Menntamál - 01.09.1941, Page 20

Menntamál - 01.09.1941, Page 20
66 MENNTAMÁL Áh 111IIII <111 r Griiðmiindgson: Falleg gjöf Það hlýðir vel, að Menntamál skýri frá þvi, sem bezt er gjört til barna og barnaskóla hér á landi. En eitt af því má telja gjöf þeirra Ágústs kaupmanns Þórarinssonar og frú Ás- gerðar Arnfinnsdótturkonu hans til barnaskólans í Stykkishólmi, er þau gáfu honum allt bókasafn sitt, mikið og vandað, mörg þúsund króna virði, á gull- brúðkaupsdegi sínum, 6. september síðastl. Bréf það, sem þau rituðu skólanefnd, lýsir því bezt, í hvaða hug gjöfin var gefin. Ágúst Þórarinsson Er það á þessa leið: „Við undirrituð, Ásgerður Arnfinnsdóttir og Ágúst Þór- arinsson í Stykkishólmi, sem í dag eigum 50 ára hjúskapar- afmæli, höfum ákveðið, eftir eindregnum vilja skylduliðs okkar, að ánafna eftir okkar dag bókasafni barnaskólans í Stykkishólmi allar bækur okkar, sem við eigum nú, ásamt tilheyrandi bókaskápum, og að viðbættum þeim bókum, sem við kunnum að eignast, þar til síðara okkar fellur frá. Þessi ákvörðun okkar styðst við það, að þegar við mynd- uðum hjúskap 6. sept. 1890, var aðalatvinnugrein okkar kennsla við barnaskólann í Ólafsvík.. En nú hefur annað okkar alið aldur sinn um 60 ára skeið í Stykkishólmi, en

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.