Menntamál - 01.09.1941, Síða 4

Menntamál - 01.09.1941, Síða 4
50 MENNTAMÁL að tónskáld vor hafi enn sem komið er lítið notfært sér þann efnivið. Lítum á ástandið, þegar nýrri tónlist fer að festa hér rætur. Berum saman gömlu sálmalögin og kirkjutónlist Bachs, rímnalögin og sönglög Schuberts, tvi- sönginn og kórsöng annarra þjóða, eða langspilið og hinar miklu symfoni-hljómsveitir. Tónlist Evrópu-þjóðanna á 19. öld var hreinasta opinberun fyrir sönghneigða íslend- inga, sem áttu þess kost að kynnast henni. Er þá ekki eðlilegt, að fyrstu tónskáldin okkar reyni frekar að yrkja í þeim anda en íslenzku þjóðlaganna? Er hægt að álasa þeim fyrir það? Það er að vísu viðurkennt, að komið hafa fram þjóðleg lög, og það svo, að sagt hefir verið um sum smálög okkar, að þau hefðu hvergi getað orðið til nema á íslandi. Er þetta einkum sagt um lög Sigfúsar Einarssonar, sem talinn er, og það með réttu, þjóðlegastur íslenzkra tónskálda. Ekki þarf að harma það, þó að lög íslenzkra tónskálda fram á þennan dag, séu ekki stæling á rímnalögunum. Þjóðlögin verða notuð á sinum tíma. Þar er hinn mikli efniviður. En ég hefi enga trú á, að það megi takast að skapa dýrmæt listaverk úr íslenzkum þjóðlögum, öðrum en þeim, sem hefir tileinkað sér til nokkurrar hlítar alþjóð- lega tónlist. Vel sé þeim mönnum, sem með því að inn- leiða erlend lög og með frumsömdum lögum, hafa kynnt okkur alþjóðlega tónlist. En er nú ekki eitthvað þjóðlegt við starfsemi tónskáld- anna okkar? Ég hefi verið að velta fyrir mér ýmsum af lögunum þeirra. Ég hefi verið að velta fyrir mér lögunum sjálfum út af fyrir sig, sambandi þeirra við kvæðin, sem þau eru samin við o. s. frv. Og nú koma þau í hug mér hvert á fætur öðru. „Nótt“ eftir Árna Thorsteinsson. Það er björt og fögur vornótt, sem lýst er í þessum ljómandi fallegu vísum. Og það er íslenzk næturkyrrð, sem lýst er í þessu aðdáanlega

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.