Menntamál - 01.02.1970, Side 27
Hlutverk sálfræðiþjónustu skóla:
a) Miðlun sálfræðilegrar þekkingar, fræðilegrar og hagnýtrar, innan
menntunarsamfélags skólans og í þjóðfélaginu.
b) Ráðgjöf (sálfræðileg, kennslufræðileg og félagsleg) til kennara, for-
eldra, nemenda og fræðsluyfirvalda. Ráðgjöfin er framkvæmd marg-
víslega eftir aðstæðum og þörfum, stundum veitt einstaklingum og
stundum mörgum saman.
c) Varnaðarstarf í þágu einstaklinga og samfélags, einkum varðandi
kennslu byrjenda, leshæfi og námshæfi, geðheilsu og félagsaðlög-
un.
d) Rannsókn á afbrigðilegum nemendum. í miðstöð er unnið að rann-
sókn einstaklinga, sinnt sálfræðilegri meðferð þeirra, foreldrum veitt-
ar leiðbeiningar, gerðar tillögur til skólayfirvalda, kennara og annarra
aðila. Miðstöðin er aflgjafi kennslufræðilegra og sálfræðilegra starfa
í skólanum almennt, en er auk þess bakhjarl sérkennslu afbrigði-
legra, leshjálpar og stuðningskennslu. Rannsókn einstakra barna er
alltaf háð samþykki foreldra.
e) Tilraunir, sálfræðilegar og kennslufræðilegar. Tilraunaráð í skóla-
málum samþykkir val verkefna eða gerir tillögur um þau.
Það sem hér er sagt um hlutverk sálfræðiþjónustu í barnaskólum á við starfsemina á öllum skólastigum. Orðalag og ein-
stök verkefni bera þess hins vegar merki, að einkum er miðað við barnaskólann, þar sem þessum störfum hefur einkum verið
sinnt.
V________________________________________________________________________________________________________________________________________)
MENNTAMÁL
21