Vikan - 24.10.2000, Blaðsíða 14
Texti: Hrund Hauksdóttir
/
/
egominn
Útlit og fegurð kvikmyndastjarnanna í Hollywood
er sjaldnast hægt að rekja til þess að þær hafi
fengið stóra vinninginn í hinu ófyrirsjáanlega
erfðahappdrætti. Óaðfinnanleg húð, glansandi hár
í Hollywood
Stjörnurnar leggja allt í sölurnar
til bess að líta vel út
og glæsilegur vöxtur er eitthvað sem hefur kost-
að þær ærna fyrirhöfn og þrotlausa vinnu. Vö
skulum kíkja aðeins á bak við tjöldin og fletta ofan
af fegurðarleyndarmálum stjarnanna.
Engin appelsínuhúð né
bólur f Hollywood
Hafið þið veitt því eftirtekt
aðfræga, fínafólkið í Hollywood
er alltaf jafnfullkomið í útliti,
hvort sem það er viðstatt há-
tíðleg tækifæri eða er bara að
skjótast í næstu matvöruversl-
un? Ljósmyndarar elta þetta
fólk á röndum og smella af því
myndum í gríð og erg en samt
eru stjörnurnar alltaf jafnfalleg-
ar og óaðfinnanlegar. Enginn
sést með bólu á nefinu eða
myndarlega frunsu á ósk-
arsverðlaunahátíðinni en venju-
legar konur þurfa jafnvel að fást
við hvort tveggja, sérstaklega
þegar eitthvað mikið stendur til,
eins og t.d. árshátíð eða stóraf-
mæli. Það hefur ekki enn tek-
ist aðfesta áfilmu illagreitt hár
á stjörnum eins og Jennifer Ani-
ston, Courteney Cox eða Kate
Moss jafnvel þótt þær séu bara
á leiðinni út með ruslið heima
hjá sér. Svo stóra spurningin er:
Hvað er það sem gerir appel-
sínuhúð, bólur, slitið hár og
flagnað naglalakk jafn sjaldgæft
í Hollywood og súrefni á mars?
Við fáum að sjálfsögðu hinar
undariegustu yfirlýsingar frá
fræga fólkinu sem við eigum
bágt með að trúa. Tökum Kate
Moss sem dæmi en hún stað-
hæfir að hún viti fátt skemmti-
legra en að borða, hún elski
óhollan mat og borði eins mik-
ið af ruslfæði og henni sýnist.
Einmitt. Stúlkan er eins og
pípuhreinsari í vextinum.
í gegnum tíðina hafa banda-
rískar stórstjörnur slegið um sig
her af stílistum, næringarfræð-
ingum, lýtalæknum, heilurum
og nýaldargúrúum til þess að
líta sem best út. Nú eru bresku
stjörnurnar að feta í þeirra spor.
Stjörnurnar fara í fitusog, vara-
og sílíkonfyllingar, fá snilldar-
lega förðun og hárgreiðslu, not-
ast við einkaþjálfara, hafa kokk
á sínum snærum sem eldar
holla og gómsæta grænmetis-
rétti og daglegt nudd og inn-
hverfa íhugun hjá fagmönnum
sem koma heim til þeirra. Hver
einasta venjuleg kona ætti að
geta litið út eins og stórstjarna
væri hún með greiðan aðgang
að allri þessari þjónustu. Ann-
að er varla hægt! Það er kannski
ekki nema von að stjörnurnar
eyði öllum þessum tíma og pen-
ingum í að líta vel út því þær
starfa í atvinnugeira þar sem
frami þeirra byggist nær ein-
göngu á útliti þeirra og það er
heilmikil vinna. Viðerum nefni-
lega ekki að tala um þá daga
þegar það þótti nóg að borða
epli og leggja stund á líkams-
rækt í hálftíma á dag, þrisvar
sinnum í viku. f dag er óskin um
stæltan, grannan líkama, ör-
mjótt mitti og eilífa æsku orð-
in örvæntingarfull og allt er lagt
ísölurnartil þessaðóskin megi
rætast.
Hvað fer inn um sflíkon-
varir englakroppannaP
Megrunarkúrar sem byggja á
blóðflokki einstaklinga, Zone-
mataræðið, kristallar fyrir húð-
ina, sprautur fylltar svínshúð
til að fá meiri fyllingu í varirnar
og næringarefni úr hrossahári er
bara fátt eitt af því sem stjörn-
urnar slefa yfir.
Þetta eru engar ýkjur. Nýlega
greip um sig mjög vinsælt æði
meðal stjarnanna en það byggð-
ist á því að aldrei mætti drekka
vatn nema það væri við stofu-
Kvisast hefur út að Janet
Jackson láti sprauta sig
reglulega með hrossa-
hlandi.
hita, því annars gæti það trufl-
að meltinguna. Auk þess var
talið mjög hallærislegt að biðja
um kalt vatn á veitingastöðum.
Hvernig stórstjörnurnar borða
snýst ekki um ánægju, eins og
hjá meðalmanninum, það er
öllu heldur vísindalegt ferli.
Einkaþjálfunin virðist nú vera
á undanhaldi en í staðinn er ,,í
tísku“ að vera með næringar-
fræðingviðhöndina, daginn inn
og, sem mælir nákvæmlega út
hvað fer inn um sílikonvarir
englakroppanna. Dr. Gillian
McKeith, sem hefur starfað
sem næringarfræðingur í Los
Angeles til margra ára, segir að
stjörnurnar þurfi að leggja mikla
vinnu á sig til þess að halda
líkamanum í góðu formi: ,,Þær
þurfa að þjálfa líkamann svo
klukktímum skiptir, neyta hár-
réttrar fæðu og taka inn réttu
fæðubótarefnin. Það er ekki
erfitt að fá þetta fólk til þess
að fara eftir því sem maður ráð-
leggur þeim því það er reiðu-
búið til að gera hvað sem er til
þess að viðhalda Hollywood
ímynd sinni.“ Dr. Gillian er
virkilega að tala í fullri alvöru
þegar hún segir að fólk sé reiðu-
búið að gera hvað sem er fyrir
útlitið. Tökum bara sem dæmi
leikkonuna Portia De Rossi sem
leikur Nelle í Ally McBeal þátt-
unum en hún er afskaplega
grönn. Hún sagði í viðtalsþætti
hjá Jay Leno að hún borði aldrei
standandi og það sem meira er,
lætur aldrei ólíka fæðu snert-
ast á matardisknum: ,,Þetta er
ekki alveg ófrávíkjanleg regla,“
sagði hún í þættinum, rétt eins
og þessi furðulegheit hennar
væru annars eðlileg, „Undir
vissum kringumstæðum mega
baunir og gulrætur snertast."
Hvaða kringumstæður ætli það
séu?!
14
Vikan