Menntamál - 01.02.1970, Side 24
Nokkur meginviðhorf.
Tilhögun ráðgjafar-
og sálfræðiþjónustu
í skólum
1. Handleiðslustefna og uppeldisstarf móti í
reynd fræðslu kennara og starfshætti
skóla. Kennslustarf í þessum anda bygg-
ist öðru fremur á nýtingu sálfræðilegrar
þekkingar. Fulltrúar þessarar fræðigrein-
ar krefjast því áhrifa á mótun og fram-
kvæmd menntastefnu og skólastarfs.
2. Ráðgjöf og sálfræðiþjónusta, sem eru
sérfræðiþættir handleiðslu í skólum, verði
lögfest og samofin skóla- og menntakerfi
þjóðarinnar. Þessir sérfræðilegu þættir
eru:
a) Sálfræðiþjónusta og sálfræðiráðgjöf í
miðstöð. Sjá síðar.
b) Ráðgjöf í skólunum til kennara, nem-
enda og foreldra. Skólasálfræðingar, sér-
kennarar, félagsráðgjafar og aðrir sér-
fræðingar skólans annast ráðgjöfina. í
framhaldsskólunum vinna einnig skóla-
ráðgjafarað náms- og starfsleiðsögn und-
ir faglegri umsjón sálfræðiráðgjafa frá
miðstöð.
Miðlun og tjáning eru lífæðar sálfræði-
þjónustu, uppeldis- og handleiðslustarfs
í skólum. Inntak þeirrar miðlunar varðar
kennslu, persónuleg samskipti í skóla og
utan. Sérfræðileg aðferð kunnáttumanna
við miðlun er ávirkt ferli ráðgjafar af
ýmsu tagi (dynamic process of counsel-
ing).
Allir nemendur eiga beinlínis eða óbeint
rétttil ráðgjafar, sem byggð er á sérfræði-
legri þekkingu og látin í té af kunnáttu-
mönnum. Einkum skal þó aðstoða af-
brigðilega nemendur, foreldra þeirra og
kennara, svo og nemendur yfirleitt, sem
ekki nýta hæfileika sína í námi eða starfi.
Sálfræðiþjónusta er ráðoefandi sérfræði-
legur aðili innan skólakerfisins. Hún
krefst starfsöryggis og sjálfstæðis til sér-
fræðistarfa innan menntakerfisins og
þjóðfélagsins.
MENNTAMÁL
18