Menntamál - 01.02.1975, Blaðsíða 42
sem rædd verða mismunandi viðhorf til kennslu-
hátta í greininni.
Þetta námskeið er ætlað kennurum dreifbýlisins
og er að nokkru endurtekning á námskeiði sem
haldið var í Kennaraháskóla íslands veturinn
1974- 75.
II. Stærðfræði
2.1. Námskeið fyrir kennara 6—9 ára barna 19.—
20. ágúst.
Staður: Kennaraháskóli íslands.
Umsjón: Örn Arnar Ingólfsson.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 50.
Á þessu námskeiði verða kynntar nýjar kennslu-
bækur (fyrir 6 og 7 ára börn), sem væntanlegar eru
á frjálsan markað í haust. Aðeins verður um að
ræða kynningu helstu efnisþátta og kennsluhátta.
Þessir tveir dagar eru fyrsti hluti námskeiðs, sem
verður fram haldið í október og nóvember, einu
sinni í viku 4 kennslustundir í senn. Þá verður
höfuðáhersla lögð á hina ,,hrein“-stærðfræðilegu
hlið efnisins auk almennrar kynningar á nýjum
kennsluaðferðum.
Fyrri hluti námskeiðsins verður svipaður og
starfíð í fyrirhuguðum leshópum í stærðfræði. Þeir
sem hafa starfað í leshóp í vor ættu því ekki að
þurfa að sækja kynningardagana þó þeir hafi hug
á að taka þátt í seinni hluta námskeiðsins.
Þetta námskeið er eitmngis œtlad kennurum sem
búa það nálægt Reykjavík að þeir geta sótt tíma
einu sinni í viku í október og nóvember í Kennara-
háskóla íslands.
2.2. Námskeið fyrir kennara 6—-9 ára barna 23.—
28. ágúst.
Staður: Stórutjarnaskóli S.-Þing.
Umsjón: Örn Arnar Ingólfsson.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 30.
Þetta námskeið mun verða svipað í sniðum og
verið hefur undanfarin ár, nema hvað vinnudagur
verður lengri enda námskeiðsdagar færri. Þunga-
miðja þess verður að undirbúa kennara undir að
taka í notkun nýjar bækur í stærðfræði (fyrir 6 og
7 ára börn) sem væntanlegar eru á frjálsan markað
að hausti. Reynt verður að kynna möguleika á
nýjum kennsluháttum sem ætlast er til að teknir
séu upp samhliða hinu nýja efni. Þetta námskeið
er ætlað kennurum utan Reykjavíkursvæðisins
sem vegna búsetu geta ekki sótt stærðfræðinám-
skeið 2.1. en ætla að taka upp hinar nýju bækur.
Telja verður æskilegt að kennarar sæki þetta
námskeið þótt þeir hafi tekið þátt í leshópum nú
í vor. Þeir eru þó að öðru jöfnu mun betur búnir
undir að vinna á slíku námskeiði.
2.3. Námskeið fyrir kennara 4.—6. bekkjar 8.—
16. júní.
Staður: Kennaraháskóli íslands.
Umsjón: Ragnhildur Bjarnadóttir.
Markmið námskeiðsins er að kynna þátttakend-
um fjölbreytni í kennsluaðferðum, vinnu með
hjálpargögnum og hvernig fella megi þau að mis-
munandi kennslubókum sem notaðar eru á þessu
aldursstigi. Jafnframt verður varið tíma í að athuga
þær breytingar sem eru í gangi fyrir 1.-3. bekk og
hvað gert er í 7.-10. bekk. Þetta verður gert bæði
á fræðilegan og hagnýtan hátt.
2.4. Námskeið fyrir kennara 7.—10. bekkjar 8.—
16. júní.
Staður: Kennaraháskóli íslands.
Umsjón: Anna Kristjánsdóttir.
Markmið námskeiðsins er að kynna þátttakend-
um fjölbreytni í kennsluaðferðum, vinnu með
hjálpargögnum og hvernig fella megi þau að mis-
munandi kennslubókum sem notaðar eru á þessu
aldursstigi. Nokkrum tíma verður varið til fræði-
legra athugana á því efni sem er að finna í nýrri
kennslubókum og einnig til gerðar námsáætlana og
athugunar á fjölþættum möguleikum á námsmati.
Á báðum námskeiðunum verður varið tíma til
að athuga erlendar kennslubækur og timarit og
verður til þess sett upp gott safn bóka sem aðstaða
verður til að vinna með meðan á námskeiði stendur.
III. Byrjendakennsla
3.1. Námskeið fyrir kennara 6—9 ára barna 21.—
26. júní.
Staður: Laugaskóli, Dölum.
Umsjón: Herdís Egilsdóttir.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 35.
Aðaláhersla verður lögð á nemandann sem er að
byrja í skóla og hvernig skólastarfinu er háttað í
upphafi skólagöngu.
Aðrir þættir m.a. lestrarkennsla, barnabækur,
söngvar, átthagafræði, föndur, myndíð og leikræn
tjáning.
Námskeiðið er ætlað kennurum dreifbýlisins.
MENNTAMÁL
40