Menntamál - 01.02.1975, Blaðsíða 15

Menntamál - 01.02.1975, Blaðsíða 15
hægt er að læra. Ef við ætlum í raun og veru að veiía öllum sömu möguleika og sömu aðstöðu til náms verðum við að breyta stefnu okkar. Við verðum að hætta að einblína á steinsteypukumbalda, verk- smiðjur til að framleiða gerilsneydda menntun, og snúa okkur þess í stað að frjálsu og sjálfstœdu námi. Gott dæmi um viðbrögð við slíkum fullyrðingum er viðtal höfundar við unga blökkukonu. Hún var í kvennaskóla og stefndi að lögfræðinámi til að geta orðið samfélagi sínu að gagni (Holt, 1972, C, 214-216). Hún taldi að allt tal um slíkt nám væri fyrir börn ríka fólksins. Hún og önnur þeldökk börn þörfnuðust skólakerfísins eins og það væri með fyrirfram ákveðnu námi, prófum, einkunnum og gráðum (eða titlum). Aðeins á þann hátt gæti hún orðið lögfræðingur og þar með fengið vald til að hjálpa sínu fólki. Höfundur segist hafa árangurslaust reynt að benda henni á að gengi henni allt í haginn myndi skólakerfið stimpla „SIGURVEGARI“ á enni hennar. Það myndi jafnvel gefa henni vald sem hún gæti þá notað til að aðstoða þeldökka fólkið. En á sama tíma myndi skólakerfið stimpla „FALLIST1“ á enni þúsunda þeldökkra ungmenna. Á þann hátt hefði skóla- kerfið ekki aðeins rænt þá þeirri trú að þeir væru til einhvers nýtir, heldur einnig því valdi að geta hjálpað sér sjálfir. Þess vegna yrðu þeir algerlega háðir leiðtogum sem henni. „Ég efast stórlega um að allt það sem þú gætir gert fyrir þetta fólk (þótt þér gengi allt í haginn) gæti bætt fyrir það tjón sem skólakerfíð hefur unnið þessu fólki“. Fátæku fólki er ekki mikil hjálp í slíkum há- menntuðum sérfræðingum. Það þarfnast fyrst og fremst ódýrara og afkastameira fyrirkomulags. í stað þess skólakerfis sem við nú höfum þarf að koma fyrirkomulag sem veitir öllum möguleika á að læra, hvað sem áhuga kann að vekja og hverju nafni sem það nefnist. Auk þess þarfnast það sam- félags þar sem mun fleiri tækifæri eru fyrir það en nú er. Þeir sem eru undir í samfélaginu þarfnast samfélags sem hefur á stefnuskrá sinni að útrýma fátækt, samfélags sem hefur á stefnuskrá sinni að veita öllum meðlimum sínum áhugavert líf sem hefur einlivern tilgang. Þetta eru fyrst og fremst pólitískar þarfir og markmið. Ekkert af þessu eru hlutir sem skólarnir eða lærdómur getur veitt. Hér er John Holt kominn að sömu niðurstöðu og Jónas Pálsson sálfræðingur, að skólamál séu ævinlega stjórnmál (1975, IV, 1). John Holt er í síðustu bók sinni kominn á kross- götur þar sem leiðir skilja milli hefðbundins náms og sjálfsnáms ef við viljum í alvöru tala um jafnrétti allra til náms. En því að hafna skólunum ? Þessu svarar höfundurinn á eftirfarandi hátt (Holt, 1972, C, 242-252). „Skólamönnum, og þó sérstaklega þeim sem vilja bæta skólana, tekst ekki að fá það fram sem þeir ætla sér. Ástæðan fyrir því er sú að gegnum árin hefur skólinn fengið andstœó mark- mið að keppa að. Hvort sem þessi markmið eru góð eða slæm, hvort sem hægt er að komast hjá sumum þeirra eða ekki getum við ekki framfylgt þeim á sama stað og á sömu stundu.“ Við getum sagt að eitt grundvallarhlutverk skólans sé að örva alhliða þroska nemenda sinna. Við getum nefnt þetta KÖLLUN. Þetta er köllun sem sérhver góður kennari leggur mikla rækt við. En skólinn hefur öðrum skyldum að gegna. Eitt af því sem hann þarf að vera er FANGELSI eða DAGHEIMILI fyrir börn og unglinga. Eins og Jónas Pálsson sálfræðingur og skólastjóri Æfinga- og tilraunaskólans hefur bent á bæði í Samvinn- unni og eins í erindi sinu í Útvarpinu um Borgar- skólann-Alþýðuskólann, þá var skólaskyldu ekki komið á vegna almennrar viðurkenningar á gildi menntunnar. Almennri skólaskyldu var komið á vegna þess að iðnvæðingin krafðist þess að verka- fólkið hefði lágmarks kunnáttu til að bera. Tækni- þróunin sjálf, en ekki göfugar hugsjónir, ,,ýtti“ unglingunum á skólabekk því ekki var lengur arðvænlegt að nýta hið ódýra vinnuafl barna og unglinga (Jónas Pálsson, 1975, iv, 10 og 1972). Eða eins og Paul Goodman bendir svo skemmtilega á í bók sinni „Growing up absurd“, þá er eitt af hlutverkum skólans að hafa ofan fyrir börnum og unglingum svo þau séu ekki að flækjast um í reiðu- leysi eða að keppa við hina fullorðnu um vinnuna (þ.e.a.s. um þau störf sem í boði eru). Annað auka- hlutverk skólans er FLOKKUN. Með henni á höfundur við það er skólinn brennimerkir nem- endur sína sem hæfa eða óhæfa með prófum sínum og einkunnagjöfum. í áðurnefndri bók „Gerð prófa“ lítur prófessor Gronlund á þetta hlutverk skólans sem sjálfsagðan hlut (Gronlund, 1970, 8) þar sem aðalatriðið ér að bæta prófin til að fá sem bestar upplýsingar um hvernig eigi að framkvœma þessa flokkun (Gron- lund, 1970, 110-118). MENNTAMÁL 13

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.