Vikan - 24.10.2000, Síða 10
Texti: Guðríður Haraldsdóttir
Myndir: Hreinn Hreinsson og úr einkasafni
Hljómsveitin The
Adverts á hátindi ferils-
ins að spila í Marquee
við Wardor Street í
Soho í Lundúnum. Að-
eins bestu hljómsveit-
irnar fá að spila í þess-
um sal sem tekur ein-
ungis 1.500 áheyrend-
ur. Stórhljómsveitir eins
og The Who, Led Zepp-
elin og Rolling Stones
hafa spilað í Marquee.
Sjá má Laurie við
trommurnar lengst til
vinstri á myndinni.
■ 1
: 1' 1 Í
■ 1
Hf
, m s
Árið 1977 var mikið breytingaár í sögu tónlistar í heimin
um. Elvis dó, diskóið kom og fór, pönkið var í algleym-
ingi og hljómsveitin The Adverts, fyrst allra pönkhljóm-
sveita, kom lagi inn á topp tíu listann í Bretlandi. í kjöl-
farið spilaði hún þrisvar í Top of the Pops á BBC sjón-
varpsstöðinni. í maíhefti
tónlistartímaritsins MOJO á
þessu ári má finna heilsíðu-
grein um The Adverts undir
fyrirsögninni: Buried trea-
sure -The great albums that
time forgot. Einnig hafa ver-
ið sýndir þættir um hljóm-
sveitina á tónlistarstöðvun-
um VH1 og MTV. Hún er
því síður en svo gleymd og
grafin. Trommuleikari The
Adverts, Laurie Driver,
kynntist íslenskri konu og
flutti með henni til íslands.
Hann hefur búið hér á landi
í 14 ár og segist kunna
ágætlega við land og þjóð.
- Sláturhússsjokk
„Ég kynntist íslenskri konu,
Ósk Oskarsdóttur, þegar ég bjó
um tíma úti í Amsterdam en
hún var fyrsti íslendingurinn
sem ég hitti," segir Laurie. „Ég
varð hissa þegar hún sagði mér
hvaðan hún
kæmi því ég
hélt að hér
byggju aðeins
eskimóar í snjó-
húsum. Égflutti
síðar með henni
til íslands og
hef búið hér í
14 ár,“ bætir
hann við. „Við
„Þarna
stóðu
átrúnaðar-
goðin mín
úr Slade
Ijóslifandi
og voru að
hlusta á
okkur spila.
Það var frá-
bær
stund.“
10 Vikan
Ósk erum skilin en eigum sam-
an þrjú börn og þeirra vegna er
ég hér enn. Annars væri ég
kannski farinn, en kannski ekki.
Það er ómögulegt að segja því
ég kann vel við mig hér.“
Laurie hefur unnið margvís-
legstörf frá því hann flutti til (s-
lands. „Fyrsta starfið mitt var
hjá skipasmíðastöðinni Stálvík
en ég hef einnig unnið við mal-
bikun, verið í byggingarvinnu og
í fiski," segir hann. „Ég hef ekki
góða menntun og verð því að
taka þeirri vinnu sem býðst.
Einu sinni fórum við Ósk, ásamt
fjórum vinum okkar, út á land
þvf okkur hafði verið lofað starfi
í frystihúsi. Ég man ekki leng-
ur hvaða staður það var en um
fjögurra eða fimm tíma keyrsla
var þangað frá Reykjavík. Þeg-
ar við mættum kom í Ijós að
enga vinnu var lengur að fá en
okkur var sagt aðfara til Horna-
fjarðar því þar vantaði fólk. Ég
bjóst vitanlega við því að það
væri fiskvinna en annað átti eft-
ir að koma í Ijós," segir hann