Menntamál - 01.02.1975, Blaðsíða 43

Menntamál - 01.02.1975, Blaðsíða 43
Komi óskir frá kennurum á Reykjavíkursvæðinu um hliðstætt námskeiö verður það væntanlega haldið í haust eða einu sinni í viku í vetur. IV. Danska 4.1. Námskeið fyrir kennara 4.—5. bekkjar 8.— 22. júni. Staður: Æfinga- og tilraunaskóli KHÍ. Umsjón: Stella Guðmundsdóttir. Hámarksfjöldi þátttakenda: 40. Markmið: Kynning á námsefni 4.-6. bekkjar í dönsku. Kennarar verða þjálfaðir í meðferð náms- efnis og æfðir i dönsku talmáli eftir því sem tími leyfir. Viðfangsefni: Sýnikennsla, kennsluleiðbeiningar, æfingakennsla, talþjálfun, gerð kennslugagna o.fi. Kennarar sem verið hafa á dönskunámskeiði og farið yfir námsefni 4. bekkjar geta sótt þann hluta námskeiðsins þar sem fjallað verður um námsefni 5. og 6. bekkjar. Vinsamlega takið fram í umsókn hvort þið ætlið að taka þátt í öllu námskeiðinu eða aðeins seinni hluta þess. 4.2. Námskeið í Danmörku fyrir kennara 7.—10. bekkjar 17.—31. ágúst. Fyrri hluti námskeiðsins verður í Snoghoj folke- hojskole (Jótlandsmegin við gömlu Litlabeltis- brúna) en seinni hlutinn í Kaupmannahöfn. Meginmarkmið námskeiðsins verður að auka færni þátttakenda í að skilja mælt mál og tala málið og gefa þeim kost á að kynnast danskri menningu og aðstæðum í Danmörku. í Snoghoj verða sérstakir tímar og fyrirlestrar varðandi dönskukennslu og málakennslu yfirleitt (Carl Sörensen sem kennt hefur á þremur nám- skeiðum fyrir íslenska dönskukennara). Þátttak- endur skipta sér í námshópa (studiekredse) sem fjalla um bókmenntir, þjóðfélags- og menningar- mál (kennarar skólans leiðbeina) og hlýtt verður á fyrirlestra sem fjalla um dönsk og norræn efni (ýmsir þekktir fræðimenn). Farið verður í heim- sóknir í skóla og kynnisferðir um Jótland og Fjón. Starfið verður skipulagt innan þess ramma sem tíðkast í lýðháskólum. Auk íslensku þátttakend- anna verða væntanlega jafnmargir danskir og meginhluti dagskrárinnar sameiginlegur. Á síðari hluta námskeiðsins fer kennslan fram í Folkeuniversitetet í Kaupmannahöfn. Kennt verð- ur 5 tíma á dag og megináhersla lögð á framburð, talæfingar og textameðferð. Sagt frá reynslu skól- ans af að kenna útlendingum dönsku, kynntar að- ferðir og námsgögn. Þessi hluti verður skipulagður í samráði við Merete Biorn sem hefur komið í heimsókn hingað og flutt fyrirlestra á vegum Dönskukennarafélagsins. Von er og á framlagi Mogens Jansen til námskeiðsins en hann hefur aðstoðað við gerð nýrra námsbóka fyrir dönsku- kennsluna í 6.-8. bekk. Undirbúning og fararstjórn annast Hörður Berg- mann námsstjóri. Ætlunin er að nota mánudaginn 16. ágúst til kynningar og undirbúningsvinnu fyrir námskeiðið - verður væntanlegum þátttakendum kynnt það nánar síðar. Styrkur er veittur til námskeiðsins af fjárveitingu til endurmenntunarnámskeiða fyrir kennara 1976 og af Fondet for dansk-islandsk Samarbejde. Vil- yrði hafa fengist um styrk frá danska kennslumála- ráðuneytinu til að greiða dvalarkostnað í Snoghoj. Fáist hann er áætlaður kostnaður á þátttakanda (fargjöld og uppihald) um 25.000 kr. (sem yrði þó að hækka í samræmi við breytingu á flugfargjöldum og gengi). í Kaupmannahöfn er gert ráð fyrir gistingu í 2ja manna herbergjum og morgunverði á Scanis Hotel, Brydes Alle 21, sem Folkeuniversitetet hefur haft samstarf við. Þeir sem vilja sjá sér sjálfir fyrir gistingu i Kaupmannahöfn 25. ágúst — 1. septemb- er — og lækka með því þátttökukostnað sinn — eru beðnir að geta þess í umsókn. Væntanlegir þátttakendur ættu að kanna mögu- leika á styrk frá sveitarfélagi sínu því að víða um land er orðin venja að veita kennurum styrk úr sveitarsjóði þegar þeir sækja námskeið erlendis. Umsóknarfrestur er til 10. apríl. V. Enska Mikil óvissa ríkir eins og er um námskeið í ensku. 5.1. Námskeið fyrir kennara 6. bekkjar. Ef bókin „This Way “ kemur út í haust er fyrir- hugað námskeið fyrir enskukennara í Reykjavík og nágrenni. Fyrirkomulag: Kynningardagar verða seint í ágúst en síðan myndu þátttakendur hittast einu sinni í hálfum mánuði t.d. á laugardögum mánuð- ina september-desember. MENNTAMÁL 41

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.