Vikan - 24.10.2000, Qupperneq 46
Anne. „Eg fór fram til þess að
ná mér í tebolla og þegar ég
kom til baka var hún að snuðra
inni á skrifstofunni hans Dani-
els. Ginny var búin að segja
henni að hann væri ekki við.
Satt að segja ski I ég ekki hvern-
ig Daniel þolir hana.“
„Hún er skjólstæðingur
hans," sagði Charlotte eins ró-
lega og hún gat. Reiðin kraum-
aði í henni.
„Þú átt við að hún hafi verið
skjólstæðingur hans. Það eru
margar vikur síðan gengið var.
frá búskiptunum en hún held-
ur áfram að koma hingað og
heimtar að fá að tala við Dani-
el. Og hún hefur ekki einu sinni
fyrir því að panta tíma. Auðvit-
að vitum við öll hvað hún vill
en ég get ómögulega skilið
hvers vegna Daniel lætur hana
komast upp með þessa fram-
komu.
Ég veit að hún er auðug og
býst við að karlmönnum finn-
ist hún kynþokkafull, það er að
segja ef þeir eru hrifnir af vam-
pírum, en ég hélt að Daniel
hefði betri smekk en svo. Þótt
við höfum öll verið að grínast
með það hvernig hún gengur á
eftir honum hef ég aldrei trúað
því að það væri eitthvað á milli
þeirra."
„Og nú.“ spurði Charlotte
varlega. Hjartað hamaðist í
brjósti hennar.
Anne yppti öxlum.
„Hvað á maður að halda?
Eins og ég sagði var erfðaskrá
Paul Winters ekki flókin. Hann
arfleiddi hana að öllu. Það var
heilmikið reiðarslag fyrir Gor-
don, stjúpson Pauls af fyrra
hjónabandi. Þeir Gordon voru
mjög nánir þangað til hún kom
til skjalanna. Hann tók við
rekstri fyrirtækisins þegar Paul
fórá efirlaun ogallir höfðu stað-
ið í þeirri trú að Paul myndi láta
Gordon eftir fyrirtækið. En það
var ekki svo mikið sem minnst
á hann í erfðaskránni."
„Það voru uppi einhverjar
sögur um það að þeir hafi rifist
þegar Paul giftist Patriciu.
Svona eru þessir karlmenn. Þeir
virðast ekki sjá það sem er að
gerast beintfyrirframan nefið á
þeim. Sérstaklega þegar hlutir-
inir koma í skrautlegri gjafa-
pakkningu eins og Patricia.
Hvað um það, mér tókst að losa
okkur við hana með því að segja
að það væri ákaflega ólíklegt
að Daniel yrði við í dag. Er eitt-
hvað að?“
„Eitthvaðað? Nei, allsekki,"
lföðvabólga P
Höfuðverkur ?
BlOflex seeulmeðferð hefur slegið ígegn á íslandi. Um er að
ræða seguípynnur í 5 stærðum sem festar eru á líkamann með
húðvænum plástri.
r€mas
Ég hef kvalist af höfuðverk
og vöðvabólgu í hnakka í
mörg ár, reynt flest sem í
boði er án árangurs.
Ótrúlegt en satt að tvær
segulþynnur geti breytt
öllu. Mæli svo sannarlega
með þeim.
Kristjana Kristjánsdóttir, nemi
SCANDINAVIA
Dæmi þar sem BlOflex
segulþynnan hefur sýnt
frabær áhrif
Höfuðverkur
• Hnakki
• Axlir
• Tennisolnbogi
• Bakverkir
• Liðaverkir
• Þursabit
• Hné
• Æðahnútar
• Ökklar
Segulþynnurnar eru fáanlegar
í flestum lyfjaverslunum,
Heilsuhúsinu, Yggdrasil og
Græna Torginu - Blómavali
ítarlegar íslenskar leiðbeiningar
Upplýsingasími er 588 2334
laug Charlotte og reyndi að
lauma smá glaðværð í röddina.
Orð Anne komu henni í upp-
nám. Myndi Daniel sýna henni
slíkan áhuga ef hann væri í ást-
arsambandi við aðra konu?
Hvers vegna ekki? Ef Anne hafði
rétt fyrir sér og búið væri að
ganga frá erfðamálunum, hvers
vegna komst Patricia upp með
að eyða svona miklu af tíma
hans?
„Ertu að vinna að Calvin mál-
inu?“ spurði Anne og virti fyrir
sér skjölin á skrifborðinu. „Er
það ekki málið þar sem skjól-
stæðingur ykkar stefndi vinnu-
veitendum sínum fyrir að hafa
ekki sama rétt á barnsburðar-
leyfi og konur?"
Jú, það er rétt,“ svaraði
Charlotte. Hún reyndi að kreista
fram bros og bætti við: „Þetta
er mikilvægt prófmál. En því
miður er ég hrædd um að við
eigum litla möguleika á að
vinna það.“
„Ég er sammála því,“ sagði
Anne. „En það er samt dæmi-
gert fyrir Daniel að taka að sér
svona mál.“
„Til þess að fá umfjöllun í
fjölmiðlunum? Áttu við það?“
spurði Charlotte þurrlega.
Anne leit á hana og hristi höf-
uðið. „Daniel er ekki þannig,"
sagði hún ákveðin. „Hann hef-
ur meiri áhuga á að réttlætið nái
fram að ganga heldur en að fá
mynd af sér í blöðunum. Þú
getur ekki trúað því hversu
mörg mál hann tekur að sér án
þess að taka krónu fyrir. Á móti
kemur auðvitað að við fáum
mörg mál sem er mjög vel borg-
að fyrir.“
,,Já,“ sagði Charlotte háðs-
lega. „Manngæskuna verðurað
fjármagna á einhvern hátt."
Hvers vegna þurfti hún alltaf
að lenda í einhverju svona?
Aðra mínútuna var hún viss um
að Daniel væri útsmoginn
smjaðrari og þá næstu neydd-
ist hún til þess að viðurkenna
að hann væri umhyggjusamur
og góður.
Anne fór fram og Charlotte
ýtti blöðunum frá sér, stóð upp
og starði út um gluggann.
Reyndu að hugsa rökrétt,
sagði hún við sjálfa sig. Gott
og vel, kannski kitlaði það hé-
gómagirnd Daniels að Patricia
sýndi honum áhuga. Mundu að
hann þekkti hana áður en hann
kynntist þér. Þótt þau hafi ein-
hvern tímann verið saman er
ekki þar sem sagt að þau séu
það lengur.
En svo minnti hún sig á að
hann hafði boðið Patriciu með
sér út að borða, sama kvöldið og
þær Sarah fóru út. Hann kynnti
hana sem skjólstæðing sinn,
jafnvel þótt hann væri búinn að
ganga frá öllum hennar málum,
eftir því sem Anne sagði. Hann
gæti verið að vinna að öðru máli
fyrir hana, hugsaði hún. Hún
gæti komist að því, einfaldlega
með því að spyrja hann.
En hún vissi að það myndi
hún aldrei gera. Hún var ekki
nógu sjálfsörugg til þess að
spyrja hann út í gömul ástar-
sambönd. Þau höfðu ekki
þekkst nógu lengi, samband
þeirra stóð ekki á nógu traust-
um grunni.
Hvaða samband? spurði hún
sjálfa sig reiðilega. Kannski var
hann bara að leika sér að henni,
kannski ...
Hættu þessari vitleysu. Hann
er ekki þannig maður. Hún
reyndi að hugga sig við það, en
einhver innri rödd spurði hana
háðslega hvort hún þekkti hann
nógu vel til þess að geta verið
viss. Hvers vegna ertu að kvelja
þig svona? spurði hún sjálfa sig
reiðilega. Hvers vegna þarftu
alltaf að vera svona hrædd og
óörugg?
Daniel kom um kaffileytið.
Charlotte heyrði að Anne var
inni hjá honum þegar hún kom
niður úr „vöggustofunni". Hún
heyrði dyrnar opnast og Anne
fara fram. Hana langaði að
standa upp og fara inn á skrif-
stofuna hans, til þess að full-
vissa sjálfa sig um að hana hafði
ekki dreymt það sem gerðist
kvöldið áður.
„Þú ert aldeilis niðursokkin."
Hún spenntist upp þegar hún
heyrði hlýjuna í rödd hans.
Hann tók sér stöðu við hliðina
á henni en hallaði sér ekki yfir
hana eins og hann var vanur.
46
Vikan