Menntamál - 01.09.1941, Qupperneq 25

Menntamál - 01.09.1941, Qupperneq 25
MENNTAMÁL 71 Lítum fyrst á hinn takmarkaða orðaforða barnanna. Hér á landi hafa engar rannsóknir verið gerðar, er sýni, hvernig orðaforði barnanna vex og þróast frá því þau byrja að tala og þar til þau eru komin af skólaskyldualdri. Erlendis hefur þetta verið rannsakað af ýmsum fræðimönn- um, en kunnastar á þessu sviði eru rannsóknir Stern- hjónanna. Athuguðu þau, hvaða orð börn notuðu frá þeim tíma, er fyrst mátti greina ákveðna hugsun á bak við hjal þeirra, tii sex ára aldurs. Af rannsóknum þeim sést, að tveggja ára barn frá góðu heimili áttfaldar orðaforða sinn á fjórum árum, þ. e. notar allt að 400 orð tveggja ára, en um 3000 orð 6 ára. Örast vex orðaforðinn á þriðja ald- ursári, eða eftir að barnið er orðið ,,talandi“ sem kallað er. Þá þrefaldast hann á einu ári. Síðan smádregur úr vexti hans og er tiltölulega minnstur sjötta árið. Athyglis- vert er það, að bæði þessar rannsóknir og aðrar hliðstæð- ar hafa leitt í ljós, að við 5 ára aldur hafa börn frá góðum heimilum lagt undirstöðuna að móðurmálskunnáttu sinni, sem þau verða síðar að byggja á. Á þessum aldri eru þau farin að nota alla orðflokka í tali sínu, þau beygja orðin og mynda setningar með réttum hætti í aðalatriðum. Og þótt þau kunni við og við að flaska á ýmsu þessu, þá er þó hornsteinninn lagður. Allir finna þó, að geysimikill munur er á máli fullorðinna manna eða 14 ára barna annars vegar og 5 ára barna hins vegar, en sá munur liggur fyrst og fremst í meiri og fjölskrúðugri orðaforða, heilsteyptari frá- sögn, nákvæmari skilgreiningu einstakra atriða, sjálfstæðu mati og rökrænum ályktunum, en aðeins að mjög litlu leyti i því að fyrrgreind undirstöðu atriði hafi breytzt. Orðaforði eldri barna hefur einnig verið rannsakaður allnákvæmlega af ameríska sálarfræðingnum Terman. Samkvæmt þeim rannsóknum þekkir 14 ára barn og kann að nota þrefalt stærri orðaforða en 8 ára barn. Sýna þær rannsóknir einnig, að orðaforðinn vex hægar eftir því sem barnið verður eldra, En sá vöxtur stöðvast þó aldrei að

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.