Menntamál - 01.09.1941, Page 49

Menntamál - 01.09.1941, Page 49
MENNTAMÁL 95 erindi um málið og mælti til samvinnu við kennara um framkvæmdir við byggingar leikvalla og sundskýla, óskaði ennfremur eftir því að kennarar notuðu frímínútur sem mest til íþrótta og leikjastarfsemi undir beru lofti. Sambandiö milli framhaldsskóla og barnaskóla. Milliþinganefnd skil- aði áliti, þar sem talin var mikil nauðsyn á gerbreytingu við inntökupróf í framhaldsskóla, t. d. Menntaskólana. Nefndinni var falið að starfa áfram. Þingið samþykkti tillögu um að flutt yrði útvarpserindi um málið. Ríkisútgája námsbóka. Framkvæmdastjóri útgáfunnar, Steingrímur Guðmundsson, var mættur, og svaraði fyrirspurnum og athugasemdum kennara viðvíkjandi útgáfunni. Tímaritið Menntamál. Kennaraþingið gerði þá breytingu á stjórn og útgáfu ritsins, að framvegis skyldi kosinn ritstjóri, búsettur í Rvík, en honum til aðstoöar kosin þriggja manna útgáfustjórn, og verði a. m. k. einn þeirra búsettur utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Ritstjóri var kosinn Gunnar M. Magnúss, en í útgáfustjórn Hannes J. Magnús- son, Akureyri, Jónas B. Jónsson í Reykjavík og Ólafur Þ. Kristjánsson í Hafnarfirði. Taliö var æskilegt, að ritið kæmi ekki sjaldnar en þrisvar sinnum út ár hvert, alls 12 arkir. Skólamál dreifbýlisins. Rætt var um erfiöleika í skipun kennslumál- anna í sveitum landsins. Var lögð áherzla á nauðsyn bættrar aðbúðar kennara, aukna útgáfu skólabóka, miðaðar við heimavinnu, að skóla- hús verði eingöngu notuð til kennslustarfsemi, en ekki fyrir skemmti- samkomur. Framsögumaður, Bjarni M. Jónsson, hefir lofað að rita um mál þetta í næsta hefti Menntamála og verður það því ekki nánar rakið hér í þessari greinargerð. Kosning í sambandsstjórn. Tilkynnt voru úrslit kosninga í stjórn sambandsins. Þessir voru kjörnir í aðalstjórn: Sigurður Thorlacius, formaður. Aðalsteinn Sigmundsson, varaformaður. Guðjón Guðjónsson, ritari. Bjarni M. Jónsson, vararitari. Pálmi Jósefsson, gjaldkeri. Gunnar M. Magnúss, varagjaldkeri. Arngrímur Kristjánsson, meðstjórnandí. Varastjórn: Guðmundur I. Guðjónsson. Ingimar Jóhannesson. Gísli Jónasson.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.