Vikan - 24.10.2000, Page 16
Victoria Beckham spáir
mjög mikið í útiit sitt og
þykir mörgum nóg um
hvað hún hefur grennst.
eru til pillur sem ,,redda" því.
Demi Moore tekur ,,bluegreen
alae“ sem er víst sambland af
fæðu bótaref n u m og vítam ín u m,
Daryl Hannah drekkur vatn með
muldum perlum sem kostar um
20.000 krónur hver matskeið.
Það læðist að manni sú spurn-
ing hvort þetta fólk hafi ekki
meiri fjárráð en gáfnafar. En
Daryl er sannfærð um að svona
fái hún kalk í sínu hreinasta
formi og að auki geri þetta
perluvatn augu hennar skærari
og tennurnar hvítari.
Stjörnulíkamsrækt
Stjörnurnar huga ekki bara
vandlega ( eða sjúklega) að
mataræði sínu heldur fylgjast
þær með öllum nýjungum í lík-
amsræktarmálum. Um þessar
mundir er mjög vinsælt að
panta sér húsvagn.sem er útbú-
inn með fullkomnum æfinga-
tækjum, á tökustað. Það er ekki
lengur nóg að hjóla eða eða
hamast á þrekstiga svo tímum
skiptir. Fyrir hinum ríku og
frægu er sú tegund þjálfunar
sem þeir leggja stund á jafn
mikilvæg og nýjasta handritið
sem þeireru að vinna með. Lisa
Kudrow og Rosanne Arquette
16 Vikan
eru í svokölluðum ,,gospel -
areobictímum og ekki megum
við gleyma karaókíspinning en
leikararnir Alicia Silverstone og
Matt Le Blanc eru mjög hrifnir
af því. Það fer þannig fram að
hver og einn í hópnum syngur
sitt uppáhaldslag á meðan all-
ir hamast á spinninghjólunum.
Jóga hefur verið til í meira
en 2000 ár en hefur aðeins ný-
lega komist á vinsældarlistann
hjá stjörnunum. ( sumum jóga-
tímum er kveikt á kertum og far-
ið með möntrur. f öðrum er far-
ið í svitahof, sem eru sjóðheit
herbergi sem eiga víst að mýkja
vöðva og losa líkamann við eit-
urefni. Sarah Michelle Geller,
Madonna og Gwyneth Paltrow
eru á kafi i jóga og sömu sögu
er að segja um Courteney Cox
en hún sagði nýlega í viðtali að
hún hefði prófað margar teg-
undir af jóga: ,,Mér finnst allar
gerðir af jóga frábærar. Mér líð-
ur svo æðislega vel á eftir að það
er engu líkt.“
Eiturefnum sprautað í
andlitið
Kvikmyndahúsagestir vita að
það er ekkert nýtt að stjörnurnar
taki breytingum í útliti. Águllnu
árum Hollywood stjórnuðu kvik-
myndaverin lífi stjarnanna.
Judy Garland, sem átti í baráttu
við aukakíló allt sitt líf, var sett
á amfetamín og Norma Jean
fékkgefins nafnið Marilyn Mon-
roe og nýtt nef í kaupbæti.
Að sjálfsögðu eru stjörnurn-
ar enn undir ákveðnum þrýst-
ingi varðandi útlit sitt frá um-
boðsmönnum sínum, kynning-
araðilum og framleiðendum.
Hið stöðuga kastljós fjölmiðla,
sem ervarpað á þetta fólk, legg-
ur enn meiri pressu á það til að
líta alltaf vel út. Þetta er geng-
ið út í svo miklar öfgar að sum-
ar stjörnur panta hárgreiðslu-
meistara og snyrtifræðing heim
til sín til þess að láta dubba sig
upp áður en þær fara út að
versla. Stjörnurnar eru undir
stöðugri smásjá og kannski eng-
in furða að þær vilji ekki láta
birta myndiraf sér, jafnvel áfor-
síðum tímarita, með úfið hár
og bauga undir augunum.
Húð- og lýtalæknar hafa
meira en nóg að gera í
Hollywood. Dr. Harold Lancerer
sérfræðingur í húðlækningum í
Beverly Hills: ,,Gamla andlits-
lyftingin, þar sem strekkt var á
húðinni, er ekki vinsæl lengur.
Fólk í dag vill hafa útlitið sem
eðlilegast."
(fljótu bragði er þó ekki hægt
að sjá neitt eðlilegt við það að
sprauta eiturefnum eins og
botox í andlitið. Samt þykir
stjörnunum það ekki meira til-
tökumál en að fá göt í eyrun!
Ein vinsælastaaðgerðin ídager
vöðvalamandi sprauta sem er
notuð til þess að strauja út
hrukkur á enninu. Paula Yates,
sem féll nýlega frá með voveif-
legum hætti, er ein fjölmargra
sem notaðist við slíkt. Lýta-
læknirinn Dr. Richard Giogau
hefur sagt að hann hafi spraut-
að margar leikkonur með svona
sprautu rétt fyrir óskarsverð-
launaafhendingu, þeirra á með-
al Ann Heche og Salma Hayek.
Minnie Driver var hrædd við
þetta en pantaði sér tíma og
hætti við á síðustu stundu.
Enska rósin Kate Winslett
er talin hafa mjög heiibrigt
útlit enda segist hún aldrei
hafa farið í megrun.
Lúxusmeðferðarstöð Clin-
ique, La Prairie í Genf, hefur
dekrað við leikara eins og
Rupert Everett, Sylvester
StalloneogJerry Hall. Sérgrein-
in þar á bæ er meðferð sem
byggir á endurnýjun frumna en
við þaðferli er notastviðfrum-
ur úr kindafóstrum í þeim til-
gangi að reyna að hafa áhrif á
þær frumur sem annars deyja
vegna aldurs.
Dr. Lancer mælir þó sérstak-
lega með því að stjörnurnar fari
strax að vinna gegn öldrun húð-
arinnar í kringum tvítugsaldur-
inn og notist t.d. við svokallað
,,Power peeling“ eins og Victor-
ia Becham gerir. Hún viðheld-
ur húð sinni unglegri með þess-
ari hátækni - skrúbbmeðferð.
Þá er notast við mulinn kristal
á andlitshúðina til þess að fjar-
lægja dauðar húðfrumur og síð-
an eru þærsognar upp með sér-
stökutæki. Dr. Lancertelursíð-
an eðlilegt þegar konur séu
orðnar þrítugar að þær fái sé
collagen fyllingu í varirnar eins
og bæði Patsy Kensit og Mel-
anie Griffith hafa gert. Spraut-
urnar kosta 300 pund og end-
ast í hálft ár en nú er kominn
langur biðlisti eftir að fá svíns-
húð í varirnar. Sú meðferð er
varanleg. Hafa þessar konur
ekki heyrt um varalitablýanta?
Fitusog trónar þó enn á
toppnum sem langvinsælasta
aðgerðin. Þegar Nicole App-
leton í hljómsveitinni All Saint
fitnaði dálítið, borgaði hún
4000 pund fyrir fitusog á sama
spítala og systir hennar,
Natalie, hafði nýlega farið f
brjóstastækkun. „Nicolefannst
hún ekki hafa tíma til að fara í
megrun og dreif sig því í fitu-
sog," segir náin vinkona henn-
ar.
Meira að segja fullkomnu
hjónin, Jennifer Aniston og
Brad Pitt, lifa í stöðugri hræðslu
við að aukakíló geti stöðvað
starfsframa þeirra og haga lífstíl
sínum í samræmi við það.
Það er Iftill glamúr í kringum
vinnu þar sem útlitskröfurnar
eru svo yfirgengilegar að fólki
lætur sprauta hrossahlandi og
kindafóstursfrumum í líkama
sinn. Svo venjulegar, hraustar
konur ættu að hrósa happi yfir
að lifa eðlilegu lífi, jafnvel þótt
þær skríði ekki upp í rúm til
Brads Pitt á kvöldin ...
Rosie O’Donnel harðneitar
að grenna sig og segist
vera ánægð með útlit sitt.