Vikan - 24.10.2000, Blaðsíða 22
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Hefnd nauðgarans
Renae Ahlers
Wicklund bjó í
smábænum
Clearview rétt
fyrir utan Was-
hington. Hún
var gift og átti
eina dóttur og
trúði því að í
þessum frið-
sæla smábæ
gerðist aldrei
neitt Ijótt og því
væri hann kjör-
inn staður til að
ala upp barn.
Renae reyndist
hafa rangt fyrir
sér því illskan
getur alls stað-
ar leynst og alls
staðar skotið
upp kollinum.
Hinn 11. desember
1974 varóvenjuheitt
í Washington. Venju-
lega rignir mjög mik-
ið á þeim árstíma á þessu svæði
en þennan dag skein sólin og
hitinn var eins og á góðum sum-
ardegi. Renae ákvað að þvo
gluggana í húsi sínu að utan.
Klukkan vareitthvað um hálftvö
þegar hún bar litlu dóttur sína
út og setti hana niður á gras-
blettinn fyrir framan húsið.
Barnið lék sér ánægt að leik-
föngum sínum meðan móðir
þess hamaðist við að pússa
gluggana. Renae vissi ekki hvað
tímanum leið en allt í einu varð
hún vör við að einhver gekk eft-
ir heimreiðinni upp að húsinu.
Hún sá að þetta var hávaxinn
maður með þykkt úfið yfirskegg
og kastaníubrúnt hár sem greitt
var í afrófléttur. Hún taldi lík-
legast að hann hefði farið upp
að röngu húsi og myndi fljótlega
gera sér grein fyrir mistökum
sínum. Hún skildi barnið því
eftiroggekk inn í húsiðtil að ná
í fleiri tuskur.
Þegar hún leit út sá hún að
maðurinn hljóp við fót upp að
húsinu. Renaefylltist skelfingu
og það fyrsta sem henni datt í
hug var að hann hyggðist ræna
barninu. Hún hljóp því út, greip
barniðoggerði örvæntingarfulla
tilraun til að komast inn í hús-
ið. Maðurinn var kominn það
nálægt að áður en henni tókst
að skella hurðinni í lás var hann
kominn og ruddist inn. Hann
hélt á hnífi og otaði honum að
barninu. Renae missti ekki
stjórn á sér heldur reyndi að tala
rólega við manninn. Hún spurði
hann hvort hún gæti eitthvað
gert fyrir hann. Maðurinn svar-
aði að þaðgæti hún sannarlega.
Hún gæti komið sér úr fötun-
um og það á stundinni annars
dræpi hann barnið. Renae þorði
ekki annað en að hlýða og síð-
an neyddi maðurinn hana til að
hafa munnmök við sig. Barnið
hafði hún sett á gólfið að beiðni
mannsins og það grét hástöfum
meðan móðir þess bað þess
heitt og innilega í hljóði að þær
mæðgur slyppu óskaddaðar frá
þessu. Þegar maðurinn hafði
lokið sér af muldraði hann
þakka þér fyrir og fór.
Það fyrsta sem Renae gerði
þegar hún slapp var að hlaupa
Renae Wicklund hélt að
ekkert illt gæti hent í smá-
bæ.
inn á baðherbergi og þvo vand-
lega á sér munninn. Næst
klæddi hún sig, tók dóttur sína
í fangið og hljóp í einu spretti
yfir (næsta hús. Hjónin sem þar
bjuggu voru vinafólk hennar og
sérstaklega voru hún og ná-
grannakona hennar Barbara
nánir vinir. Vinkonu hennar
nægði að líta framan í hana til
að gera sér grein fyrir að eitt-
hvað mjög alvarlegt hafði gerst.
Hún dró hana inn, lokaði dyrun-
um og þá gat Renae loks stun-
ið því upp að vopnaður maður
væri á ferli einhversstaðar í ná-
grenninu, hann hefði nauðgað
sér og að hún væri dauðhrædd
um að hann tæki upp á að koma
aftur. Konurnar lokuðu sig inni
í húsinu og Barbara dró fram
hlaðna haglabyssu mannsins
síns. Það var fyrst þá sem kon-
unum fannst þær nógu örugg-
ar til að geta hringt á lögregl-
una.
Klukkan tuttugu og fimm
mínútur gengin í þrjú þennan
dag ók lögreglubíllinn upp að
húsi Henderson hjónanna.
Renae gat gefiðgreinargóða lýs-
ingu á manninum og með hjálp
hennar tókst lögreglunni fljót-
lega að handtaka mann sem
svaraði til hennar. Sá hét
Charles Campell og hafði verið
vandræðagepill nánastfrá fæð-
ingu. Campell átti ættir að rekja
til innfæddra Hawaiibúa og
systir hans var fötluð. Af þess-
um sökum stríddu krakkarnir í
barnaskólanum honum mis-
kunnarlaust. Hann slóst við
stríðnispúkana bæði til að verja
systur sína og af sífellt meiri
ofsa og hatri eftir því sem hann
var kvalinn lengur. Foreldrar
systkinanna gáfust upp á
ábyrgðinni sem börnunum
fylgdi þegar þau voru mjög ung
og skildu þau eftir hjá afa sín-
um og ömmu. Svo virðist að
þeim hafi aldrei liðið fullkom-
lega vel hjá gömlu hjónunum
því drengurinn strauk hvenær
sem færi gafst og lögreglan
hafði afskipti af honum vegna
ýmiss konar smáafbrota löngu
áður en hann komst á unglinga-
stigið í skóla en hann var byrj-
aður að skrópa í skóla, drekka
og nota dóp áður en hann náði
þrettán ára aldri.
Drengurinn hafði nokkrum
sinnum verið látinn á upptöku-
heimili en dvölin þar varð síð-
ur en svo til að bæta skapferli
22
Vikan