Menntamál - 01.09.1941, Qupperneq 45
MENNTAMÁL
91
hafa verið í þessu augnamiði, hinum hefir verið komið fyrir á einstök
sveitaheimili. Bamafjöldi á einstökum heimilum er sem hér segir:
Brautarholti á Skeiðum .................... 51 börn
Hvanneyri, Borgarfirði .................... 58 —
Laugamýri, Skagafirði ..................... 22 —
Laugum, Þingeyjarsýslu .................... 76 —
Rauðhólum við Reykjavík ................... 38 —
Reykholti, Borgarfirði ................... 104 —
Sandgerði, sjúkraskýli R. K. í............. 21 —
Sandgerði, skólinn ........................ 34 —
Silungapolli, Mosfellssveit ............... 72 —
Staðarbakka, Miðfirði ..................... 19 —
Staðarfelli, Dalasýslu .................... 48 —
Stykkishólmi, sjúkrahúsið ................. 33 —
Stykkishólmi, skólinn ..................... 24 —
Á sveitaheimilum ........................ 684 —
Þá eru á vegum neíndarinnar á mæðraheimilum, ásamt 87 mæðrum,
165 börn. Auk þessa verður bætt við nokkrum börnum til Sandgérðis
og Stykkishólms. Formaður Barnarverndarráðs, Arngrímur Kristjáns-
son, hefir haft aðalframkvæmdastjórn á hendi.
Kennaranámskeið norðan lands.
Aðalsteinn Sigmundsson kennir á námskeiði i Húsavík, sem kenn-
arar af Austur- og Norðurlandi hafa efnt til. Skólavinna ýmiskonar,
vinnubókagerð o. fl. er kennd á námskeiði þessu. Hefur Aðalsteinn Sig-
mundsson haldið allmörg slík námskeið á undanförnum árum, víðs-
vegar um land; ennfremur eitt í Færeyjum.
Þing íþróttakennara,
hið fyrsta, var háð að Laugarvatni og í Reykjavík um miðjan júní
þ. á. Þátttakendur voru 25 hvaðanæva af landinu. Fjöldamörg erindi
voru flutt á þinginu og íþróttir sýndar. Var með þingi þessu lagður
grundvöllur að víðtækri skipulagningu á sviði íþróttanna í sambandi
við íþróttastarfsemi í landinu. íþróttafulltrúi boðaði til þingsins.
Kennarafélag:
Vestfjarða hélt námskeið í páskavikunni, eins og undanfarin ár. Voru
einnig umræðufundir og erindi flutt um uppeldismál.