Vikan - 24.10.2000, Page 31
Cathrine Zeta Jones hefur
svo fallega húð að hún not-
ar ekki meik yfir daginn.
Hún dustar þó aðeins með
pensli með kinnalitspúðri
yfir kinnbeinin og notar
kóralrauðan lit. Cathrine
kann best við viðarkols-
brúnan lit á augnlokin sem
er mildur jarðlitur. Hún not-
ar svartan augnblýant til að
gera línu á innri brún augn-
anna og síðan ber hún
maskara létt á augnhárin.
Augnabrúnirnar skýrir hún
með brúnum augnskugga
en passar sig að nota alls
ekki of mikið. Yfir daginn
notar hún koníaksbrúna
varaliti og það klæðir hana
mjög vel.
Cher er áræðin kona og
notar iðulega sterka liti
jafnt á daginn sem á kvöld-
in. Hér hefur hún valið
heiðbláan augnskugga
ofan á Ijósbrúnan, út við
augnkrókana bætir hún við
dekkri brúnum lit. Meikið
er Ijóst en kinnbein og
kjálkalína skyggð með leir-
brúnum lit. Cher notar
svartan maskara og mikið
af honum. Á augnabrúnir-
nar notar hún millibrúnt
púður. Á daginn notar hún
gjarnan Ijósbrúnleita eða
ferskjulitaða varaliti.
Á kUÖIdín notar Cathrine
meik sem er einum litatóni
Ijósara en hennar eigin
húð. Hún er eins og margar
dökkhærðar konur með
postulínshvíta húð og hún
vill gjarnan halda þeim
húðlit. Hún ber silfurhvítan
skugga á kinnbeinin og ör-
lítinn rósrauðan kinnalit
ofan á. Á kvöldin notar hún
gjarnan silfurgráa, gullna
eða fjólubláa augnskugga
og ber blautan, svartan
augnlínublýant á augnlokin
við augnhárin og á innri
brún augnanna að neðan-
verðu. Að lokum setur hún
á sig maskara og sterk-
rauðan varalit, búrgúndar-
víns- eða kirsuberjarauðan.
Jennifer Aniston notar
þunnt, Ijóst dagkrem yfir
daginn og skýrir augna-
brúnirnar lítillega með
brúnum augnabrúnablý-
anti. Hún notar grábrúna
eða Ijósa augnskugga en
dregur línu með útlínum
augnanna með dökkgráum
augnblýanti og að lokum er
svartur eða grár maskari
borinn á augnhárin. Var-
irnar málar hún í mildum
litum, gjarnan bleikum eða
Ijósfjólubláum tónum.
Madonna notar eins og
hinar mjög Ijóst meik, jafn-
vel einum tóni Ijósara en
hennar eigin húðlitur er,
litatónarnir hennar heita
postulínshvítt og alabast-
urshvítt. Hún notar einnig
gagnsætt, matt púður og
Madonna vill ekki laust
púður. Hún velur rósbleik-
an kinnalit á daginn og ber
hann yfir alla kinnina. Á
augnlokunum er Ijósgylltur
augnskuggi og útlínur
augnanna eru dregnar með
fjólubláum augnblýanti.
Maskara notar hún óspart
á daginn og í þetta sinn
eykur hún enn á áhrifin
með fölskum augnahárum.
Á daginn burstar hún
augnabrúnirnar upp en lit-
ar þær ekki. Að þessu sinni
hefur Madonna valið sér
rósbleikt gloss á varirnar.
dagliturinn og kinnaliturinn
og varaliturinn ferskjulitað-
Á kuöldin notar Cher silfur-
lita og kóngabláa
augnskugga. Hún notar
gjarnan glitrandi liti eða
augnskugga sem blandaðir
eru glimmer. Útlínur augn-
anna eru dregnar með
dökkbláum augnblýanti.
Meikið er heldur dekkra en
Á kUÖIdín notar hún Ijóst
meik en skyggir kinnbein,
nef og kjálkalínu með
bronspúðri. Hún notar
dökkbrúnan augnabrúna-
blýant á augnabrúnirnar og
ber silfurlitan augnskugga
á svæðið undir þeim.
Augnlokin eru með
bronslitum skugga og
svartur augnblýantur er
notaður til að draga útlínur
augnanna. Maskara notar
Jennifer alltaf sparlega og
vill ekki bera hann þykkt á.
Varirnar eru málaðar í
rúbínrauðum lit.
Á kuöldill notar hún Ijóskór-
alrauðan eða ferskjulitan
kinnalit á kinnbeinin. Á
augnlokin ber hún blautan
augnlínublýant og dregur
breið strik. Hún setur eng-
in strik neðan við augað né
heldur á augnhvarmana.
Þarna er hún með límónu-
grænan augnskugga og
hún ber maskarann ein-
göngu á efri augnhárin.
Augnabrúnirnar dregur hún
með millibrúnum augna-
brúnablýanti. Varaliturinn
er rúbínrauður og að sjálf-
sögðu er glært gloss borið
ofan á aðallitinn.
Vikan
31