Menntamál - 01.09.1941, Page 43
MENNTAMÁL
89
Eftir nýjum fregnum að dæma, mun mæðrum einnig hafa verið út-
býtt næringartöflum.
The Schoolmaster & Woman Teacher’s Cronicle.
Nýjustu blöð af riti þessu, sem Menntamálum hafa borizt, eru frá
15. og 22. maí s. 1. Margt er í blöðum þessum rætt um skólahald á
styrjaldartímum. Eiga Bretar við margskonar örðugleika að stríða,
sökum loftárása Þjóðverja á borgir í Englandi. Þúsundir barna úr
stórborgunum hafa verið flutt út á landið; þó sést þess getið, að í
sumum borgum hafi verið fleiri börn í marzmánuði 1941 en i desember
1940.
Sprengjuheld skólaþök.
The Schoolmaster ræðir tillögu, sem fram er komin um gerð á
sprengjuheldum þökum á kirkjum og skólahúsum. Gert er ráð' fyrir,
flötum þökum með vatnslagi í millihólfi. Þetta er talið að varið geti
íkveikju frá eldsprengjum.
Innlendar fréttir
íþróttalögin, sem lengi voru á döfinni, fengu staðfestingu á síðasta
ári. Samkvæmt þeim er skipaður íþróttafulltrúi, sem er nokkurs konar
yfirmaður íþróttamála landsins, bæði hvað snertir skólaíþróttir, heilsu-
vernd og félagaíþróttir. Margir þekktir íþróttakennarar sóttu um stöðu
íþróttafulltrúa. Fyrir valinu varð Þorsteinn Einarsson íþróttakennari
frá Vestmannaeyjum. Er hann frá undanförnum árum kunnur fyrir
íþróttaafrek. Þorsteinn mun ekki hafa kennarapróf, en hefir stúdents-
menntun. íþróttakennarar höfuðstaðarins og fleiri mótmæltu skipun
Þorsteins í stöðuna. En hann hefir nú tekið við starfi sínu. Er senni-
legt, að kennarar landsins hafi töluvert saman við hann að sælda í
framtíðinni, og skal mönnum bent á að kynna sér íþróttalögin og at-
huga á hvern hátt samstarfiö við íþróttafulltrúann getur komið að'
mestu gagni.
Ferðalögf skólabarna
eru minni í vor en mörg undanfarin. ár. í Reykjavík hafa þau því
nær lagzt niður, sökum hernámsins, en út um landið hafa nokkrir
skólar farið í ferðalög, þó flest stutt.