt fólks,
hvernig fólk horf-
ir á lífið og metur
líf sitt og ann-
arra.“