Menntamál - 01.02.1970, Page 20
-----------------------------
Hugtökin handleiðsla
og ráðgjöf
v______________________________>
í sögulegu ágripi kemur fram, að sálfræðistörf
í skólum eiga rætur að rekja til nokkuð ólíkra
þekkingarsviða innan sálfræðinnar. Þessar grein-
ar eru m. a. uppeldissálfræði og klinisk sálfræði.
En upptök starfsins má einnig rekja til félags-
legra og læknisfræðilegra vandamála. Sálfræðin er
tæplega aldargömul sem sjálfstæð fræðigrein.
Skilgreining hugtaka er mikilvægur þáttur í þró-
un allra fræðigreina. Atferli, andlegt og líkam-
legt, er höfuðviðfangsefni sálf'ræði. Atferli í þess-
ari merkingu er þó ekki auðvelt að fella í hug-
takakerfi, sem sannprófa megi með aðferðum
náttúruvísinda. Mest af starfi brautryðjenda í
sálfræði hefur farið í að setja fram tilgátukeríi
til skýringar á atferli og síðan þreifa sig áfram
með nýjar tilraunaaðferðir, sem nothæfar væru.
Hugtakaóvissa, tilkoma nýrra hugtaka og endur-
túlkun þeirra eldri er því einkenni á fræðigrein,
sem er í mótun og vexti. Elugtök, sem varða
störf skólasálfræðinga, eru dæmi um þetta.
Hugtök eins og handleiðsla (guidance) breyta
beinlínis um merkingu eftir löndum og tungu-
málum. Ný fræðileg sjónarmið koma franr og
þar með oft breyttar vinnuaðferðir (t. d. kenn-
ingar C. R. Rogers og aðferð hans um aðhverfa
ráðgjöf (non-directive counseling)). Stundum eru
sett lög eða reglugerðir, þar sem notuð eru hug-
tök, er síðan verður að gefa sérfræðilegt inntak.
Á öðrum stað eru talin upp nokkur hugtök,
sem varða sálfræðistörf í skólum. Fylgja þeim
skýringar, að vísu stuttar og ekki eins linitmiðað-
ar og æskilegt væri. En hugtökin handleiðsla og
ráðgjöf eru svo mikilvæg fyrir sálfræðistörf í þágu
skóla að óhjákvæmilegt þykir að skýra þau sér-
staklega. Skal nú gerð tilraun í þá átt. Þetta er
þó erfitt, þar eð sæmilega fullnægjandi skýringar
fela oft í sér, að áliti þess er þetta ritar, langa
og flókna sögu um þróun sálfræðilegra starfa í
mörgum löndum og innbyrðis áhrif þeirra á fræði-
leg viðhorf og kenningar sálfræðinga. Lesendur
eru því beðnir að sýna umburðarlyndi, ef skýr-
ingar eru ófullnægjandi eða jafnvel villandi að
þeirra dómi.
Hugtökin handleiðsla (guidance) og ráðgjöf
(counseling) eru samslungin og sögulega tengd
a. m. k. í hinum enskumælandi heimi.
M ENNTAMÁL
14