Vorið - 01.03.1953, Blaðsíða 38
34
VO RIÐ
Nýstárleg og skemmtileg
verðlaunasamkeppni
Vorið hefur ákveðið að gangast fyrir samkeppni í BARNATEIKNING-
UM. Öll börn yngri en 14 ára geta tekið þátt í henni, hvort sem þau eru
kaupendur blaðsins eða ekki.
Verkefnin eru að teikna myndir í lesefni úr barnabókum. Börn, sem
eru 10 ára og yngri, fá það verkefni að teikna myndir úr sögum
„BERNSKUNNAR“ eftir Sigurbjörn Sveinsson. Hún er ein af okkar
elztu og vinsælustu barnabókum og til í gamalli útgáfu í tveimur bindum
og nýrri útgáfu frá 1948 í einu bindi.
Eldri börnin, 11—14 ára, fá hins vegar það verkefni, að teikna í lesefm
bókanna „Kappar“ I. og II. Hefur Marinó L. Stefánsson valið efni þeirra
úr fornbókmenntum okkar.
Hæfilegt verður að telja, að hvert barn sendi 1—5 myndir og vandi þæl
vel. Varizt að líkja eftir myndum, sem eru í þessum bókum. Finnið sjálf
viðfangsefni úr sögunum. Lesið þær rækilega. Sendið svo með myndununr
upplvsingar um, við hvaða sögur myndirnar eiga. Myndirnar verða að vera
á góðum teiknipappír. Samkeppni þessi stendur til næstu áramóta. Verð-
laun verða veitt fyrir 5 beztu myndimar.
Utanáskrift blaðsins er: Vorið, Akureyri.
Fáist svo góðar barnateikningar í þessari samkeppni, að fært þyki að
halda sýningu á þeim, befur blaðið ákveðið, að ágóðinn af þeirri sýningu
gangi til Barnaverndarfélags Akureyrar. Á þann hátt getið þið um leið
hjálpað þeim, sem bágt eiga.
Börnin góð! Bregðið nú við og sendið margar góðar teikningar til Vors-
ins. Þetta er skemmtilegt viðfangsefni. Byrjið á þessu nú þegar, svo að eitt-
hvað verði hægt að skýra frá keppninni í næsta hefti, sem kemur í vor.