Menntamál - 01.08.1957, Page 71
MENNTAMÁL
165
þeirri dvöl lokinni, hafa kennararnir dreifzt til vikudval-
ar, víðs vegar um landið, og hefur þá hver fyrir sig dval-
ið sem gestur á heimili hjá dönskum starfsbróður eða
starfssystur. — Hefur sú dvöl orðið til þess að tekizt hafa
náin persónuleg og varanleg kynni.
Nokkrum dögum áður en
horfið hefur verið heim,
hafa menn á ný safnazt
saman í Kaupmannahöfn
og gist þar hjá einhverjum
kennara.
Tvær síðustu hópferð-
irnar voru farnar svo seint
á sumri, að skólar voru al-
mennt byrjaðir eftir sum-
arleyfi, og áttu þá íslenzku
kennararnir kost á því að
heimsækja starfandi skóla.
Sá maður, er mest og
bezt hefur greitt götu ís-
lenzku kennaranna í þess-
um ferðalögum, er Erik
Andersen skólastjóri við
Bavnehój-skólann í Kaup-
mannahöfn. Á honum hefur ávallt hvílt öll skipulagning
dvalarinnar, og hefur hann reynzt í hvívetna hinn traust-
asti og skemmtilegasti fararstjóri.
Andersen dvaldi um nokkurt skeið á unglingsárum á
Seyðisfirði, og hafði þá ferðazt nokkuð um Austur- og
Norðurland. Hann þekkir síðan vel til íslenzkra málefna
og staðhátta. Hann er velviljaður, einarður og sanngjarn
í garð alls, sem íslenzkt er.
Andersen hefur verið um langt skeið ritari Norræna-
félagsins og er nú ritari og framkvæmdastjóri skóla-
málanefndar félagsins og annast því skipulagningu móta