Menntamál - 01.02.1975, Blaðsíða 35
normal dreifingu. Það var prófað með x1 prófi,
og reyndist frávik frá normal dreifingu ekki vera
marktækt (_x2 = 6,53, df=ll, p>0,50).
Samkvæmt framansögðu má því álykta, að sá
hópur, sem hér um ræðir, sé eðlilegt úrtak íslenskra
barna að því er snertir dreifingu greindar, þó má
vera, að hann sé lítið eitt fyrir ofan meðallag.
Þegar börnin voru endurprófuð í 6. bekk, þá
náðist til 266 af þeim 300, sem prófuð voru í 1.
bekk. Tvö voru látin, hin höfðu flust lengra en svo,
að til þeirra næðist.
í töllu IV eru niðurstöður þessarar prófunar
bornar saman við 12 og 13 ára árganga stöðlunar-
hópsins, en 12 ára hópurinn er heldur nær í aldri.
Þess er að geta, að 13 ára stöðlunarhópurinn reynd-
ist dálítið annarlegur, hann stóð sig tiltölulega verr
en bæði 12 og 14 ára árgangarnir og er eini ár-
gangurinn, sem liggur undir 100 stigum að meðal-
tali. Þetta á við bæði kyn. Summa réttra lausna
hjá 12 ára stöðlunarhópnum var 20% hærri en hjá
11 ára hópnum og 23% hærri hjá 14 ára hópnum
en 13 ára. Þrettán ára hópurinn fór hins vegar
aðeins 10% fram úr 12 ára hópnum.5 Matthías
ræðir þetta í áðurnefndri bók sinni og telur, að
hvorki muni vera um misþung verkefni að ræða
né óeðlilegt úrtak í þessum aldursflokki. Hann setur
fram tvær tilgátur þessu til skýringar:
„1. Vegna annarra þroskabreytinga, sem
verða á barni á 13. ári, dregur á þessu bili
meir úr aukningu greindarþroskans en annars
gerist reglulega með hækkandi aldri ... 2.
Önnur tilgáta til skýringar er sú, að á 13. ári
raski líkamlegar og sálrænar byltingar, sem
byrjandi kynþroski veldur, mest innra jafn-
vægi unglingsins. Af þessum sökum bregst
honum sjálfsöryggið, hann verður feiminn,
tortrygginn og bundinn ýmsum hömlum, sem
gerir prófandanum erfitt fyrir að ná tökum
á honum ...“
Um þessi atriði verður engu slegið föstu af þeim
upplýsingum, sent fyrir hendi eru. Forvitnilegt er
að athuga, hvort þetta sama fyrirbæri finnst annars
staðar. í Harvard Growth Study7, þar sem fylgst
var með greindarþroska barna frá 8 til 16 ára aldurs,
kemur fram svipaður hjalli í greindarþroskanum
um 13 ára aldur. í annarri rannsókn, sem kennd
er við Berkeley8, má hins vegar greina örlítinn
hjalla við 11 og 14 ára aldur, en ekki við 13 ára
aldurinn. Berkeley athugunin kemur betur heim
TAFLA IV
Samanburður á meðaltölum og staðalfrávikum greindarvísitölunnar hjá drengjum, stúlkum og báðum kynjum
saman i Kópavogi annars vegar og í stöðiunarhópnum hins vegar.
N GV s Mism. t df P
1. Stöðlunarhópur, 12 ára börn 254 102,53 16,68
2. Stöðlunarhópur, 13 ára börn 229 98,98 16,95
3. Kópavogur, 12 ára börn 266 104,62 15,84
1-3 -2,09 1,46 260 NS
2-3 4. Stöðlunarhópur, 12 ára drengir 128 104,97 17,38 -5,64 3,75 248 <0,001
5. Stöðlunarhópur, 13 ára drengir 112 99,76 15,79
6. Kópavogur, 12 ára drengir 142 106,21 15,29
4-6 -1,24 0,62 135 NS
5-6 7. Stöðlunarhópur, 12 ára stúlkur 126 100,06 15,61 -6,45 3,28 127 <0,01
8. Stöðlunarhópur, 13 ára stúlkur 117 98,22 18,03
9. Kópavogur, 12 ára stúlkur 124 102,79 16,19
7-9 -2,73 1,36 125 NS
8-9 -4,57 2,07 122 <0,05
MENNTAMÁL
33