Vikan


Vikan - 24.10.2000, Page 32

Vikan - 24.10.2000, Page 32
 Hér hefur verið út- búin leikaðstaða fyrir börnin við stóran glugga sem gefur frá sér mikla birtu. Tölustafirnir sem eru stenslaðir á borðið og stólana er óneitanlega frumleg og skemmtileg aðferð til skreytingar. Við svona borð er til- valið að læra heima eða bara leika sér. Þetta bjarta barnaherbergi er mjög fallegt. Hér er aðallega notast við grænt og hvitt í litavali. Grænn litur er talinn hafa róandi áhrif og því ekki úr vegi að nota hann í svefnherbergi fjörmikilla krakka! Gamli bangsinn á borðinu setur sætan svip á heildarmynd- ina og sömu sögu er að segja um hvítu skyrtuna sem hangir á herðatré i glugganum.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.