Vikan - 24.10.2000, Side 54
Texti: Jóhanna Harðardóttir
Lfifið
Goðir skor
Góðir gönguskór eru mikils
virði. Það borgar sig svo sann-
arlega að kaupa skó sem fara vel
með fæturna og eru stöðugir í
hálkunni þótt dýrir séu. Þegar
þú velur skó ættirðu að vera í
meðalþykkum sokkum, máta
báða skóna og ganga
þeim nokkra
hringi í búðinni
áður
en þú
kaupir þá.
Kauptu aldrei skó sem meiða
þig í þeirri von að þeir muni lag-
ast með tímanum. Skórnir eiga
að passa og vera þægilegir strax
þótt reikna megi með að þeir
mýkist eftir því sem lengur er
gengið í þeim. Konur þurfa sér-
staklega að gæta þess að skórnir
haldi vel um ökklann, því ökkl-
ar kvenna eru mun viðkvæmari
en karla. Veldu þér skó sem
auðvelt er að reima og best er
að það séu krækjur en ekki göt
fyrir reimarnar í nokkrum efstu
festingunum til að flýta fyrir.
Mundu svo að bera reglulega
á gönguskóna þína. Með því
móti geta þeir enst í áratug eða
jafnvel áratugi!
Sparikaffi með
litilli fyrirhöfn
Hver kannast ekki við að fá
gesti sem stoppa stutt en eiga
ekkert gott að bjóða þeim?
Það er hægt að bjóða upp á
smáveislu í hvelli ef maður er
svo forsjáll að eiga nokkra bita
af konfekti eða súkkulaði, góð-
an líkjör og þreytirjóma í
sprautu, en allt þetta má geyma
lengi.
Meðan þú ert að laga kaffið
læturðu standa heitt vatn í
sparibollunum til að hita þá.
Þegar kaffið er tilbúið tæmirðu
bollana og býrð til hátíðakaffi í
hvern bolla fyrir sig: Helltu
u.þ.b. matskeið af mjólk eða
rjóma í hvern bolla, bættu einni
matskeið af Tia Maria eða
Bailey’s út í og helltu kaffinu
yfir. Þvínæst sprautarðu
þeytirjóma yfir og berð fram
með konfekti eða súkkulaðibit-
um ískál. Flott, gott ogfIjótlegt!
Erfitt að vaknaP
Kannski stafa erfiðleikarnir af
því að þú ferð ekki nógu
snemma að sofa. Rannsóknir
hafa sýnt að fólk ætlar sér mun
minni svefn en það þarfnast í
raunogveru. Konur þurfa lengri
svefn en karlar og það er algengt
að þær þarfnist um 8 tíma
ótruflaðs svefns á sólarhring.
Margar konur þurfa að sofa svo-
lítið lengur um helgartil að ná
úr sér uppsafnaðri þreytu.
Lífsstíllinn skiptir miklu máli
þegar kemur að því að eiga auð-
velt með að vakna. Til þess að
geta vaknað vel þarftu að sofa
rólega og vera úthvíld og hér eru
nokkur góð ráð fyrir þær svefn-
þungu:
Þena skaltu ekki gera á
kvölditi:
• Borða þungar máltíðir seint
því það hefur í för með sér of
þungan svefn
• Drekka kaffi og reykja því það
veldur órólegum svefni
• Neyta áfengis því svefninn
verður ekki endurnærandi
• Gera leikfimisæfingar þvf þær
geta haft í för með sér óró-
legan svefn
• Nota svefnherbergið sem
vinnustað
• Vaka lengi fram eftir
Þetta skaltu gera á kuöldíu:
• Borða léttan mat og forðast
sterkt krydd
• Hlusta á þægilega tónlist
• Fara út að ganga snemma
kvölds ef þú þarfnast hreyf-
ingar
• Gera slökunaræfingar eða
elskast fyrir svefninn ef þú ert
undir álagi
• Hafa snyrtilegt í svefnher-
berginu
• Fara alltaf á sama tfma í rúm-
ið og ætla þér nægan svefn
Ef þessi ráð duga þér ekki
ættirðu að leitatil heimilislækn-
isins þíns og fá úr því skorið
hvort allt sé í lagi með líkama
þinn áður en gripið er til róttæk-
ari ráða til að lagfæra svefnvenj-
ur þínar. Mundu að svefnlyf
hjálpa ekki þeim sem eiga erfitt
með að vakna nema ef morg-
unþreytan stafar af því að við-
komandi á erfitt með að sofna
á kvöldin. ( þeim tilfellum er
hægt að fá mjög vægar svefn-
töflur (svokallaða „slökkvara”)
sem ekki eru vanabindandi.
54 Vikan