Vikan - 24.10.2000, Page 61
Fóisveppur
C-vítamínduft er borið beint á sýkta svæðið. Haltu fótum þín-
um þurrum og vertu skólaus eins oft og mögulegt er þar til sýk-
ingin er gengin yfir.
Andremma
Auk þess að bursta tennurnar og nota tannþráð er ráðlegt að
taka inn:
1 chlorophylltöflu eða hylki 1-3 sinnum á dag.
3 acidophylushylki 3 sinnum á dag.
50 mg af zinki 1-3 sinnum á dag.
Beinbrot
Hafir þú beinbrotnað einhvern tímann, veistu hversu ergileg
biðin er eftir þvl að brotið grói. Gott ráð við þessar aðstæður er
að auka neyslu á kalki og D-vítamíni. 1000 mg af kalki og 400
alþjóðaeiningar af D-vítamíni eru góðir dagskammtar.
Frunsur
Fátt er eins ergilegt ogað fá frunsu þegar mikiðstendur til. Gott
ráð til að losna við frunsuna er að taka:
1000 mg af C-vítamíni kvölds og morgna.
3 hylki af acidophylus þrisvar sinnum á dag.
E-vítamínolía, sem borin er á sýkta svæðið.
Flugbreyta
Þeirsem fljúga mikiðá milli landa ogtímabelta kannastvið þau
vandamál sem fylgja röskun á dægursveiflu líkamans. Til að hjálpa
líkamanum að vinna á móti þessari röskun er gott að taka eftir-
farandi bætiefni.
2 B-kombín einu sinni á dag.
1 E-vítamín, tvisvar á dag.
Svitalykt
Viðvarandi svitalykt getur stafað af skorti á B12-vítamíni hjá
þeim sem borða ekki ölger, lifur, nautakjöt, egg eða nýru. Gott
er að taka sömu bætiefni gegn svitalykt og við andremmu.
Of hátt kólesteról
Þeir sem eru með of hátt kólesteról ættu m.a. að borða ölger,
rúsínur og melónur og taka 3 hylki af acidophilus þrisvar sinn-
um á dag og 2-3 msk af lesitíndufti út á salöt.
Grindarbotnsæfingar
Grindarbotnsæfingar eru til margs nytsamlegar og geta meðal
annars bætt kynlíf ykkar til muna. Liggið á bakinu með bogin
hné og hendur undir hálsi. Spennið rassvöðvana og lyftið ykkur
Fæturnir eiga að vera kyrrir á gólfinu allan tímann.
Fyrsti stafur
stafrófsins
Sitjið andspæn-
is hvort öðru og
haldið um úlnliði
hvors annars. Lát-
ið hælana nema við
gólf og beygið hnén
eins og í þriðju æf-
ingu. Réttið síðan
úrfótleggjunum upp í loft og halliðykkur aðeins aft-
ur eins og þið ætlið að búa til bókstafinn A.
LÁTIÐ LOÐIÐ GflNGfl
Liggið fyrst á bakinu á móti hvort öðru og látið tær ykkar
snertast. Beygið síðan hnén og lyftið ykkur aðeins upp svo
þið finnið góða spennu í maganum. Látið handlóð ganga á
milli ykkar þannig að annað ykkar heldur á því í upphafi, svo
teygið þið ykkur í áttina hvort að öðru og látið hitt hafa lóðið
og svo öfugt.
FRÁBÆRIR UPPHAND-
LEGGSVÖÐUAR
Annað ykkar situr á stól eða
í sófa og styður handleggjunum
á setuna. Sá sem gerir æfing-
una færir síðan rassinn fram
af setunni, hefur fótleggina
beina og lyftir sér síðan upp og
lætur sig svo síga aðeins nið-
ur. Þessi æfing er dálítið erfið
og á að reyna á handleggi en ekki maga. Það ykkar sem ekki
gerir æfinguna getur hjálpað hinu með því að fylgast með
því að bak viðkom-
andi sé beint og að
hann láti hand-
leggina en ekki
magavöðvana erf-
iða.
GÓÐ BÆTHFNI