Vorið - 01.03.1953, Page 16

Vorið - 01.03.1953, Page 16
12 V O R I Ð BÁÐAR: Verið þér sælar, — verið þér sælar og þúsund þakkir fyrir komuna! SÚSSÍ: Ó, ekkert að þakka - ekk- ert að þakka! (Fer.) (Systurnar líta hver á aðra.) MALLA: Þetta var elskuleg kona! Svo menntuð í orðurn og fram- komu. MÍLLA: Já, alveg dæmalaus! MALLA (lítur á borðið): En hún liefur borðað allt vínarbrauðið! MILLA: F.g lield það sé gott. Hún hefur verið svöng, vesalingurinn! En indælt var að heyra hvað hún sagði margt fallegt um blessaðan litla engilinn! En hvert hefur hún eiginlega farið? (Hringt.) MALLA: Hver getur þetta verið? MARÍA (kemur inn): Hvað á ég nú að gera? MALLA: Farið til dyra. Það er ver- ið að hringja. MARÍA: Væri ekki bezt að láta það eiga sig? Það er einhver bölvaður rukkarinn! MALLA: Þvaður er þetta! Farið þér strax til dyra! SÚSSÍ (kemur þjótandi inn): Hefur fröken Muller komið liingað? (Enn er hringt ákaft.) Þið ættuð ekki að ljúka upp! Ég held að þetta sé brjáluð manneskja! MILLA (æpir): Guð minn alnrátt- ugur! Bjáluð? MALLA: Hvað er barnið að segja. Hvers vegna ætti hún að vera brjáluð? SÚSSÍ: Hún er svo afkáraleg. MALLA: Hvar hefur þú séð hana? SÚSSÍ: Ég? Ég gægðist gegnum bréfarifuna á hurðinni. MALLA (vantrúuð): Og María líka? MARÍ A: Já, já, — næ, næ, — það er að segja.. . . MALLA: Það eruð þið, sem eruð brjálaðar báðar tvær! Ætlið þið ekki til dyra? (Sússí æpir og felur sig bak við stól. María æðir örvilnuð aftur og fram. Systurnar ganga til dyra.) ER. MULLER (geisar æðisgengiu inn í stofuna, en systurnar reyna að halda aftur af henni): Þetta er nú sú mesta svívirðing, sem ég hef nokkurn tíma kynnzt. Hvers konar mannasiðir eru þetta eig- inlega? Hér kem ég til að tala við yður, og þér opnið ekki einu sinni dyrnar! Nær svona lagað nokkurri átt! MALLA: Hvaða erindi eigið þér eiginlega hingað? FR. MULLER: Það vitið þér vel! MALLA: Það hef ég svei mér ekki hugmynd um. Hvað heitið þér með leyfi? FR. MULLER: Nafn rnitt er Niko- lína Muller. MILLA: Hvílík ósannindi! FR. MULLER: Hvað vogið þér yð- ur að segja? MALLA: Hún sem var að fara héð- an rétt í þessu!

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.