Menntamál - 01.02.1975, Blaðsíða 11

Menntamál - 01.02.1975, Blaðsíða 11
Það er að segja þegar stofn krossaspurningarinnar og einn svarmöguleikinn eru svipað orðaðir, gæti slíkt gefið glöggum nemenda vísbendingu um hið rétta svar. Eins ef einn svarmöguleikinn er tekinn beint upp úr bókinni. Af sömu ástæðu ber að „gera röngu svörin eins sennileg og kostur er (Gronlund, 1972, 43), og að hafa „hlutfallslega lengd rétta svarsins mismunandi, til þess að lengdin verði ekki ábending um rétta svarið“ (Gronlund, 1970, 44). Tilfellið er að í skólanum eru nemendur ekki síður uppteknir af félagslegri stöðu sinni, en stjórnmála- maðurinn fyrir kosningar eða popstjarnan við út- komu nýrrar breiðskífu. Börnin gera því allt sem í þeirra valdi stendur til þess að komast hjá vand- ræðum og minnkandi áliti og slíkt getur vart talist nema mannlegt. Þau geta jafnvel komist að þeirri niðurstöðu að fyrst þau geti ekki náð fullkomnun sé næst besti kosturinn að mistakast algerlega minnug þess að það er engin hætta á því að velta út úr rúminu ef sofið er á gólfínu. (Holt, 1973, 68). Sum hver verða vísvitandi heimsk (Holt, 1973, 155), m.ö.o. sjá þann kost vænstan að „leika heimsk- ingja“ ekki ósvipað því er menn (sem yfírleitt voru hæfileikamenn en vildu fara ótroðnar slóðir) léku hirðfífl til forna. Til lausnar leggur John Holt til að við gerum kennsluna og námsefnið eins áhugavert og spenn- andi og við getum (Holt, 1973, 40). Við verðum að breyta þessu slæma félagslega umhverfi sem skólinn er nú, í umhverfi þar sem greind nemanda er líklegust til að þroskast best. í stað þess að auka eftirlitið með þeim upplýsingum sem við látum nemendum í té (sbr. umræður um bók Norman E. Gronlund hér að framan), eigum við að gera það að aukaatriði hvaða upplýsingar hann fékk. Aðal- atriðið á að vera hvernig hann bregst við þessum upplýsingum — hvernig hann notar þœr. Athyglisvert er að strax hér ræðir höfundurinn um greindsemferli, sem taki stöðugum breytingum. Greind er ekki samkvæmt þessu eitthvað sem maður fær í vöggugjöf í eitt skipti fyrir öll. Þess vegna er skólinn svo mikilvægur sem félagslegt umhverfi. Hann getur haft úrslitaáhrif á persónu- og greind- arþroska nemandans. í framhaldi af þessu skrifar John Holt næstu bók sína „How Children learn“, eða „Hvernig börn læra“. Hér, strax í byrjun,tekur höfundur afstöðu í hinni sígildu deilu um erfðir og umhverfi sem hann heldur æ síðan. HVERNIG BÖRNIN LÆRA í formála þessarar bókar segir höfundur (Holt, 1972, A, 7), að það sé á árunum áður en börnin fara í skóla sem þau læri best. Hann heldur því fram, að yfirleitt takist okkur best upp við að hugsa, þegar við beitum huganum á þann hátt sem henti okkur persónulega best. Gjarnan er haft á orði, að við sendum börnin í skóla til að þau læri að hugsa. Það sem gerist allt of oft er, að í skólanum eru þau neydd til þess að hætta að hugsa á þann hátt sem þeim er eðli- legastur og að taka upp aðferð sem hentar þeim illa og við sjálf notum varla. Bókin er lýsing á því hvernig börn nota þá aðferð er þau hafa á eðlilegan hátt tileinkað sér. Sem dæmi má taka sögu er John Holt segir um hana Lísu (Holt, 1972, A, 31). „Lísa er tveggja ára. Um daginn fann hún grænan kúlu- penna og tók hann í sundur. Hann var í fjórum hlutum. Penninn var í tveimur hlutum, fyllingin sér og einnig hringur sem varð að koma fyrir á milli hlutanna áður en penninn var skrúfaður saman. í þetta sinn vantaði gorminn sem vera á framan við fyllinguna. Ég byrjaði á að setja þetta saman fyrir hana, en hún sagði mér að hætta. Þolinmóð en klaufsk reyndi hún allar hugsanlegar leiðir til að koma pennanum saman. Hún var ekki viss um hvernig þessi hlutur ætti að lita út eftir að búið væri að setja alla hlutana saman. Hana skorti einnig þá þjálfun sem til þess þarf að setja pennana saman. Aftur og aftur kom hún hlutunum í rétta röð til þess eins að horfa á röðina riðlast aftur. Lísa varð ekki reið né heldur gafst hún upp. Þolin- móð og einbeitt vann hún að þessu í a.m.k. 20 mín. eða þar til henni var sagt að koma að borða“. Þetta dæmi sýnir að ef við látum börnin í friði geta þau náð tökum á hugmyndum auðveldar en við flest erum tilbúin að viðurkenna. Það er þessi ferska eðlilega aðferð við að hugsa sem er eyðilögð þegar börnin kynnast hinni hefðbundnu kennslu- aðferð (þar sem það hefur alvarlegar afleiðingar að geta ekki gert hlutina rétt í fyrstu tilraun). John Holt heldur fram að ef við myndum eiga að kenna börnunum að tala í skólanum myndu þau aldrei læra það. (Holt, 1972, A, 57). Við myndum eflaust byrja á því að segja að hið talaða orð sé byggt á hljóðum. Af því myndi leiða að öllum börnum bæri að læra öll hljóð eigin tungumáls áður en þau gætu byrjað að læra að tala. An efa myndum við byrja á að gera lista yfir MENNTAMÁL 9

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.